Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Page 14
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
14 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Vikublað 19.–21. janúar 2016
Svona áföll eyðileggja allt Ég þarf að finna
sjálfan mig upp á nýtt
„Af hverju fara þeir ekki á sjóinn?“
Ragnheiður M. Kristjónsdóttir missti systur sína árið 2000 þegar henni var hrint fram af svölum. – DV Lilja Marteinsdóttir býr í Suður-Afríku. – DVBjarni Snæbjörnsson er nýskilinn og þarf nú allt í einu að fara að búa einn. – DV
Á
hverju ári, þegar upplýst er
hverjir hljóta listamannalaun,
verða umræður um launin,
hlutverk þeirra og gildi. Þetta
árið eru þessar umræður óvenju
háværar og óvægnar. Þeir sem verst
hafa látið í umræðunni spara ekki
stóru orðin og tala eins og lista
menn séu afætur á þjóðinni. Ekki
er nú víst að sá málflutningur falli í
kramið hjá þjóð sem sækir í menn
ingu og hefur í langan tíma verið
kölluð bókaþjóð.
Við Íslendingar höfum kom
ið upp kerfi þar sem listamenn geta
sótt um laun til að vinna að list sinni.
Það ætti að telja hverri þjóð til tekna
að vilja gera listamönnum sínum
kleift að sinna listsköpun og auðga
þannig menningu landsins. Samt er
það svo að á hverju ári, þegar kemur
að úthlutun listamannalauna, heyr
ast önugyrði og athugasemdir sem
minna meir á tuð og nöldur en mál
efnalega gagnrýni. Þeir sem eldri eru
muna örugglega eftir að hafa á árum
áður heyrt einhvern segja að í stað
þess að veita listamönnum laun væri
nær að senda þá á togara og láta þá
vinna almennilega vinnu. „Af hverju
fara þeir ekki á sjóinn?“ var spurt.
Maður hefði haldið að athugasemd
ir eins og þessar tilheyrðu gömlum
tíma, en margt í málflutningi dags
ins minnir á þessa gömlu tuggu,
sem var reyndar aldrei merkilegri en
hvert annað nöldur sem byggðist á
óljósri tilfinningu um að einhverjir
væru að fá eitthvað gefins.
Umræðan um listamannalaun
hefur í ár verið ansi harðvítug. Þar
skiptir örugglega máli frétt þess efnis
að aðalmenn í stjórn Rithöfunda
sambands Íslands fengu úthlut
að árs launum af úthlutunarnefnd
sem stjórnin hafði sjálf valið. Stjórn
Rithöfundasambandsins er skipuð
þjóðkunnum rit höfundum sem eru
alls góðs maklegir. Enginn ætti með
góðu móti að geta haldið því fram
að þessir rithöfundar eigi ekki skilið
að fá listamannalaun. En um leið er
ótækt að þeir velji fólk í úthlutun
arnefnd sem þeir sjálfir senda um
sóknir til. Slíkt fyrirkomulag býð
ur upp á tortryggni og ásakanir um
óheiðarleg vinnubrögð. Þessu verð
ur að breyta og ekkert bendir til
annars en að það muni verða gert.
Laun þeirra listamanna sem
fá listamannalaun eru ekki mikil í
krónum talið, þetta eru verktaka
laun sem greiða þarf skatt af, um
340.000 á mánuði. Þetta eru ekki
laun sem gera listamenn ríka, en
auðvelda þeim að einbeita sér að
listsköpun. Listamenn okkar hafa
auðgað menningu þjóðarinnar og
gert líf okkar innihaldsríkara. Líf
án menningar er ansi snautt og fá
tæklegt, þótt eflaust gætu einhverjir
lifað slíku lífi í sæmilegri sátt.
Tilhögun og fyrirkomulag lista
mannalauna á að vera í reglulegri
endurskoðun. Umræðan þarf að
vera málefnaleg og byggja á um
hyggju fyrir listastarfsemi en ekki
andúð á því að stór hópur lista
manna fái lágmarkslaun fyrir að
vinna að list sinni. n
Með pálmann í
höndunum
Utanríkisráðuneytið stendur með
pálmann í höndunum í deilunni
við útgerðarmenn um viðskipta
þvinganir gagnvart Rússum eftir
tíðindi vikunnar. Skýrsla sem sam
ráðshópur stjórnvalda birti í vik
unni leiddi fátt nýtt í ljós nema
ef til vill að útgerðarmenn hafa
blásið upp mögulegt tap af inn
flutningsbanni Rússa. Þá svaraði
ráðuneytið ítrek
uðum rangfær
slum formanns
Samtaka fyrirtækja
í sjávarútvegi
(SFS) í útvarps
þætti um liðna
helgi, á þann veg
að menn muna
vart eftir annarri
eins hirtingu frá
ráðuneyti. Það er kannski í takt við
málflutning útgerðarmanna í mál
inu að formaðurinn, Jens Garðar
Helgason , sagðist „í grundvallar
atriðum“ standa við yfirlýsingar
sínar, jafnvel þótt sýnt hafi verið að
þær væru rangar.
Gengur ekki í stjórnarsamstarfi
Brynjar Níelsson
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
Af Pressunni
A
ldrei er það svo að við
stjórnar þingmenn séum
sammála um allt þegar kem
ur að ráðstöfun fjármuna
ríkisins. Til að mynda eru ekki all
ir sammála um að ríkið greiði eins
taka mönnum nokkrar milljónir á
ári, áratugum saman fyrir að skrifa
sömu bókina eða aðra eins og þá síð
ustu. Menn eru heldur ekki sammála
um hvað eigi að greiða bændum í
gegnum búvörusamning til að gera
íslenskan landbúnað samkeppnis
hæfan við niðurgreiddan landbúnað
í öðrum löndum.
Nú í vikunni lýsti formaður efna
hags og viðskiptanefndar sig and
vígan aðild Íslands að Innviðafjár
festingabanka Asíu. Stofnun bankans
er hluti af þróunarsamvinnu flestra
vestrænna ríkja til að styrkja fjár
festingar í Asíu. Með þátttöku okkar
er opnað fyrir að íslensk fyrirtæki geti
haslað sér völl á þessum svæðum þar
sem efnahagslegur vöxtur er hvað
mestur í heiminum. Í því geta falist
miklir hagsmunir fyrir Ísland.
Þær smávægilegu fjárveitingar
sem hafa farið til greiðslu á skuld
bindingum Íslands hefur Alþingi
samþykkt með fjáraukalögum 2015
og fjárlögum fyrir 2016. Ólíklegt er að
við þurfum að greiða nema
um fimmtung af 2,3 millj
arða króna skuldbindingu
og það á fimm árum.
Samþykktir bankans
lágu fyrir þegar greidd
voru atkvæði um fjár
lög og fjáraukalögin.
Engin ástæða er því til
þess að ætla að Alþingi
greiði gegn hinni óþörfu
þingsályktunartillögu ut
anríkisráðherra um heim
ild til að staðfesta sam
þykktir bankans.
Rétt er hjá formanni
efnahags og viðskiptanefndar að
hver og einn þingmaður hefur frelsi
til að greiða atkvæði í þessu máli eins
og honum sýnist. Það á við öll mál
enda gerir stjórnarskráin ráð fyrir því.
Einnig er rétt hjá formanninum að
ekkert er í stjórnarsáttmálanum um
aðild okkar að innviðafjárfestinga
banka hinum megin á jörðinni.
En formaður efnahags og við
skiptanefndar verður að gera
upp við sig hvort hann styðji
ríkisstjórnina. Að greiða
á móti einstökum liðum
fjárlagafrumvarps eða
að sitja hjá gengur ekki
í stjórnarsamstarfi. Svo
væri meiri bragur á því að
ræða við fjármálaráðherra
um afstöðu sína í stað þess
að fara fram með þessum
hætti á Fés bókarsíðu sinni,
eins og formaður efna
hags og viðskiptanefndar
gerði. n
„Að greiða á móti
einstökum liðum
fjárlagafrumvarps eða
að sitja hjá gengur ekki í
stjórnarsamstarfi.
„Tilhögun og
fyrirkomulag lista-
mannalauna á að vera í
reglulegri endurskoðun.
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
MyNd SiGtRyGGuR ARi
Jens Garðar
Helgason
Ég held að það sé varla til betri
staður til að vera með börn
Kr
in
gl
an
Kr
in
gl
um
ýr
ar
br
au
t
Miklabraut
Miklabraut
Við
erum
hér!
Tilb
oð
17 10 bitar fyrir 4-5
5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa.
Stór af frönskum og 2l. Pepsi.