Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Page 14
14 Fréttir Erlent Vikublað 9.–11. febrúar 2016
Þrjú frumvörp í gegn
Andstæðingar Sanders hafa
fullyrt að hann hafi aldrei á ferli
sínum komið frumvarpi í gegnum
þingið. Þetta er ekki rétt. Árin
2006, 2013 og 2014 urðu laga-
frumvörp sem hann lagði fram að
lögum. Hann var að auki með-
flutningsmaður yfir 200 frum-
varpa sem orðið hafa að lögum.
Vissir þú þetta um
Bernie Sanders?
„Lýðræðislegur sósíalisti“ Sanders leggur mikla
áherslu á stéttabaráttu. Hann talar gegn misskiptingu
og kúgun og heggur sérstaklega til þeirra ríkustu. Auðsöfnun
þeirra valdi því að miðstéttin eigi ekki fyrir reikningum. Bilið
milli ríkra og fátækra hafi aldrei verið meira. Hann vill að
háskólamenntun verði ókeypis og að allir hafi aðgang að
ókeypis heilbrigðisþjónustu. Þá vill hann taka betur
á móti innflytjendum og hefur beitt sér fyrir
umhverfismálum. Hann kallar sig lýðræðis-
legan sósíalista.
Yrði sá elsti Sanders
verður 75 ára í nóv-
ember. Ronald Reagan er sá
Bandaríkjaforseti sem elstur
hefur verið kjörinn forseti. Hann
var 73 ára. Þannig yrði Sanders
elsti kjörni forseti í sögu lands-
ins. Þess má reyndar geta að
Hillary Clinton verður 69
ára þegar kjördagur
rennur upp.
Fyrsti gyðingurinn
Sanders verður fyrsti
gyðingurinn í embætti for-
seta Bandaríkjanna, nái hann
kjöri. Gyðingur hefur heldur
ekki gegnt stöðu varaforseta.
Eini gyðingurinn sem fram
að þessu hefur látið að sér
kveða í forsetakosningum er
Joe Lieberman, varaforseta-
efni Al Gore árið 2000.
Kaus gegn Íraksstríðinu Sanders hefur talað fyrir því að
dregið verði úr fjárútlátum til hernaðar og peningunum
þess í stað varið í heilbrigðisþjónustu. Sanders kaus á sínum
tíma gegn innrás í Írak og hefur sagt að stríðið sé ein verstu
mistök í utanríkisstefnu Bandaríkjanna.
Slakur námsmaður
Deildarforseti hjá
University of Chicago, þar
sem Sanders var virkur að-
gerðasinni, lagði eitt sinn
til að hann tæki sér hlé frá
námi. Sanders segist hafa
verið slakur námsmaður og
að hann hafi lært meira á
skólalóðinni en hann gerði
í kennslustofunni.
Vill meðalveginn „ Byssur í
Vermont eru ekki það sama
og byssur í Chicago eða í Los
Angeles,“ hefur Sanders sagt um
byssueign. Í Vermont séu þær
notaðar til veiða á meðan þær séu
í Chicago notaðar af ungmennum
sem drepa önnur ungmenni
– eða til að skjóta lög-
reglumenn. Hann vill
að mæst sé á miðri
leið þegar kemur
að deilunni um
skotvopnaeign.
Maður verka-
lýðsfélaganna
Sé horft er til áranna
2009–2014 eru
verkalýðsfélög í
átta af níu efstu
sætunum hvað
bakhjarla Sanders
varðar. Sheet Metal
Work ers, samtök
verkafólks í málm-
þynnuiðnaði lögðu
mest af mörkum,
27.500 dollara.
Afglæpavæðing Sanders er
hlynntur afglæpavæðingu fíkni-
efna og hefur gefið út yfirlýsingu um
lögleiðingu kannabis.
Góður ræðumaður
Sanders hefur vakið
athygli fyrir öflugar
ræður og góða fram-
setningu. Bandarískir
fjölmiðlar greindu frá
því, eftir fyrstu kapp-
ræður frambjóðenda
demókrata, að Bernie
Sanders hafi minnst
allra tafsað á orðun-
um, eða mismælt
sig. Einn frambjóð-
andi, Lincoln Chafee,
tafsaði reyndar lítið
eitt minna, en það var
vegna þess að hann
talaði miklu skemur.
Nýtur meiri stuðnings en Obama Í september
höfðu 650 þúsund bandarískir ríkisborgarar lagt
kosningaherferð Bernie Sanders lið. Það eru tvöfalt fleiri
stuðningsaðilar en Barack Obama Bandaríkjaforseti
hafði á sama tímapunkti 2007, áður en hann hlaut kjör.
Sósíalistinn Bernie Sanders hefur sótt mjög á
Hillary Clinton í aðdraganda forsetakosninganna í
Bandaríkjunum. Sanders, sem kaus gegn Íraksstríðinu og
talar fyrir ókeypis heilbrigðisþjónustu og snarhækkuðum
lágmarkslaunum, nýtur yfirburðafylgis þegar kemur
að yngri kjósendunum. Hillary hefur enn yfirhöndina í
flestum skoðanakönnunum en Sanders virðist ætla
að gera alvöru atlögu að því að verða forsetaefni
Demókrataflokksins. Hér eru nokkrar staðreyndir um
þennan óvænta keppinaut Hillary. baldur@dv.is