Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Side 32
24 Menning Vikublað 9.–11. febrúar 2016
Þ
rjár konur koma saman
þar sem enginn sér til
og forma einhvers konar
dýrkunarreglu (cult) eða
aðgerðasinnabandalag.
Dagrún, sem leikin er af Elmu
Lísu Gunnarsdóttur, er ný í hópn-
um og lendir því sjálfkrafa neðst í
virðingarstiganum. Hún er í upp-
hafi passlega hædd og smáð af
hinum tveimur sem berjast sín á
milli um forystuna en þær gæta
þess líka að halda Dagrúnu áfram
í liðinu. Svo semja þær hlægi-
lega langan gildislista sem þær
leggja samviskusamlega á minnið.
Stjórnanda hópsins reynist þó
auðvelt að breyta gildunum og
ekki hjálpar að stjórnarskipti eru
tíð.
Andúð, biturð, reiði
Það er ekki ljóst strax í upphafi
hvaða sameiginlega andúð bindur
þessar þrjár konur saman en klingj-
andi klisjur úr íslensku þjóðlífi sem
hljóma með reglubundnu millibili
gefa strax ákveðnar vísbendingar.
Samtöl þeirra gera lítið til að dýpka
persónusköpunina en hver um sig
fær eintal við salinn þar sem þær út-
skýra stöðu sína.
Dagrún er nýlega komin með fullt
örorkumat og leitar að hlutverki í lífi
sínu eftir að hafa slitið sambandi við
ofbeldisfullan sambýlismann. Hinar
tvær tengjast kirkjunni annars vegar
og borgarastéttinni hins vegar. Þær
hafa skúrað hrunið burt og kjósa að
horfast ekki í augu við ástæður þess
að þær sitja nú neðar í þjóðfélags-
stiganum en þær eru tilbúnar til að
viðurkenna. Þær eru bitrar, reiðar og
til alls líklegar þegar þær ákveða að
láta til skara skríða gegn innflytjend-
um sem hingað streyma og þær hafa
sannfærst um að eigi sök á stöðu
þeirra.
Yfirborðsleg nálgun
Það er stutt síðan leikstjóri verksins,
Marta Nordal, frumsýndi áhugavert
heimildaverk um Nazanin Askari,
pólitískan flóttamann sem dvelur
hér á landi. Þar var kafað djúpt eftir
sannleikanum í einlægri og áhrifa-
mikilli frásögn. Í þessu verki er
sjónum beint að þjóðernissinnum,
afstöðu þeirra og voðaverkum gagn-
vart innflytjendum. Þessar hreyf-
ingar fara stækkandi allt í kringum
okkur og áhrifamáttur þeirra er aug-
ljós.
Þess vegna voru það vonbrigði
hversu yfirborðsleg nálgun verksins
var af hálfu höfundar, Sölku Guð-
mundsdóttur. Það er allt í lagi að nota
steríótýpur kommentakerfanna,
hlustenda útvarps Sögu, pólitískra
og trúarlegra andstæðinga sinna,
en það þarf að fylgja sannfærandi
innsýn í líf þeirra og sögu, hvort sem
skrifa skal ádeilu eða farsa og ekki
sakar að nálgast viðfangsefni sitt af
virðingu. Að öðrum kosti mun verkið
einungis höfða til eigin þjóðfélags-
hóps og ekki hafa þau víðtæku áhrif
sem leikhús getur megnað og ég
efast ekki um að lagt hafi verið af stað
með í upphafi.
Náðu ekki tengingu
Leikkonurnar þrjár, Arndís Hrönn
Egilsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir
og María Heba Þorkelsdóttir, þekkja
vel inn á hver aðra, eru skemmti-
lega ólíkar og eiga að baki frábærar
leiksýningar eins og Hystory eftir
Kristínu Eiríksdóttur. Í þetta sinn
náðu þær ekki sannfærandi tengingu
við áhorfendur fyrr en í lokaatriðinu
sem var kraftmikið og mjög vel út-
fært.
Tónlist og myndefni, sem kastað
var á tjald á sviðinu, mynduðu
dramatískt samband og virkuðu vel.
Bæði sviðsmynd og búningar voru
fábrotin framan af en tóku svo flug-
ið líkt og sýningin öll í lokaatriðinu
sem var íburðarmikið og óvæntur
hápunktur á verki sem að öðru leyti
var áhrifalítið. n
Vonda fólkið
Bryndís Loftsdóttir
ritstjorn@dv.is
Leikhús
Old Bessastaðir
Höfundur: Salka Guðmundsdóttir
Leikstjórn: Marta Nordal
Leikarar: Arndís Hrönn Egilsdóttir, Elma Lísa
Gunnarsdóttir og María Heba Þorkelsdóttir
Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson
Búningar: Helga I. Stefánsdóttir
Lýsing: Arnar Ingvarsson
Tónlist: Högni Egilsson
Hljóðsmiður: Marteinn Hjartarson
Sýnt í Tjarnarbíói
„Það voru vonbrigði
hversu yfirborðsleg
nálgun verksins var.
Úr listheiminum
Ný kóngulóartegund, svört tarantúla, sem fannst í ná-grenni við Folsom- fangelsið
í Kaliforníu hefur verið nefnd
eftir kántrígoðsögninni Johnny
Cash – sem samdi
þekkt lag um fang-
elsið og spilaði
á nokkrum
tónleikum
fyrir fangana.
Aphonopelma
johnnycashi er ein
af fjórtán tarantúlu-
tegundum sem voru uppgötv-
aðar á svæðinu og nefndar nú á
dögunum. Karldýrið er næstum
því algjörlega kolsvart og þótti
því við hæfi að nefna það eftir
Cash, sem var oft nefndur „Man
in black.“
Eistneska ljóðskáldið, heim-spekingurinn og samfélags-rýnirinn Jaan Kaplinski hlaut
á föstudag Evrópsku
bókmenntaverð-
launin fyrir verk
sín. Borgaryfir-
völd í frönsku
borginni Stras-
bourg og franska
utanríkis- og
Evrópumálaráðu-
neytið standa að verð-
laununum sem hafa verið veitt
árlega frá árinu 2006. Ein bók
eftir Kaplinski hefur verið þýdd á
íslensku, ljóðabókin Við höfum
ekki sést lengi sem kom út í þýð-
ingu Hjartar Pálssonar árið 1995.
Fjöldi stórstjarna úr kvik-myndaheiminum kemur fram í auglýsingamyndbandi þar
sem yfirvöld eru hvött
til að veikja ekki
starfsemi breska
ríkisútvarpsins
BBC, en um
þessar mundir
fer fram alls-
herjar endur-
skoðun á rekstri
stofnunarinnar. Mynd-
bandið er framleitt af óháðum
samtökum og slagorðið er: „Ekki
láta BBC verða að minningu.“ Í
myndbandinu kemur fjöldi fólks
fram, meðal annars leikararnir
Judi Dench, Ian McKellan, Steve
Coogan og Óskarsleikstjórinn
Danny Boyle, og segir frá minn-
ingum sínum um BBC.
og
Smáratorgi · Korputorgi
HUNDAFÓÐUR
FÆST HJÁ OKKUR