Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Page 32
20 Menning Vikublað 19.–21. janúar 2016
Grillum Gestina
F
jölskyldur koma í öllum
stærðum og gerðum en
eitt eiga þær sameiginlegt,
engin þeirra er fullkomin.
Menntun og þjóðfélags-
staða breytir þar engu um, því
betur sem málum er leynt, því
súrari verða þau. Marta og Georg
hafa eytt laugardagskvöldi í veislu
hjá föður hennar, rektor háskól-
ans sem Georg kennir við. Þau
snúa heim til sín, drukkin, örg og
pirruð. Marta veit að Georg mun
aldrei taka við starfi föður síns og
Georg veit að hann mun aldrei
standast væntingar Mörtu. Á hæla
þeirra koma yngri hjón, líffræði-
kennari sem er nýr við skólann og
eiginkona hans. Marta hefur boðið
þeim í eftirpartí. Hana grunar að
nýi kennarinn hafi áhuga á að taka
að sér stjórn skólans og þolir ekki
tilhugsunina um að einhver annar
en Georg setjist í stól föður hennar.
Áfengið virðist óþrjótandi og þau
Georg taka til við að leika sína djöf-
ullegu sálfræðileiki þar til veikleik-
ar og leyndarmál eru úr öllum rist
og skorin svo út úr blæðir.
Ekki alltaf trúverðugt
Hilmir Snær fer með hlutverk
Georgs og gerir vel. Hann er flottur
og öruggur með sig þegar hann
bregður sér í hlutverk sín í illskuleg-
um „leikjum“ þeirra hjóna en hann
hefði mátt sýna meiri blæbrigði
þess á milli. Margrét Vilhjálms dóttir
lék Mörtu og átti eins og Hilmir
Snær, góða spretti og glæsileg spor
en það er áhugaverðara að fylgjast
með hættulegu fólki þegar athafnir
þess eru ófyrirséðar. Elma Stefanía
Ágústsdóttir lék eiginkonu líffræði-
kennarans og var algjörlega sniðin
í hlutverkið. Í hennar höndum fór
netta eiginkonan heljarstökk í sýn-
ingunni, það var unun að fylgjast
með því hvernig hún breyttist þegar
drykkjan jókst og varð í raun stöð-
ugt áhugaverðari eftir því sem leið
á sýninguna. Eysteinn Sigurðarson
var í hlutverki líffræðikennarans en
persóna hans varð ekki trúverðug
og náði litlu flugi.
Leikstjórnin er í höndum Egils
Heiðars Antons Pálssonar. Hann
nýtir grunnt leiksviðið vel og margar
skemmtilegar lausnir líta dagsins
ljós fyrir hlé. Hann vann vel með
bæði tíma og staðsetningu leikrits-
ins, var trúr handritinu en fín lína
tímaleysis skilaði sér líka vel. Sýn-
ingin hélt hins vegar ekki spennu
eftir hlé, persónur Georgs og Mörtu
urðu fyrirsjáanlegar og takturinn
datt svolítið niður. Maður var ekki
alveg að trúa því að Marta væri
alltaf að breyta reglunum, það vant-
aði óstöðugleika og meiri hættu.
Skothelt verk
Leikmynd Gretars Reynissonar er
þaulhugsuð og vel útfærð. Stór-
kostlegt hvernig ósýnilegur veggur
myndaðist milli leikaranna í sum-
um atriðum þannig að þau gátu
staðið mjög nálægt hvort öðru án
þess að vera í sama rými og svo
hurfu þessir ósýnilegu veggir í
öðrum senum og rýmið varð opið.
Þýðing Sölku Guðmundsdóttur
rann vel, áræðið af henni að halda
enskum slettum í verkinu, þær voru
á hárréttum stöðum og Swiskey
þýðingin var fyndin.
Líkt og Heimkoman, Sporvagn-
inn og Mávurinn þá er Virginia
skothelt og margverðlaunað verk
sem telst til sígildra verka. Vinna
hefði mátt betri lausnir í seinni
hluta uppfærslunnar eða freista
þess að stytta það. Hilmir Snær og
Margrét Vilhjálms eru góð í hlut-
verkum Georgs og Mörtu en stjarna
sýningarinnar er Elma Stefanía
ásamt eftirminnilegri leikmynd
Gretars Reynissonar. Áhugavert
verk sem ýtir við áhorfendum með
eitruðum hætti. n
„Maður var ekki
alveg að trúa því
að Marta væri alltaf að
breyta reglunum, það
vantaði óstöðugleika
og meiri hættu.
Góðir sprettir Margrét Vilhjálmsdóttir á góða spretti og glæsileg spor í hlutverki Mörtu.
Gagnrýnandi segir þó vanta meiri hættu og óstöðugleika til að persónan verði trúverðug.
Bryndís Loftsdóttir
ritstjorn@dv.is
Leikhús
Hver er hræddur við
Virginiu Woolf?
Höfundur: Edward Albee
Þýðing: Salka Guðmundsdóttir
Leikstjórn: Egill Heiðar Anton Pálsson
Leikarar: Margrét Vilhjálmsdóttir, Hilmir
Snær Guðnason, Eysteinn Sigurðarson og
Elma Stefanía Ágústsdóttir
Leikmynd: Gretar Reynisson
Búningar: Helga I. Stefánsdóttir
Lýsing: Þórður Orri Pétursson
Tónlist / hljóðmynd: Margrét Kristín Blöndal
Sýnt í Borgarleikhúsinu
Mynd GRIMUR BJARnASOn
Vonir og væntingar Hilmir Snær leikur háskólakennarann Georg sem á erfitt með að standast væntingar konu sinnar, rektorsdótturinnar Mörtu.
Kláraði
krossgátuna
Það var Erla Bergmann Danel-
íusdóttir sem var dregin út úr
krossgátupotti DV á mánudag,
en hún skilaði inn lausn við sér-
stakri annáls krossgátu sem birt-
ist í fyrsta blaði ársins 2016. Hún
fékk að launum 10 þúsund krónu
gjafabréf á Skólabrú. Við bend-
um lesendum á krossgátuna sem
birtist í hverju helgarblaði, en á
næstunni verður einnig boðið
upp á krossgátur, aðra hverja
viku, í vikublaði DV.
Úr listheiminum
Í
slenskir lesendur eiga því ekki
að venjast að ný íslensk skáld-
saga komi í bókabúðir í janúar.
Breyting hefur
orðið á því en
glæpasaga
eftir Jónínu
Leósdóttur
er komin á
markað. Sú er
kilja og nefnist
Konan í blokk-
inni. Þetta er glæpasaga sem
hefst á því að kona vaknar og
áttar sig á því að hún er komin
í afar sérkennilegar aðstæður.
Bókin var send á klúbbfélaga hjá
Forlaginu í nóvember en er nú
komin í bókabúðir.
Leikkon-an Jada Pinkett
Smith hef-
ur stungið
upp á því
að „litað
fólk“ snið-
gangi Ósk-
arsverðlaunin í ár vegna skorts
á fjölbreytileika í tilnefningum
á hátíðinni í ár. Heitar umræður
hafa sprottið upp um tilnefn-
ingarnar, meðal annars á samfé-
lagsmiðlum undir kassamerkinu
#Oscarssowhite, vegna þess að
allir sem tilnefndir eru í stærstu
flokkunum eru hvítir. Hver einn
og einasti sem er tilnefndur sem
besti leikari, leikkona (bæði í
aðal- og aukahlutverki) og leik-
stjóri er hvítur. Þá fjalla allar
myndirnar sem tilnefndar eru
sem besta myndin um hvítar
gagnkynhneigðar persónur.
Satis.is
Satis ehf | Fákafeni 9 | Sími: 551 5100 | www.satis.is
Sjáðu SKY
með NowTV
netmyndlykli
Ekki lengur þörf að setja upp disk. Kauptu SKY áskrift
af skemmtipakka SKY, Sky Movies eða Sky Sports.
Allir nýjir viðskiptavinir fá Sky Movies frítt
í 3 mánuði og Skemmtipakkann í 2 vikur.
Enginn
binditími
Eitt fullkomnasta VOD kerfi í heimi
Verð frá 3.490 kr. á mán.