Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Blaðsíða 8
8 Fréttir Vikublað 9.–11. febrúar 2016
Nú tryggir áskrift
að DV þér 2 miða
á Bieber, Kitchen
Aid eða fartölvu
3
KitchenAid
Fáðu þér áskrift að DV
og þessa fallegu
KitchenAid
hrærivél.
2
Asus
fartölva
Fáðu áskrift
að DV og
Asus-far-
tölvu
1
Miðar á Bieber
Fáðu áskrift að
DV og 2 miða
á Justin
Bieber 9.9.
2016
veldu
þína áskrift
núna!
Kláraðu dæmið á tilbod.dv.is
„Hámarks
skítabisness“
O
kkur finnst eins og það
sé verið að féfletta fólk,“
segja hjón sem keyptu bíl
af gerðinni Ford Focus
C-Max í apríl síðastliðn-
um. Bíllinn, sem er árgerð 2005, var
keyptur á Bílasölunni AB-bílar en
eigandi hennar, Árni Ásgeirsson, var
skráður eigandi bílsins. Kaupverðið
var 900 þúsund krónur en skömmu
eftir kaupin gaf vélin sig með þeim
afleiðingum að bíllinn var talinn
ónýtur. Hjónin höfðu aðeins greitt
helming kaupverðsins þegar í ljós
kom að bíllinn var í ólagi en urðu
að eigin sögn fyrir mikilli pressu
af hálfu Árna að gera kaupverðið
upp. „Hann var mjög liðlegur
til að byrja með, tók við bílnum
og sá til þess að gert yrði við
hann. Þegar við höfðum fullviss-
að okkur um að hann væri í lagi
þá greiddum við lokagreiðsluna
vegna.“
„Bíllinn var þá í raun ónýtur“
Fimm dögum síðar var bíllinn
bilaður á ný. Glóðarkerti hafði
brotnað og fór brotið í hedd bílsins
með þeim afleiðingum að djúp rifa
kom í eina slíf. „Bíllinn var þá í raun
ónýtur og við vorum ekki með neitt
mál í höndunum. Við skoðuðum
stöðu okkar hjá FÍB en niðurstaða
þeirra var sú að við værum ekki með
neitt mál í höndunum,“ segja hjón-
in sem að lokum seldu bílinn í parta
fyrir 100 þúsund krónur um miðj-
an október í fyrra, sex mánuðum
eftir að hafa keypt bílinn. „Við feng-
um þær upplýsingar að aðeins tvö
verkstæði hefðu sérhæf tæki til þess
að laga vélina, það er að segja verk-
stæði Brimborgar og Kistufell. Þaðan
fengum við þær upplýsingar að við-
gerðin myndi kosta um 800–900 þús-
und krónur,“ segja hjónin, en það er
svipað verð og þau greiddu fyrir bíl-
inn. Einnig hafi verið mögulegt að
fylla í rifuna í vélinni en sú viðgerð
er að sögn hjónanna aldrei varanleg.
Auglýstir til sölu
Hjónin hafi eðlilega verið ansi
óánægð með þessi málalok og hugs-
að bílasölunni og eiganda hennar
þegjandi þörfina. „Við vorum í reglu-
legu sambandi við hann og sögðum
honum að við kynnum ekki að meta
þessa viðskiptahætti,“ segja hjón-
in. Það hafi því komið þeim mjög á
óvart þegar þau sáu sama bíl til sölu
á Braut bílasölu í febrúarbyrjun, en
áðurnefndur Árni Ásgeirsson hafði
í millitíðinni lagt niður bílasöluna
AB-bílar og er nú annar eigandi
Brautar. „Bíllinn er á sama verði
og við keyptum hann, um 900
þúsund. Það eru meira að segja
sömu myndir notaðar og þegar
við keyptum bílinn,“ segja hjónin.
Eigandinn kannast
ekki við málið
DV hafði samband við Árna Ás-
geirsson, annan eiganda Brautar
bílasölu. Árni kom af fjöllum varð-
andi sögu bílsins og vísaði alfarið
á meðeiganda sinn. „Hann tók við
þessum bíl en hann er ekki við í
augnablikinu. Mér er ekki kunnugt
um hvert framhaldið varð á þessu.
Þessi bíll var bara tekinn í viðskipt-
um en mig minnir að einhver maður
hafi talað við samstarfsmann minn
um að það hafi verið sett notuð
vél í bílinn,“ segir Árni og gat ekki
veitt frekari upplýsingar um mál-
ið. Skömmu síðar var auglýsing um
umræddan bílinn tekin af vefsíðu
Brautar bílasölu. Ekki náðist í með-
eiganda Árna við vinnslu fréttar-
innar né skráðan eiganda bílsins en
hann er staddur erlendis. n
Hjón keyptu notaðan bíl sem gaf strax upp öndina
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Bíllinn Sömu myndir voru notaðar
þegar hjónin keyptu bílinn og þegar bíll-
inn kom aftur á sölu í byrjun febrúar.
Skjáskot af heimasíðu Brautar Farið var fram á 890 þúsund krónur fyrir bílinn, sama verð og hjónin keyptu hann á í apríl í fyrra. Á heimasíðunni kom fram að um „toppeintak“ væri að ræða.