Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Qupperneq 10
10 Fréttir Vikublað 9.–11. febrúar 2016
Hluturinn í Borgun rauk upp
stuttu eftir yfirtöku ríkisins
n 63% hlutur Íslandsbanka margfalt verðmætari en nemur bókfærðu virði n Kröfuhafar framseldu bankann nokkrum dögum fyrir sölu
H
lutur Íslandsbanka í greiðslu-
kortafyrirtækinu Borgun
er margfalt verðmætari en
gengið var út frá þegar kröf-
uhafar slitabús Glitnis sam-
þykktu í október 2015 að afhenda
ríkinu 95% hlut sinn í bankanum án
endurgjalds. Þannig er allt útlit fyrir
að 63,47% eignarhlutur Íslandsbanka
sé yfir tíu milljörðum króna verð-
meiri en bókfært virði hans gerir ráð
fyrir en samkvæmt nýlegu verðmati
sem KPMG ráðgjafafyrirtækið fram-
kvæmdi er hlutafé Borgunar metið á
19 til 26 milljarða króna. Er hlutur Ís-
landsbanka í greiðslukortafyrirtæk-
inu því metinn á allt að 16,5 milljarða
króna en það er hærri fjárhæð en sem
nemur bókfærðu virði allra dótturfé-
laga bankans í árslok 2014.
Aðeins tveimur vikum eft-
ir að kröfuhafar Glitnis samþykktu
veigamiklar breytingar á fyrirliggj-
andi tillögum sínum vegna stöð-
ugleikaframlags til íslenskra stjórn-
valda, þar sem mestu munaði um að
þeir afsöluðum sér öllum hlut sínum
í Íslandsbanka, var tilkynnt um kaup
Visa Inc. í Bandaríkjunum á Visa
Europe fyrir 21,2 milljarða evra. Þau
viðskipti færa eigendum Borgunar –
og Valitor – vel á annan tug milljarða
í tekjur sem um leið eykur verulega
markaðsverðmæti þessara félaga.
Hluturinn kom aldrei til tals
Íslenska ríkið, sem er eigandi að
öllu hlutafé Íslandsbanka, mun því
að óbreyttu hagnast umtalsvert á
því að bankinn hafi verið framseld-
ur til ríkisins í stað þess að söluand-
virði hans yrði deilt með kröfuhöfum
samkvæmt afkomuskiptasamningi,
eins og upphaflega var ráðgert. Sam-
tímis því að kröfuhafar Glitnis sam-
þykktu að framselja 95% hlutinn
í Íslandsbanka var heimild þeirra
til að skipta út lausum krónueign-
um yfir í erlendan gjaldeyri hækk-
uð um 52 milljarða. Ef kröfuhöfum
Glitnis hefði verið kunnugt um að
þessi eign Íslandsbanka – ríflega 63%
eignarhlutur í Borgun – væri mun
verðmætari en bókfært virði gæfi
til kynna þá má telja afar líklegt að
þeir hefðu farið fram á að þeim yrði
heimilað að taka út enn meiri krónu-
eignir úr landi. Slíkt kom hins vegar
aldrei til tals í samskiptum kröfuhafa
og fulltrúa þeirra við ráðgjafa stjórn-
valda, samkvæmt heimildum DV.
Stöðugleikaframlag Glitnis til stjórn-
valda nemur um 230 milljörðum
króna miðað við bókfært virði þeirra
eigna sem voru framseldar en 95%
hlutur í Íslandsbanka var þar af met-
inn á 185 milljarða.
Greint var frá því í Morgunblað-
inu síðastliðinn föstudag að sam-
kvæmt virðismati sem KPMG vann
fyrir stjórn Borgunar væri fyrirtæk-
ið metið á allt að 26 milljarða króna
ef tekið væri fullt tillit til þeirra tekna
sem yfirtaka Visa Inc. á Visa Europe
myndi skila Borgun. Það þýðir að
sá 31,2% hlutur sem Landsbankinn
seldi í nóvember 2014 til hóps fjár-
festa og æðstu stjórnenda Borgun-
ar er metinn á bilinu 6 til 8 milljarð-
ar en söluverð hans var hins vegar
aðeins tæplega 2,2 milljarðar. Hefur
verðmæti hans því ríflega þrefaldast
á aðeins einu ári. Landsbankinn hef-
ur sagt að hann hafi á þeim tíma ekki
getað séð fyrir þær miklu tekjur sem
Borgun myndi fá í sinn hlut við sölu
Visa Europe.
Höfnuðu 9,5 milljarða boði
Stjórnendur Íslandsbanka hafa
einnig tekið í sama streng, eins og
sagt hefur verið frá í DV, en í júní
2014 höfnuðu þeir tilboði hóps fjár-
festa og stjórnenda Borgunar í hlut
bankans í félaginu. Var tilboðið sam-
hljóða því sem Landsbankinn sam-
þykkti stuttu síðar í hlut sinn í Borg-
un. Ríflega ári síðar bauðst breska
greiðslumiðlunarfyrirtækið UPG til
að kaupa allt hlutafé Borgunar á 15
milljarða króna sem hefði þýtt að
þeir fjármunir sem hefðu runnið til
Íslandsbanka við slíka sölu hefðu
verið um 9,5 milljarðar. Því tilboði
var hins vegar hafnað af Íslands-
banka. Sú ákvörðun virðist hafa ver-
ið skynsamleg enda bendir núna allt
til þess að hlutur bankans í Borgun
sé enn meira virði.
Í reikningum Íslandsbanka er ekki
gerð sérstaklega grein fyrir því hvað
hlutur bankans í dótturfélagi sínu
Borgun er metinn á. Hins vegar ligg-
ur fyrir að Íslandsbanki mat virði sjö
hlutdeildarfélaga sem bankinn eign-
aðist í árslok 2011 við yfirtöku á Byr
sparisjóði, þar á meðal 22% hlut í
Borgun, á samtals 1,1 milljarð króna.
Því er ljóst að 22% hluturinn í Byr hef-
ur á þeim tíma aðeins verið metinn
á hundruð milljóna króna miðað við
kostnaðarverð. Í kjölfar yfirtökunnar
á Byr náði Íslandsbanki yfirráðum í
Borgun með meira en 60% eignarhlut
og hefur greiðslukortafyrirtækið því
eftir það verið flokkað sem dótturfé-
lag í reikningum bankans.
Dótturfélög á kostnaðarverði
Í ársreikningi móðurfélags Íslands-
banka fyrir árið 2014 eru eignarhlut-
ir í öllum dótturfélögum bankans
bókfærðir á tæplega 13 milljarða
króna. Fyrir utan 63,5% hlut í Borg-
un er þar um að ræða meðal annars
félög á borð við Íslandssjóði, All-
ianz á Íslandi, Frumherja, Mið-
engi, eignarhaldsfélag sem heldur
utan um fullnustueignir og rekstr-
arfélög sem enduðu í fangi bank-
ans, auk fjölmargra smærri félaga.
Í árslok 2014 námu eignir Miðengis
ríflega 6,5 milljörðum. Fram kemur
í ársreikningi Íslandsbanka að fjár-
13. mars 2014 Fjár-
festahópurinn gerir tilboð í
alla hluti Landsbankans og
Íslandsbanka í Borgun.
27. júní 2014
Íslandsbanki ákveður að
selja ekki eignarhlut sinn
í Borgun né kaupa hlut
Landsbankans í greiðslu-
miðlunarfyrirtækinu.
25. nóv. 2014 Samningur kemst á og
salan gerð opinber.
27. nóv. 2014 Kjarninn greinir
frá hluta fjárfestahópsins og að kaupin
hafi farið fram á bak við luktar dyr.
Febrúar 2015 Aðalfundur
Borgunar ákveður að greiða út
800 milljónir króna í arð til hlut-
hafa fyrirtækisins.
20. okt. 2015
Kröfuhafar samþykkja að
framselja 95% eignarhlut
Glitnis í Íslandsbanka til
íslenska ríkisins.
2. nóv. 2015
Tilkynnt um
yfirtöku Visa Inc.
á Visa Europe fyrir
21,2 milljarða evra.
3. júlí 2014
Hópurinn
gerir tilboð í hlut
Landsbankans
eingöngu. Tilboðið
nemur 2.184 millj-
ónum króna fyrir
öll 31,2% bankans.
Eignarhluturinn
var bókaður á 1.159
milljónir í uppgjöri
bankans einungis
fjórum dögum
áður.
Persónugerður markpóstur
er mælanlegur miðill og árangursríkur
www.umslag.is2010- 2014
Umslag tryggir hámarksárangur við
útsendingu markpósts
• Mismunandi skilaboð
• Mismunandi myndir
• Mismunandi markhópar
Við getum prentað nöfn og heimilisföng á allan mark-
póst. Stór og lítil upplög. Markhópalistar eru í boði sé
þess óskað eða við áritum eftir þínum excel lista.
}Ein prentun
*Samkvæmt könnun Gallup á meðal markaðsstjóra um notkun á miðlum árið 2015 mun markpóstur vera næsta val á eftir internetinu.
31%
auglýsenda ætla að
nota markpóst meira
árið 2015*
- hvað ætlar þú að gera?
Haraldur Guðmundsson
Hörður Ægisson
haraldur@dv.is / hordur@dv.is
Milljarða hagnaður Eigendur
Borgunar munu fá milljarða í tekjur í sinn
hlut vegna yfirtöku Visa International í
Bandaríkjunum á Visa Europe.
Fjármálaráðherra 95%
hlutur Glitnis í Íslandsbanka var
framseldur til stjórnvalda í lok
síðasta mánaðar. Er hluturinn
bókfærður á 185 milljarða.