Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Side 20
Vikublað 19.–21. janúar 20166 Íslenskt sjávarfang - Kynningarblað
Sérfræðingar á Torfunni
í humri, víni og þjónustu
V
eitingastaðurinn Torfan sér-
hæfir sig í sjávarréttum en
býður einnig upp á kjöt. Ívar
Þórðarson, einn af þremur
eigendum Torfunnar, segir
að sérstaða staðarins sé humar, hross,
góð vín, húsakynni og gæðaþjónusta
„Við erum einnig með mikið úrval í
kjötréttum þó svo við leggjum mest
upp úr fiskréttunum,“ segir Ívar. „Við
erum með hross sem er skemmtilegt
að nefna þar sem veitingastaðurinn
Humarhúsið sem var í þessu húsnæði
í mörg ár á undan okkur bauð einnig
upp á hross. Við ákváðum því að
viðhalda þeirri hefð,“ bætir hann við.
Persónuleg þjónusta
„Við leggjum mikla áherslu á persónu-
lega þjónustu og mjög kósí og hlýlegt
andrúmsloft til að gera upplifun við-
skiptavina okkar sem mesta. Einnig
er lagt mikið upp úr rómantísku and-
rúmslofti,“ segir Ívar. „Við erum með
afar reynt starfsfólk og úrvals hráefni
og því allt til alls til að gera upplif-
un viðskiptavina okkar stórkostlega,“
segir hann.
Franskar matarhefðir
með norrænu ívafi
Ívar nefnir hvernig þeir blanda saman
frönskum matarhefðum og norrænu
ívafi. Þó svo að sígildu hefðirnar séu
í fyrirrúmi mætir matarhefðin nútím-
anum og úr því verður óvænt en klass-
ísk matargerð. „Við leggjum okkur
fram um að bjóða upp á sælkeramat
og úrvalsþjónustu í sögufrægu and-
rúmslofti,“ segir Ívar en veitingastað-
urinn er til húsa í Bernhöftstorfu og
húsið var byggt árið 1838. Timburgólf-
ið og gamlir veggir geyma margar sög-
ur frá Reykjavík.
Veitingahúsið í sögufrægu húsi
Bernhöftstorfan er ein elsta varðveitta
götumynd Reykjavíkur. Elstu húsin
þar eru byggð árið 1834 en Torfan
fjórum árum seinna þegar land- og
bæjarfógetinn Stefán Gunnlaugsson
byggði húsið. Árið 1981 var opnaður
veitingastaðurinn Torfan eftir ára-
langa baráttu um friðun á húsunum
og var það endurbætt í sömu mynd.
Húsið á því langa og stórmerkilega
sögu sem er einnig saga Reykjavíkur.
„Veitingastaðurinn er tilvalinn staður
fyrir smærri hópa allt að 20 manns í
einum hóp en einnig eru tvö afmörk-
uð herbergi sem taka átta til tíu manns
hvort,“ segir Ívar. n
Ljósmyndari: Kári Björn Þorleifsson
Myndir CoPyright - Kari Bjorn thorleiFsson