Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Blaðsíða 12
12 Fréttir Vikublað 9.–11. febrúar 2016
avis.is
591 4000
Frá
1.650 kr.
á dag
Vissir þú að meðal heimilisbíll er
notaður í eina klukkustund á dag
Langtímaleiga er
þægilegur, sveigjanlegur
og skynsamlegur kostur
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
NOTAÐU
ÞITT FÉ
SKYNSAM-
LEGA
Skútuvogi 11 104 Reykjavík Sími 553 4000 www.prentvorur.is
Sérfræðingar í prenthylkjum
Tólf menn fengu
140 ára dóm
Nauðguðu 13 ára stúlku ítrekað um 13 mánaða skeið
T
ólf menn hafa í Bretlandi
verið dæmdir fyrir hrotta-
legar nauðganir stúlku
þegar hún var 13 og 14 ára.
Daily Mail greinir frá þessu.
Mennirnir nauðguðu henni ítrekað
og í eitt skiptið fimm í röð. Mennirnir
tólf hafa samtals verið dæmdir til 140
ára fangelsisvistar fyrir athæfið.
Bradford Crown Court dæmdi
ellefu þeirra fyrir nauðgun en þann
tólfta fyrir að taka þátt í kynferðis-
legum athöfnum með barni yngra en
16 ára. Árásirnar áttu sér stað yfir 13
mánaða tímabil árin 2011 og 2012 en
mennirnir eru, að sögn Daily Mail,
allir af suðurasískum uppruna.
Ekki vottur af manngæsku
Ofbeldið átti sér stundum stað í bíla-
stæðahúsi, neðanjarðar, þar sem
nafn fórnarlambsins hafði verið riss-
að á veggina, sem og orðið „coroner“
eða dánardómstjóri. Dómarinn,
Roger Thomas, sagði fyrir dómi að
hegðun þeirra í réttarhöldunum
væri sú versta sem hann hefði upp-
lifað á fjörutíu ára lögmannsferli sín-
um. Hegðunin endurspeglaði raun-
ar virðingarleysi og framkomu þeirra
gagnvart stúlkunni. Þeir hefðu fyrir
dómi sýnt af sér svo óviðeigandi
og hrokafulla hegðun að hann hafi
aldrei upplifað annað eins.
Dómarinn sagði að gagnvart
stúlk unni hefðu þeir aldrei sýnt vott
af manngæsku. Þeir hafi aðeins litið
á hana sem hlut sem þeir gætu nýtt
til að svala fýsnum sínum.
Í yfirlýsingu frá stúlkunni sem
lesin var upp fyrir dómi kom fram
að hún þjáist bæði af þunglyndi og
áfallastreituröskun. Hún eigi erfitt
með að treysta fólki og það liti allt
hennar líf. Hugmyndir hennar um
samskipti og sambönd séu bjagað-
ar eftir misnotkunina. Hún glími við
miklar skapsveiflur og hafi engin
verkfæri til að halda sér í andlegu
jafnvægi.
Flestir með brotasögu
Fyrir dómi kom fram að foringi
hópsins, Ahmed Al-Choudhury, sem
hýsti flestar árásirnar, hefði flúið til
Bangladess. Flestir mannanna áttu
sér langa og fjölbreytta afbrota-
sögu. Einn mannanna, Khalid Raja
Mahood, situr þegar inni fyrir að
hafa nauðgað 43 ára gamalli konu
auk þess sem hann hlaut dóm fyrir
að reyna að svipta barn frelsi.
Fram kom fyrir dómi að
Mahmood hafi fyrstur narrað til sín
stúlkuna í kynferðislegum tilgangi.
Það hafi hann gert með hjálp áfengis
og eiturlyfja.
„Við erum ánægð með að þessir
menn hafi núna verið dæmdir fyrir
þessa hræðilegu glæpi sína,“ hefur
Daily Mail eftir Nicola Bryar, þeim
sem fór fyrir rannsóknarteyminu
sem annaðist málið.
Mennirnir fengu flestir á bilinu 12
til 15 ára fangelsisdóm. Khalid Raja
Mahood fékk 17 ára dóm. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
„Við erum ánægð
með að þessir
menn hafi núna
verið dæmdir fyrir þessa
hræðilegu glæpi sína.
Khalid Mahood
hlaut 17 ára dóm.
Hann er 34 ára
gamall.