Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Blaðsíða 18
Vikublað 9.–11. febrúar 20162 Verkstæði og varahlutir - Kynningarblað
Kostnaður við framrúðuviðgerðir
er í höndum tryggingafélaga
S
igurður Eiríksson, eigandi
Glerpró, hefur starfað við
framrúðuviðgerðir – og skipti
– síðan 1994 og starfsmenn
fyrirtækisins búa að mikilli
reynslu. Glerpró þjónustar bíla af öll-
um stærðum og gerðum en oftast fæst
það við stóra bíla og rútur. Sigurður
segir ástæðuna fyrir því vera að hinn
almenni bíleigandi átti sig oft ekki á
því að hægt er að gera við skemmd-
ir í rúðum honum að kostnaðar-
lausu. „Oft þarf líka að skipta út rúð-
um og ekki hvað síst þegar skemmdir
eru í sjónlínu ökumanns. Það fer eftir
eðli skemmdarinnar en sumar þeirra
hverfa fullkomlega eftir viðgerðina.
Framrúðuviðgerðir eru vandasamt
verk en við leggjum metnað okkar í að
vinna hratt og örugglega.“
Hröð og skilvirk þjónusta
Það líður yfirleitt ekki nema um
klukkustund frá því að bílinn kemur til
viðgerðar hjá Glerpró þangað til hann
er tilbúinn. „Það er pöntunarkerfi fyrir
bílrúðuviðgerðir á heimasíðu Glerpró,
glerpro.is, og þar er tengill þar sem
viðskiptavinurinn skráir bílnúmer bif-
reiðarinnar og símanúmer sitt og hef-
ur fyrirtækið samband við viðkom-
andi. Það er einnig hægt að hringja og
panta tíma í síma 776-8600 eða senda
póst á glerpro@gmail.com. Fólk getur
líka komið við hjá Glerpró að Hyrjar-
höfða 2 því yfirleitt er farið beint í
verkið.“
Algengt að rúður springi út frá
skemmdum
Sigurður ítrekar að farsælast sé að við-
gerð eigi sér stað áður en raki kemst í
sprungur. „Það er tvöfalt gler í rúðun-
um og öryggisfilma liggur á milli glerj-
anna. Ef raki kemst í hana getur hún
gránað og þá verður grár blettur eftir
í rúðunni sem næst ekki úr. Það er
þó hægt að setja svokallaðan rúðu-
plástur á skemmdina til þess að koma
í veg fyrir að óhreinindi og vatn kom-
ist í hana. Það er líka vert að hafa í
huga að rúðuskemmdir þola illa hita-
breytingar og algengt er að rúður
springi út frá skemmdum,“ segir Sig-
urður.
Mikilvægt að mæta strax ef
sprunga myndast
„Rúðuviðgerðir eru bíleigendum að
kostnaðarlausu þar sem kostnað-
urinn er alfarið á ábyrgð trygginga-
félaganna. Best er að koma í rúðu-
viðgerð um leið og sprunga kemur
á rúðuna. Við getum þó alveg gert
við gamlar skemmdir líka en þá er
sú hætta fyrir hendi að vatn eða
óhreinindi hafi komist í skemmd-
ina og það næst aldrei alveg úr.
En það er þó hægt að lagfæra
meirihluta skemmda sem koma í
rúður,“ segir Sigurður að lokum. n