Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Qupperneq 24
Vikublað 9.–11. febrúar 20168 Verkstæði og varahlutir - Kynningarblað
Sérhæfing í varahlutum
í þýskar bifreiðar
B
ifreid.is er vönduð
varahlutaverslun sem sér-
hæfir sig í varahlutum fyrir
þýska bíla. Á 16 árum hef-
ur fyrirtækið komið sér
upp verðmætum gagnagrunni.
Fyrirtækið kaupir einvörðungu
hágæðavöru af þýskum birgjum
og kemur þá sérþekkingin að góð-
um notum þegar útvega þarf réttu
varahlutina á hagstæðu verði.
Bifreid.is útvegar viðskiptavin-
um varahluti á allt að 30 til 50%
lægra verði en býðst í bílaumboð-
um. Þróttmikil reynsla fyrirtækis-
ins gerir því kleift að hafa tiltæka
rétta varahluti á lager en bifreid.is
fær sendingar þrisvar í viku til að
fylla á viðamikinn og fjölbreyttan
varahlutalager sinn.
Ný og skilvirkari varahluta-
verslun
Bifreid.is opnaði á dögunum nýja
varahlutaverslun að Hjallahrauni
4 í Hafnarfirði, í enda hússins sem
hýsir Tækniþjónustu bifreiða sem
einnig er í eigu hinnar samheldnu
fjölskyldu. Þjónustan er nú enn
skilvirkari og sérhæfðari. Bifreid.
is býður upp á hágæða varahluti
frá Þýskalandi og er úrvalið nú
enn fjölbreyttara en áður. Með-
al annars er boðið upp á mikið
úrval af varahlutum og ýmsum
aukabúnaði, sem fram að þessu
hefur aðeins fengist hjá umboðun-
um. Á lager eru mikilvægustu
varahlutirnir í þýskar bifreiðar
og líka er boðið upp á hraða sér-
pöntunarþjónustu. Fyrir eigend-
ur BMW, BENZ, VW, AUDI, OPEL,
SKODA, PORSCHE eða MINI er
Bifreid.is klárlega rétti staðurinn.
Ómetanleg reynsla og
heildstæð ráðgjöf
Bifreid.is leggur metnað sinn í
persónulega og faglega þjónustu.
Ómetanleg reynsla fyrirtækis-
ins gerir að verkum að hægt er
að bjóða upp á heildstæða ráð-
gjöf hvað varðar varahluti og er
starfsfólkið sérhæft til að finna
réttu varahlutina fyrir viðskipta-
vininn. Umhverfi nýju verslunar-
innar býður
fólk velkom-
ið og er bæði
hlýlegt og
heimilis-
legt. Það er
nokkurs
konar
„retro“
stemning
sem svífur
yfir vötn-
um. Við-
skiptavinir
koma inn
í gamal-
dags stofu,
ljúf tónlist berst frá
antíkútvarpi og fallegt fiskabúr
er á veggnum. Fólk getur tyllt sér
niður, fengið sér kaffi og litið í
blöð. Þetta hefur komið viðskipta-
vinum skemmtilega á óvart þar
sem þetta er ekki sú upplifun sem
fólk á að venjast í þessum geira.
Bifreid.is er að Hjallahrauni 4 í
Hafnarfirði. Opið er virka daga frá
kl. 08.00 til 18.00. Pöntunarsími er
555-0885 og netfangið er bifreid@
bifreid.is n
T
ækniþjónusta bifreiða sér-
hæfir sig í viðgerðum og
þjónustu við þýskar bifreið-
ar. Jón Hafþór Marteins-
son og fjölskylda hans reka
fyrirtækið en Jón Hafþór er lærð-
ur kerfistæknir ( Systemtechniker)
frá Bosch í Þýskalandi. Fyrirtækið
var stofnað fyrir 16 árum og hefur
það ávallt verið að Hjallahrauni 4
í Hafnarfirði. Áður tók fyrirtækið
að sér þjónustu við þýskar bifreið-
ar samhliða því að selja varahluti.
Þar sem varahlutasalan hefur nú
flutt í sérverslun hefur Tækni-
þjónusta bifreiða stækkað þjón-
ustuverkstæði sitt og betrumbætt
aðstöðuna. Nú býðst eigendum
þýskra bifreiða enn betri og viða-
meiri þjónusta.
Vinaleg móttaka og vönduð
vinnubrögð
Mikil reynsla liggur að baki Tækni-
þjónustu bifreiða. Sérhæfingin
hefur ávallt legið í þýskum bif-
reiðum og því mikil þekking innan
fyrir tækisins á því sviði. Starfsfólk-
ið er vel í stakk búið til að þjónusta
þýskar bifreiðar og hefur reynslan
nýst vel er kemur að því að greina
ýmsar bilanir. Þar að auki er starfs-
fólk fyrirtækisins rómað fyrir eins-
taka hjálpsemi og vönduð vinnu-
brögð. Tækniþjónusta bifreiða er
fjölskyldufyrirtæki og er óhætt að
segja að margir starfsmenn þess
hafi alist upp innan veggja fyrir-
tækisins. Sem dæmi má nefna að
tveir synir Jóns Hafþórs vinna inn-
an fyrirtækisins, annar hjá Tækni-
þjónustunni og hinn hjá Bifreid.
is. „Hér hjálpast allir að og leggja
hönd á plóg þegar mikið er að
gera. Börnum er velkomið að
heimsækja foreldrana í vinnuna;
þeim er einfaldlega fundið verk-
efni við hæfi og því gjarnan líf og
fjör í fyrirtækinu,“ segir Jón.
Vestfirsku ræturnar sterkar
„Í hádeginu hittast starfsmenn á
efri hæð verslunarinnar og gæða
sér á heimatilbúnum fjölskyldu-
mat, framreiddum af ættmóður-
inni. Oft er um að ræða mat sem
ekki allir eiga venjast dagsdaglega,
sérstaklega ungu drengirnir sem
hafa starfað í styttri tíma,“ segir
Jón. Fjölskyldan er ættuð úr Ísa-
fjarðardjúpi og er árlega haldin
vegleg skötuveisla með aðföngum
úr djúpinu, en sú veisla er löngu
orðin fastur viðburður hjá mörg-
um viðskiptavinum Tækniþjón-
ustu bifreiða. n
Fjörugt fjölskyldufyrirtæki
– allir leggja hönd á plóg