Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Síða 11
Fréttir 11Vikublað 9.–11. febrúar 2016
Hluturinn í Borgun rauk upp
stuttu eftir yfirtöku ríkisins
n 63% hlutur Íslandsbanka margfalt verðmætari en nemur bókfærðu virði n Kröfuhafar framseldu bankann nokkrum dögum fyrir sölu
Hefur
þrefaldast í virði
Landsbankinn seldi 31,2% hlut sinn
í Borgun í nóvember 2014 á tæpa 2,2
milljarða króna. Eignarhaldsfélagið
Borgun slf., sem er meðal annars í eigu
Stálskipa, Einars Sveinssonar, fjárfestis
og föðurbróður Bjarna Benediktssonar,
fjármála- og efnahagsráðherra, og
Óskars Veturliða Sigurðssonar, fjárfestis
og stjórnarmanns í Borgun, keypti þá
24,96% hlut í greiðslumiðlunarfyrirtæk-
inu. Hin 6,24% fóru til BPS ehf. sem er
í eigu tólf æðstu stjórnenda Borgunar.
Starfsmennirnir greiddu 437 milljónir
króna fyrir eignarhlutinn en hann er í dag
metinn á 1,2 til 1,6 milljarða króna.
Samkvæmt nýju virðismati KPMG er
greiðslumiðlunarfyrirtækið nú metið á 19
til 26 milljarða króna. Eignarhaldsfélagið
Borgun á í dag 29,38% í fyrirtækinu og
nemur virði eignarhlutarins því 5,6 til 7,6
milljörðum króna. Eigendur félagsins
greiddu 1,7 milljarða fyrir 24,96% í
nóvember 2014. Eignarhluturinn sem
Landsbankinn seldi í nóvember 2014 er
nú metinn á 5,9 til 8,1 milljarð króna.
20. janúar 2016 Morgunblaðið greinir frá því að yfirtaka Visa Inc. á Visa Europe
geti fært Borgun og samkeppnisaðilanum Valitor vel á annan tug milljarða króna.
Þann sama dag segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, að fyrirtækið hafi
ekki getað séð fyrir milljarða hagnað Borgunar vegna Visa Europe. DV greinir frá því að
Landsbankinn hafi ekki gert fyrirvara um viðbótargreiðslur frá fjárfestahópnum vegna
Visa Europe þegar bankinn seldi 31,2%.
26. jan. 2016 Steinþór
Pálsson mætir mótmælendum,
í anddyri höfuðstöðva bankans,
sem gagnrýndu söluferli Borgunar.
27. jan. 2016 Fulltrúar
Bankasýslu ríkisins svara
spurningum fjárlaganefndar
Alþingis um söluna á Borgun.
29. jan. 2016
DV greinir frá því að
stjórnendur Íslands-
banka höfðu engar
upplýsingar um að
Borgun ætti rétt á
hlutdeild í söluand-
virði Visa Europe í
júní 2014 þegar bank-
inn hafnaði tilboði
fjárfestahópsins.
5. feb. 2016
Morgunblaðið greinir frá
virðismati KPMG þar sem
greiðslumiðlunarfyrir-
tækið er metið á 19 til 26
milljarða króna. Hluturinn
sem Landsbankinn seldi
hefur þrefaldast í virði.
8. feb. 2016
Borgun sendir frá
sér yfirlýsingu um
að Landsbankinn
hafi árið 2014 haft
aðgang að öllum
gögnum í tengslum
við söluna á fyrir-
tækinu.
JEPPADEKK
fyrir íslenskar aðstæður
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
Göldrótt súpa og
gómsætur humar
Eyrarbraut 3, Stokkseyri · Sími: 483 1550
info@fjorubordid.is · www.fjorubordid.is
„Hafði aðgang að öllum gögnum“
Stjórnendur Borgunar fullyrða að Landsbankinn
hafi haft aðgang að öllum gögnum í tengslum við
söluna á 31,2% hlut bankans í greiðslumiðlun-
arfyrirtækinu. Í yfirlýsingu fyrirtækisins, sem var
send út í gær, mánudag, í kjölfar stjórnarfundar
fyrirtækisins á sunnudag, segir að bankinn hafi
fengið fullan aðgang að „ítarlegum upplýsingum
um Borgun og rekstur félagsins“. Sérstakt gagna-
herbergi hafi verið útbúið og upplýsingar um
aðild og eignarhlut Borgunar í Visa Europe, og
valréttarákvæaði milli Visa Inc. og Visa Europe,
legið fyrir.
„Borgun bjó aldrei yfir upplýsingum um
hvort, hvenær né á hvaða verði Visa Europe yrði
selt, fyrr en salan var gerð opinber þann 2. nóvember 2015. Vænt hlutdeild Borgunar í söluandvirði á VISA
Europe varð ekki ljós fyrr en 21. desember sama ár. Fyrir þann tíma hafði Borgun engar forsendur til þess að
meta eignarhlut sinn í Visa Europe á annan hátt en gert var,“ segir í yfirlýsingunni.
festingar bankans
í dótturfélögum séu
bókfærðar á kostnaðarverði.
Er bókfært virði þessara eigna ekki
leiðrétt nema þá aðeins að það liggi
fyrir upplýsingar um að markaðs-
verðmæti þeirra hafi lækkað frá upp-
haflegu kostnaðarverði.
Þrátt fyrir að bókfært virði
eignarhlutarins í Borgun sé ekki sér-
staklega sundurliðað í reikningum
Íslandsbanka þá má því ljóst vera
að markaðsverðmæti hans er sem
fyrr segir margfalt meira en Borg-
un er metin á í reikningum bankans.
Hluturinn mun hins vegar ekki hafa
beina verðmætaaukningu í för með
sér fyrir bankann – og þar með rík-
issjóð sem eiganda – nema þegar og
ef hann verður seldur og hægt verð-
ur að bókfæra hagnað við slíka sölu.
Þær milljarðatekjur sem renna til
Borgunar við sölu á Visa Europe ættu
aftur á móti færa Íslandsbanka strax
verulegan fjárhagslegan ávinning
í formi hlutdeildar í bættri afkomu
og mögulega hærri arðgreiðslum frá
Borgun. n
BPS - 5%
950 milljónir–
1,3 milljarðar
króna.
Aðrir (41) - 2,15%
408 milljónir–
560 milljónir
króna.
Íslandsbanki
63,47%
12–16,5 milljarðar króna.
Eignarhaldsf.
Borgun slf.
29,38%
5,6–7,6
milljarðar króna.