Fréttablaðið - 07.04.2017, Side 2

Fréttablaðið - 07.04.2017, Side 2
Vinir njóta enn vinsælda Fullt út úr dyrum Þættirnir um systkinin Ross, Monicu og hina vinina í New York njóta enn gríðarlegra vinsælda þótt þeir séu komnir svolítið til ára sinna. Fullt var út úr dyrum þegar spurningakeppni um Vini fór fram á Lebowski bar í miðborg Reykjavíkur í gær. Fréttablaðið/Eyþór Veður Sunnan- og suðvestangola eða kaldi með súld eða rigningu í dag en þurrt að mestu austan til síðdegis. Gengur í hvassa norðaustanátt með norður- ströndinni og á Vestfjörðum í kvöld með slyddu eða rigningu. sjá síðu 20 LögregLumáL Mennirnir tveir frá Rúmeníu, sem lögreglan er nú að rannsaka hvort séu fórnarlamb mansals, gáfu sig fram við  Rauða krossinn strax við komuna til lands- ins. Þeir bera því við að hafa orðið fyrir ofbeldi í öðru landi þar sem þeir voru gerðir út. Framburður mannanna gefur tilefni til að lög- regla rannsaki hvort ekki einungis sé um vinnumansalsmál að ræða, heldur einnig kynlífsmansal. Mennirnir komu til landsins um síðustu helgi frá ótilgreindu landi innan Schengen-svæðisins og leit- uðu á náðir Rauða krossins. Þeir eru báðir á þrítugsaldri. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur eng- inn verið handtekinn vegna málsins enn sem komið er en lögregla segir að verið sé að reyna að sannreyna sögu mannanna. Mennirnir hafi ekki getað bent á það hver átti að taka á móti þeim hér á landi. „Í grunninn er grunur um mansal en hvort það er nauðungarvinna eða kynlífsmansal er ekki hægt að staðfesta núna,“ segir Snorri Birgis- son, sem fer fyrir mansalsteymi lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Heimildir Fréttablaðsins herma að sá sem átti að sækja mennina við komuna til landsins hafi látið sjá sig en mennirnir segja að þeir hafi látið sig hverfa annað áður en til kynna við viðkomandi kom. „Þetta mál er bara alveg á frum- stigi. Hverjir, hvar, hvenær og svo framvegis. Við erum að meta frá- sögn einstaklinganna.“ Undanfarin ár hefur lögreglan haft í nógu að snúast við að rann- saka vinnumansal en minna hefur borið á rannsóknum vegna kyn- lífsmansals.    Fréttablaðið greindi ítarlega frá rannsókn á vinnuman- salsmáli innan Félags heyrnarlausra á síðasta ári og mansals hjá undir- fyrirtæki IceWear í Vík í Mýrdal. Samkvæmt áætlun síðustu ríkis- stjórnar gegn mansali á Íslandi er mansal sagt vera hagnýting á ein- staklingum í kynferðislegum til- gangi, vinnuþrælkun eða refsiverð hagnýting á líkama einstaklings til dæmis með fíkniefnasmygli eða líf- færasölu. Einstaklingar eða hópar einstaklinga séu notaðir í ábata- skyni með einum eða öðrum hætti. snaeros@frettabladid.is Rannsaka hvort neyða átti mennina til kynlífs Mennirnir komu til landsins með flugi um síðustu helgi. Heimildir Frétta- blaðsins herma að þeir séu vegabréfslausir. Fréttablaðið/andri Marinó Í grunninn er grunur um mansal en hvort það sé nauðungar- vinna eða kynlífsmansal er ekki hægt að staðfesta núna. Snorri Birgisson lögreglumaður Framburður tveggja manna á þrítugsaldri frá Rúmeníu, sem komu hingað til lands um síð- ustu helgi, gefur tilefni til að rannsaka hvort þeir hafi verið gerðir út í kynlífsmansal. Menn- irnir greina frá ofbeldi og kúgun í öðru landi. Rannsókn lögreglu er á frumstigi og enginn hefur verið handtekinn. PÁSKATILBOÐ Vegna hagstæðs gengis og tollalækkana þá lækkum við verðin á grillum Við lækkum verðin! Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400 69.900 Grillbúðin • 3 brennarar úr ryðfríu stáli • Postulínsemalerað eldhólf • Grillgrindur úr pottjárni • PTS hitajöfnunarkerfi • Kveiking í öllum tökkum • Niðurfellanleg hliðarborð • Tvöfalt einangrað lok • Postulínsemaleruð efri grind • Hitamælir • Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu undir öllu grillinu • Vönduð yfirbreiðsla fylgir Niðurfellanleg hliðarborð • Afl 10,5 KW Opið virka daga 11-18 Laugardag 11-16 Sunnudag 12-16 Nr. 12934 garðabær Samkomulag hefur náðst milli ríkissjóðs og Garðabæjar um að síðarnefndi aðilinn kaupi jörðina Vífilsstaði. Um er að ræða alls 202 hektara sem er svæðið í kringum Vífilsstaðaspítala, svæði austan Vífilsstaða (Skyggnir), núverandi golfvallarsvæði GKG, friðland í Vífilsstaðahrauni (Svínahrauni) og Rjúpnahæð á móts við Kjóavelli. Kaupverðið nemur 558,6 millj- ónum króna og byggir það á mati á grunnverði landsins sem aðilar stóðu sameiginlega að. Samningur- inn gerir ráð fyrir að til viðbótar grunnverði eigi ríkið rétt á 60% hlutdeild í ábata af sölu byggingar- réttar á svæðinu verði byggingar- magn aukið umfram það sem gert var ráð fyrir við verðmat landsins. Undanskildar í samningnum eru allar húseignir ríkisins á Vífilsstöð- um en gerðir verða lóðarsamningar um eignirnar. – jhh Garðabær fær Vífilsstaði viðskipti Seðlabankinn ætlar að kanna hvort stjórn Kaupþings stóð eðlilega að upplýsingagjöf  þegar Seðlabankinn seldi bréf í Kaupþingi fyrir 19 milljarða króna. Þetta segir Seðlabankinn í tilefni frétta Frétta- blaðsins af því að Seðlabankinn hafi orðið af 4-6 milljörðum þegar bréfin hækkuðu í virði um þriðjung tveimur mánuðum eftir að bankinn seldi þau. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, spurði Bjarna Benediktsson forsætis- ráðherra út í sölu bréfanna á Alþingi í gær. „Er nýtt Borgunarmál í upp- siglingu?“ spurði Sigurður Ingi. – jhh Krefjast svara af Kaupþingi DómsmáL Ákæra á hendur Thomas Møller Olsen, sem grunaður er um að hafa ráðið Birnu Brjánsdóttur bana, verður þingfest fyrir héraðs- dómi á mánudag. Hann er ákærður fyrir manndráp og stórfellt fíkni- efnalagabrot. Thomasi var birt ákæran í morg- un. Gera má ráð fyrir að hann taki formlega afstöðu til ákærunnar við þingfestinguna á mánudag, en hann hefur staðfastlega haldið fram sak- leysi sínu við yfirheyrslur. Thomas hefur sætt gæsluvarð- haldi frá 18. janúar síðastliðnum, eftir að hafa verið handtekinn í aðgerðum sérsveitarinnar um borð í togaranum Polar Nanoq. Hann er vistaður í fangelsinu á Hólmsheiði. Gert er ráð fyrir að aðalmeðferð málsins fari fram fyrir sumarfrí dómstólanna, sem hefst í júlí. – sks Thomas Møller fyrir héraðsdóm Sigurður ingi Jóhannsson. 7 . a p r í L 2 0 1 7 F ö s t u D a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a b L a ð i ð 0 7 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C A 0 -1 F 6 C 1 C A 0 -1 E 3 0 1 C A 0 -1 C F 4 1 C A 0 -1 B B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.