Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Page 17
Verkstæði og varahlutir Kynningarblað Áby rgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is9. febrúar 2016 Gæði og fyrirmyndar þjónusta hjá Mekonomen M ekonomen er ein öflug- asta varahlutaverslun á Íslandi. Verslunin sér- hæfir sig í bílavarahlut- um og aukahlutum fyrir allar bílategundir. Kjarni starfsem- innar er þjónusta við bílaverk- stæði en einnig bílaáhugamenn og almenning. Páll Gíslason einn eigenda Mekonomen á Íslandi og segir fyrirtækið leggja mikla áherslu á að bjóða upp á gæða vörur og fyrirmyndar þjónustu. Tengt versluninni og í sama húsi er verk- stæði sem rekið er undir merkjum Mekonomen: Mekonomen Bíla- verkstæði. Í Skandinavíu eru 2.200 Mekonomen Bílaverkstæði tengd verslunum. Á næstu misserum munu fleiri Mekonomen Bílaverk- stæði verða sett á laggirnar hér á landi. Hámarksgæði og nýsköpun „Helsta markmið okkar er, með ný- sköpun, hámarksgæðum og skil- virkum rekstri, að bjóða neytend- um og fagaðilum lausnir sem létta þeim lífið í bílatengdum málum,“ segir Páll. „Hugsjón okkar byggir á eftirfarandi grunnstefnu: að vera fyrsti kostur bíleigandans og létta honum lífið þegar kemur að öllu tengdu bílnum,“ segir hann. „Við seljum eingöngu vörur sem eru jafngóðar eða betri en þær sem koma „orginal“ í bílunum og þess vegna erum við með að lágmarki þriggja ára ábyrgð og upp í fimm ár, sem tryggir fyrrnefnd gæði,“ bætir hann við. Öflugur lager og vefur fyrir fagaðila MekoCat (Mekonomen Catalog) er varahlutavefur fyrir fagaðila. Hvert verkstæði hefur sinn aðgang að MekoCat. Um 11.000 bifvélavirkj- ar í Skandinavíu nota kerfið dag- lega. Hér á landi eru 400 verkstæði, bílaleigur og aðrir fagaðilar tengd- ir MekoCat. Í MekoCat sér bifvéla- virkinn hvort hluturinn er til á lag- er hér heima eða á miðlægum lager Mekonomen í Svíþjóð. Afgreiðslu- tími frá lagernum í Svíþjóð getur farið niður fyrir þrjá sólarhringa. „Frá því í apríl í fyrra höfum við stækkað lagerinn hér á landi um 90% og erum enn að. Við keyrum varahlutina út til verkstæðanna; varahluti sem bifvélavirkjarnir panta í MekoCat með nokkrum tölvusmellum í stað þess að sóa tíma sínum í að snattast út um allan bæ. Þetta er gríðarlegur sparnaður fyrir verkstæðið og þann sem greið- ir fyrir viðgerðina,“ segir Páll. Uppgerðir varahlutir með þriggja ára ábyrgð „Við bjóðum einnig uppgerða varahluti, til dæmis bremsudælur, startara, rafala, stýrismaskínur og fleira sem er með þriggja ára ábyrgð,“ segir Páll. „Við erum einnig með ýms- ar rekstrarvörur fyrir bæði verkstæði og einstaklinga,“ bætir hann við. „Það er gaman að nefna að við erum byrj- aðir með nýja verkfæralínu frá Sonic sem eru hágæðaverkfæri á mjög góðu verði,“ segir hann í framhaldinu og hvetur hann því fólk að koma við í verslun Mekonomen og sjá hvað þeir hafa upp á að bjóða. Ný vefverslun væntanleg Síðar á þessu ári verður opnuð vef- verslun fyrir almenning á heima- síðu Mekonomen að sögn Páls þar sem boðið verður upp á nútíma lausnir ásamt nýju appi sem er hugsað til að einfalda samskiptin við viðskiptavini og auka aðgengi. Sænskt fyrirtæki í grunninn Verslun Mekonomen var opnuð í maí 2011 á Íslandi og hafa vinsæld- ir hennar aukist verulega með ár- unum á meðal Íslendinga að sögn Páls. Aðalstöðvar Mekonomen eru í Svíþjóð og er félagið skráð í Kauphöllinni í Stokkhólmi. Um er að ræða stærsta fyrirtæki í Skandinavíu á sviði bílavarahluta sem býður upp á breitt úrval af hagkvæmum og snjöllum lausnum fyrir neytendur og fagaðila. Staðsett í Garðabæ Mekonomen er staðsett í Smiðsbúð 2 í Garðabæ og er opið hjá þeim alla virka daga frá kl. 08.00 til 18.00 alla virka daga. Kjarnastarfsemin er þjónusta við verkstæðin. „Hér safnast upp mikil reynsla í gegnum samskiptin við verkstæðin sem nýt- ist almenningi sem kemur í búðina til okkar. Alveg sama hvort þig vant- ar hjólkopp eða gírkassa þá er um að gera að koma og kanna hvað við getum gert fyrir þig,“ segir Páll að lokum. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.