Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Side 19
Vikublað 9.–11. febrúar 2016 Kynningarblað - Verkstæði og varahlutir 3
Í
Skútuvogi 13 er bílavarahluta-
verslunin og bílaverkstæðið
Bíla-Doktorinn staðsett. Það
sinnir almennum bílaviðgerð-
um og er á sama tíma einnig
smurstöð. Rúnar Sigurjónsson,
vélvirki og eigandi Bíla-Dokt-
orsins, segir fyrirtækið þjónusta
mest Mercedes-Benz, Volkswagen,
Audi og Skoda með viðgerðum
og varahlutasölu, en þeir smyrji
og geri við fjölda annarra bíla-
tegunda.
Áhersla lögð á gæðavörur
„Varahlutaverslun okkar hefur
upp á að bjóða marga af algeng-
ustu varahlutum fyrir fyrrnefndar
tegundir. Við leggjum áherslu á að
bjóða upp á gæðavörur sem upp-
fylla ströngustu kröfur bifreiðar-
eigenda og eftirlitsaðila í Þýska-
landi, þaðan sem megin uppistaða
af okkar vörum kemur,“ segir
Rúnar. „Varhlutaverslunin legg-
ur áherslu á að nota öflug upp-
lýsingakerfi til að gera afgreiðslu
varahluta eins nákvæma og rétta
og mögulegt er,“ bætir hann við.
Þekktir fyrir vönduð
vinnubrögð
Bíla-Doktorinn er ört vaxandi
fyrir tæki sem á stóran hóp tryggra
viðskiptavina sem margir hverjir
hafa átt farsæl viðskipti við versl-
unina frá upphafi. „Það er mark-
mið okkar að veita viðskiptavin-
um okkar góða þjónustu byggða
á þekkingu og langri reynslu á
viðhaldi og umhirðu hvers kyns
bifreiða,“ segir Rúnar. „Okkar að-
alsmerki er vönduð vinnubrögð
sem skila sér í betra umferðar-
öryggi og áreiðanleika þeirra öku-
tækja sem við sinnum viðgerðum
á og seljum varahluti í,“ segir hann
í framhaldinu.
Saga á bak við nafn
fyrirtækisins
Nafn fyrirtækisins var dregið af
viðurnefni Rúnars á meðal bíla-
áhugamanna. „„Herr doktor“, kalla
þeir mig,“ segir Rúnar. Hann hefur
unnið nærri alla sína starfsævi við
bíla og vinnuvélar og er einn þekktasti
áhugamaður um Mercedes-Benz-
bíla á Íslandi en hann hefur haft það
að áhugamáli að gera upp og varð-
veita fornbifreiðar
af þeirri gerð,
ásamt því að eiga
einn bíl úr hópi
þeirra elstu hér á
landi, Chevrolet
árgerð 1931.
Bjóða upp á almennar
bílaviðgerðir
„Við bjóðum upp á flestallar almennar
bílaviðgerðir,“ segir Rúnar. „Öll um-
skipti á slithlutum og lagfæringar
á biluðu gangverki er eitthvað sem
er okkar daglega starf. Þó svo að við
bjóðum flestar gerðir bíla velkomn-
ar í viðgerð þá höfum við að mestu
leyti sérhæft okkur í Mercedes-Benz,
Volkswagen, Skoda og Audi eins
og áður sagði og búum við því yfir
nokkurri sérþekkingu á þeim,“ segir
Rúnar. Hjá Bíla-Doktornum eru fimm
starfsmenn; tveir bifvélavirkjar, tveir
vélvirkjar og einn starfsmaður sinnir
móttöku og varahlutaverslun. n
Bíla-Doktorinn – einstakt bíla-
verkstæði og varahlutaverslun