Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Page 4
4 Fréttir Vikublað 9.–11. febrúar 2016
Nose & Blows blautklútarnir hjálpa til við að hreinsa lítil og
viðkvæm nefgöng á mildan hátt. Þeir vernda húðina gegn roða,
ertingu og þurrki sem myndast þegar oft þarf að snýta og innihalda
rakagefandi B5 vítamín og náttúrulegt mentól & eucalyptus til þess
að auðvelda öndun. Enginn rauður nebbi lengur!
Er litli nEbbinn díbblaður?
Fæst í apótEkum um land allt
Sterkir strákar og
valdalausar stelpur
Tónlistarmyndband nemenda Verslunarskólans fer fyrir brjóstið á jafnréttissinnum
M
yndband nemenda í Versl-
unarskóla Íslands, sem
gefið var út í síðustu viku
í tilefni af nemendamóti
skólans, hefur vakið tals-
verða athygli á netmiðlum. Lagið
heitir Take you there, og bæði titill
og myndefni kallast óneitanlega á við
nýlegan smell Íslandsvinarins Justins
Bieber. Í myndbandi Justins sést hann
kela fáklæddur við unga snót, og fólk
kippti sér ekkert verulega upp við
það, hins vegar hefur svipað mynd-
mál með íslenskum ungmennum í
aðalhlutverkum vakið athygli á sam-
félagsmiðlum.
Stelpurnar augnakonfekt
Emil Ortiz er einn þeirra sem birtu
myndbandið á Facebook og hvatti
hann fólk til að horfa á myndbandið,
sérstaklega ef það hefði efasemdir
um áhrif bandarískra miðla og af-
þreyingarefnis á íslenska æsku. „Það
fyrsta sem ég hugsaði var, af hverju
eru þeir að syngja á ensku? Svo fór
ég að spá í hversu mikið þessi Versló
myndbönd eru búin að breytast með
árunum.“ Emil útskrifaðist úr MH í
fyrra og finnst athyglisvert að skoða
muninn á efni sem nemendur skól-
anna tveggja senda frá sér. „Í mynd-
böndum frá MH sérðu að stelpur og
strákar hafa jafn mikilvæg hlutverk,
en í þessu nýja Versló myndbandi eru
stelpurnar bara augnakonfekt.“
Þetta tekur Hanna Björg Vil-
hjálmsdóttir undir, en hún er kynja-
fræðikennari í Borgarholtsskóla.
„Í myndbandinu birtast
stelpurnar í valdalausri stöðu, þær
eru sýndar kynferðislega og lítið
klæddar. Á meðan eru strákarnir ger-
endur, í valdastöðu. Þeir eru meira
klæddir. Þeirra kynþokki felst í styrk
og valdi, á meðan kynþokki stelpn-
anna felst í valdaleysi og klæðaleysi.
Þarna er verið að styðja hefðbund-
in valdatengsl í samfélaginu. Skortur
á gerenda færni er „normaliseraður“
hjá stelpum, þeim er kennt að bera
meiri virðingu fyrir körlum en sjálf-
um sér. Svona efni ýtir undir hlut-
gervingu kvenna – stelpurnar halda
áfram að skilgreina sig eftir kynþokka
fyrst og fremst – því menningin gerir
það. Karlar hafa meira frelsi til að gera
– konur til að vera.“
Nemendur ræða um markvissar
aðgerðir
Það er hópurinn 12.00 sem er ábyrgur
fyrir myndbandinu, en hann er á
meðal fjölmargra nefnda sem starfa
á vegum Nemendafélags
Verslunarskóla Íslands. Að
sögn Styrmis Elís Ingólfsson-
ar, forseta NFVÍ, er hlutverk
nefndarinnar að búa til tón-
listarmyndbönd og grínþætti,
en nefndina skipa nokkrir
strákar.
Styrmir segir NFVÍ starfa
eftir jafnréttisstefnu og að
reynt sé að leggja áherslu á að
í nefndum þess sitji einstak-
lingar af báðum kynjum. „Í
gegnum árin hafa verið fleiri strák-
ar í þessari nefnd en stelpur. Eftir
áramót urðu breytingar og núna eru
bara strákar í nefndinni. Til saman-
burðar má nefna að núna sitja ein-
göngu stelpur í nefndinni sem sér
um skólablaðið. Við erum meðvituð
um þetta og höfum þá stefnu að jafna
kynjahlutföllin. Við vinnum eftir jafn-
réttislögum innan skólans og höfum
haldið málfundi þar sem kynjamál
hafa verið rædd.“ Styrmir segir að
hingað til hafi ekki verið teknar upp
markvissar aðgerðir til að jafna hlut
kynja í nefndum. „Við höfum rætt
um hvort þurfi að gera það, bæði í
skólanum og okkar á milli í hópum á
netinu. Það hafa samt verið jákvæðar
breytingar í þessum efnum og al-
menn vitundarvakning meðal nem-
enda, sérstaklega á síðasta ári.“
Nemendum og stjórnendum ber
ekki saman
Formaður 12.00 nefndarinnar, Ari
Friðfinnsson, segir að tilgangurinn
með myndbandinu hafi verið að gera
grín að myndbandi Justins Bieber
sem ber sama titil.
„Það var alls ekki meiningin að
þetta kæmi illa við neinn. Ég skil
þó að þetta hafi farið fyrir brjóstið
á einhverjum, eins og komið hef-
ur fram á netinu. Eftir að umræðan
fór af stað settum við 18+ merkingu
við myndbandið á Youtube,“ segir
hann en nemendur skólans eru al-
mennt á aldrinum 16–20 ára. Ari seg-
ir fólk hafa brugðist vel við laginu.
„Enda er þetta gott lag. Enginn hef-
ur sagt neitt beint við okkur, en við
vitum af umræðum á netinu. Pæl-
ingin var að gera algjöra eftirlíkingu
af myndbandi Justins Bieber, en alls
ekki að það yrði niðrandi fyrir stelp-
ur. Við munum spá í þetta í framtíð-
inni, það er á hreinu.“ Ari segir að
myndbandið hafi farið hina vana-
legu leið ritskoðunar innan skólans
eins og annað útgefið efni, og engar
athugasemdir hafi verið gerðar.
Þar ber honum og aðstoðarskóla-
stjóra Versló, Þorkeli H. Diego, ekki
saman. Þorkell segir að í þetta skiptið
hafi nemendur farið alfarið framhjá
stjórnendum og gefið myndbandið
út ósamþykkt. „Við lítum ekki á þetta
sem myndband á vegum skólans.“
Þorkell segir að í Versló sé boðið upp
á valáfanga í kynjafræði og að reglu-
lega séu fengnir fyrirlesarar til að
fjalla um birtingarmyndir kynjanna í
útgáfu og efni sem nemendur vinna
að. „Gauramenning hefur verið
áberandi í þessu efni, og það mund-
um við vilja sjá breytast svo að eðli-
legra jafnvægi milli kynjanna verði
ríkjandi. Skólayfirvöld eru að skoða
hvort og hvernig þau muni bregðast
við útgáfu þessa myndbands. Síð-
asta vika var lögð undir árshátíð svo
að við erum að sjá þetta fyrst núna og
viljum setjast yfir þetta og heyra hvað
nemendum gekk til.“ n
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Fötum fækkað Lagið og myndbandið er gert af 12.00 nefndinni í Versló.
Kelerí Skjáskot úr myndbandinu.
Ernesto Emil Ortiz Hvetur fólk til að skoða myndbandið gagnrýnum augum.
ÞORmaR VigNiR guNNaRSSON
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir
Kennari í Borgarholtsskóla.
Styrmir Elí ingólfsson Forseti NFVÍ.
ari Friðfinnsson Formaður 12.00.