Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Blaðsíða 6
6 Fréttir Vikublað 9.–11. febrúar 2016 Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • Opið kl. 12-18 Lengri og breiðari parketpLankar E inkahlutafélagið H19 hefur ver­ ið lýst gjaldþrota en það hélt um tíma utan um rekstur sölu­ síðunnar Hópkaup. Síðan er nú í eigu Móbergs ehf. sem keypti reksturinn í ágúst síðast liðnum. Forsvarsmenn Móbergs vildu þá ekki svara því hvort allar kröf­ ur á fyrrver­ andi eiganda síðunnar hefðu verið gerðar upp þegar salan gekk í gegn. Heildarskuldir H19 námu 46 milljónum króna í árslok 2013, sam­ kvæmt nýjasta ársreikningi félagsins. Móberg er í eigu Skorra Rafns Rafnssonar, eiganda Netgíró, Bland, 433.is, Wedo og Móa Media og stofn­ anda íslenska smálánafyrirtækis­ ins Hraðpeningar. Dóttur félag Móbergs keypti Hópkaup af DCG ehf. sem er í eigu Leifs Alexanders Haraldssonar, stofnanda smálánafyrir­ tækjanna Kredia ehf. og Smálán ehf. Sölusíðan var áður rekin af H19, sem var einnig í eigu Leifs, sem hét Hópkaup ehf. fram að 10. júlí síðastliðn­ um þegar nafni þess var breytt, sama dag og dóttur­ félag Móbergs tók heitið upp. Skipta fund ur kröfu hafa í H19 hef ur verið boðaðar 26. apríl næstkomandi. n haraldur@dv.is Gamla Hópkaup lýst gjaldþrota Móberg keypti rekstur sölusíðunnar í ágúst í fyrra Eigandinn Skorri Rafn Rafnsson er eigandi Móbergs en fyrirtækið keypti rekstur Hópkaupa í ágúst í fyrra. Kjarabætur að baki dýrari strætóferðum n Túristapassarnir hækka mest n Lækkun eldsneytisverðs vinnur á móti Þ etta er aðallega vegna launahækkana,“ segir Jó­ hannes Rúnarsson, fram­ kvæmdastjóri Strætó bs, í samtali við DV. Strætó kynnti fyrir helgi nýja verðskrá sem tekur gildi þann 1. mars næstkomandi. Eins dags kort hækka mest í verði eða um 50 prósent auk þess sem þriggja daga kort hækka um 30 prósent í verði. Jó­ hannes segir aðspurður að hækkanir þessara korta séu til þess fallnar að ná meiri aur af erlendum ferðamönnum en þeim fjölgar smám saman á meðal farþega. Stakt fargjald hækkar um 4,5 pró­ sent en að sögn Jóhannesar nemur vegin meðaltalshækkun um þremur prósentum. „Margir liðir hækka ekki neitt.“ Ný árskort öryrkja og ellilífeyris­ þega líta dagsins ljós en þessir hópar hafa hingað til greitt fargjöldin fullu verði. „Við erum að færa okkur meira yfir í kortin. Það er stefna að taka upp rafræn greiðslukerfi samhliða appinu okkar,“ segir hann en bætir við að það verði tæpast á þessu ári. Olíuverðshrun vinnur á móti Verðhækkununum er, samkvæmt vef­ síðu Strætó, „ætlað að mæta almenn­ um kostnaðarhækkunum“. Samt ligg­ ur fyrir að olíuverð hefur hríðfallið í verði undanfarin misseri. Lítrinn á bensínstöð kostaði um mitt ár 2014 hátt í 250 krónur, en útsöluverðið á dísilolíu stendur nú í um 170 krón­ um. Spurður hvort nauðsynlegt hafi verið að hækka miðaverð í ljósi þessara lækkana segir Jóhannes að kostnaður við eldsneytiskaup nemi um 10 prósentum útgjalda Strætó. Mestu munar um stærsta útgjalda­ liðinn, launaliðinn, en laun hafi með kjarasamningum síðasta sumar hækkað um 10 prósent. Launakostn­ aður nemi um 55 prósentum allra útgjalda Strætó. Lækkun eldsneytis­ verðs sé hins vegar til þess fallin að draga úr þörf fyrir frekari hækkun. Meðal annars þess vegna nemi hækk­ unin á heildina ekki nema um þrem­ ur prósentustigum, en ekki 10. Vel gert við þá elstu og yngstu Fargjald sumra hópa hækkar ekki neitt. Þar má til dæmis nefna árskort fyrir börn og ungmenni sem og árskort fyrir nemendur 18 ára og eldri. Á sama tíma hækka eins og þriggja daga passar, sem kalla mætti túristapassa, um tugi prósenta. „ Okkur þykir ekkert óeðlilegt þó að túristinn sé að borga sem næst fullu gjaldi því þeir eru ekki að borga skatta og skyldur á Íslandi. Starfsemi Strætó er náttúrlega niðurgreidd með fram­ lagi frá sveitarfélögum og ríki,“ segir hann. Þess vegna hafi þessir passar hækkað verulega. Hann tekur fram að tekjur fyrir eins og þriggja daga kortin nemi innan við einu prósenti af tekjum strætó. Jóhannes segir að erlendum ferðamönnum á meðal far­ þega fjölgi eitthvað á milli ára. Jóhannes segir aðspurður að notk­ un strætó á höfuðborgarsvæðinu fjölgi umfram fjölgun íbúa. Tekj­ ur Strætó standi undir 30–32% af rekstrinum en hlutfallið í heiminum sé víða á bilinu 20 til 50 prósent. Samkvæmt nýjasta árshlutaupp­ gjöri á vef Strætó, sem er fyrir þriðja ársfjórðung síðasta árs, nema lang­ tímaskuldir um 240 milljónum króna. Jóhannes segir að Strætó hafi á árum áður verið mjög illa statt. Þessi lán séu ekki íþyngjandi fyrir félagið og séu í greiðsluferli. Stefnt sé að því að klára að gera upp lánin haustið 2018. „Það var stefnt að því að þessar skuld­ ir yrðu greiddar upp og planið hefur verið að ganga upp.“ n Baldur Guðmundsson baldur@dv.is „Okkur þykir ekkert óeðlilegt þó að túristinn sé að borga sem næst fullu gjaldi því þeir eru ekki að borga skatta og skyldur á Íslandi. Staðgreiðslufargjöld í strætó Verðskrá sem tekur gildi 1. mars n Almennt fargjald 420 kr. n Afsláttarfargjald, gildir fyrir börn, ung- menni, aldraða og öryrkja, 210 kr. Tímabilskort n 1 mánuður (Græna kortið) 11.300 kr. n 3 mánuðir (Rauða kortið) 24.700 kr. n 9 mánuðir (Bláa kortið) 58.700 kr. n Árskort 18 ára og eldri (Nemakort) 46.700 kr. n Árskort 12–17 ára 19.900 kr. n Árskort 6–11 ára 7.900 kr. n Árskort aldraðir og öryrkjar 19.900 kr. n Samgöngukort (12 mánaða kort) 58.700 kr. n Eins dags kort 1.500 kr. n Þriggja daga kort 3.500 kr. Farmiðaspjöld 20 miðar n Fullorðnir 8.000 kr. n Ungmenni 12–17 ára 2.900 kr. n Börn 6–11 ára 1.250 kr. n Öryrkjar og aldraðir 2.500 kr. Framkvæmdastjórinn Af útgjöldum Strætó nema laun 55 prósentum en eldsneyti aðeins 10 prósentum, að sögn Jóhannesar. Mynd SiGtryGGur Ari Ákærður fyrir fjársvik Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Einari Ágústs­ syni fyrir umfangsmikil fjársvik og gjaldeyrisbrot. Einar og bróðir hans, Ágúst, voru meðal annars til umfjöllunar í Kastljósi í fyrra en þeir hafa leitt stórar hópfjár­ magnanir á vefnum Kickstarter. RÚV greinir frá en þar kemur fram að ákæran sé upp á fimmtán blaðsíður. Einari er meðal annars gefið að sök að hafa fengið Ís­ lendinga til að leggja rúmar sjötíu milljónir til eignarhaldsfélagsins Skajaquoda, en samkvæmt ákæru hélt Einar því fram að hann starf­ rækti fjárfestingarsjóð undir þessu nafni í Bandaríkjunum. Öll gögn benda þó til þess að sjóður­ inn hafi aldrei verið stofnaður. Samkvæmt ákæru voru brot­ in þaulskipulögð, en Einar er sagður hafa sent viðkomandi upplýsingar um góða ávöxtun fjármuna í sjóðnum. Þá er Einar ákærður fyrir um­ fangsmikil brot á lögum um gjaldeyrismál. Á tæplega tveggja ára tímabili, frá því í október 2011 til júlí 2013 sendi hann með símgreiðslum erlendan gjald­ eyri upp á rúmar 220 milljónir króna. Keypti hann gjaldeyrinn af Íslandsbanka án þess að pen­ ingurinn væri notaður í vöru­ eða þjónustuviðskipti eins og lög kveða á um. Þess er krafist að Skajaquoda verði látið sæta upptöku á rúmum 67 milljónum sem embætti sérstaks saksóknara lagði hald á í júlí 2013. Ákærður Einar Ágústsson hefur verið ákærður fyrir fjársvik og brot á lögum um gjaldeyrismál. Mynd: KAStljóS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.