Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Qupperneq 38
Vikublað 9.–11. febrúar 201630 Fólk
ATN Zebra 16
Z-spjótlyfta • Fjórhjóladrifin
• Diesel
• Vinnuhæð: 16,4m
• Pallhæð: 14,4m
• Lágrétt útskot: 9,3m
• Lyftigeta: 230kg
• Aukabúnaður: Rafmagns-
og lofttenglar í körfu.
• Til afgreiðslu strax
Ýmsar aðrar ATN spjót- og
skæralyftur til afgreiðslu
með stuttum fyrirvara.
Þau kvöddu allt of snemma
Þeir sem guðirnir elska deyja ungir segir á einum stað.
Heimurinn hefur átt hæfileikaríkar barnastjörnur
sem glöddu aðdáendur sína á hvíta tjaldinu. Sumar
héldu á fullorðinsárum áfram á sigurbraut og má þar
sem dæmi nefna Elísabeth Taylor og Nathalie Wood.
Aðrar hættu leik og sneru sér að öðrum störfum og
þar er meðal er frægasta barnastjarna hvíta tjaldsins
fyrr og síðar, Shirley Temple sem gekk í utanríkis
þjónustu Bandaríkjanna. Svo eru barnastjörnurnar
sem ekki komust á fullorðinsár heldur létust ungar.
Barnið í Poltergeist Steven Spielberg uppgötvaði Heather O'Rourke þegar hún var fimm ára gömul og fékk
henni hlutverk í hryllingsmyndinni Poltergeist þar sem yfirnáttúruleg öfl veittust að henni. Hún endurtók hlutverkið í framhaldsmyndum.
Hún var einungis 12 ára gömul þegar hún dó af völdum hjartabilunar.
Drengurinn í Mary Poppins Matthew Garber
öðlaðist heimsfrægð sem Michael Banks í Mary Poppins. Hann þótti uppátækjasamur og
fjörugur drengur og Karen Dotrice, sem lék systur hans í Mary Poppins, minntist hann með
mikillil hlýju og sagði að það hefði ekki verið nándar nærri eins gaman að leika í myndinni án
hans. Árið 1977 var Garber staddur á Indlandi þegar hann veiktist af brisbólgu og lést 21 árs.
Erfiður unglingur í The Client Brad Renfro var 11
ára gamall þegar hann lék í spennumyndinni The Client á móti Susan Sarandon og Tommy
Lee Jones. Myndin sló í gegn og frammistaða hins unga leikara var eftirminnileg. Renfro lék
í rúmlega 20 kvikmyndum en varð snemma háður áfengi og eiturlyfjum. Hann var nokkrum
sinnum handtekinn með ólögleg efni í sínum fórum og sat í fangelsi. Hann var 25 ára gamall
þegar hann fannst látinn á heimili sínu. Dánarorsök var eiturlyfjaneysla.
Rödd Péturs Pan
Bobby Driscoll var ein þekktasta
barnastjarna síns tíma og lék í mörgum
vinsælum myndum fyrir Disney, þar á meðal
Treasure Island. Hann ljáði Pétri Pan rödd
sína í Disney-teiknimyndinni. Árið 1950
fékk hann sérstök Óskarsverðlaun fyrir
frammistöðu sína í myndunum So Dear to
My Heart og The Window. Hann varð háður
eiturlyfjum og lést af þeim völdum árið1968,
31 árs gamall svo til eignalaus. Ung stórstjarna River Phoenix hóf leikferil sinn tíu ára gamall og
varð á skömmum tíma átrúnaðargoð unglinga víða um heim. Hann lék meðal annars í mynd-
unum Stand By Me, Running on Empty og My Own Private Idaho. Á ferlinum vann hann til
ýmissa viðurkenninga og verðlauna enda gríðarlega hæfileikamikill. Hann var 23 ára þegar
hann hné niður á gangstétt fyrir utan næturklúbb og lést. Dánarorsök var hjartabilun vegna
eiturlyfjanotkunar.
Dóttirin í The
Patriot Skye McCole Bartusiak
hóf feril sinn snemma í myndinni The Cider
House Rules og var átta ára gömul þegar
hún lék dóttur Mel Gibson í myndinni The
Patriot. Kvikmyndahlutverkin urðu mun
fleiri. Hún lést árið 2014 á heimili sínu, 21 árs.
Hún hafði þjáðst af flogaveiki og tekið lyf
við veikindunum. Lyfjablanda sem hún tók
reyndist banvæn.