Fréttablaðið - 07.04.2017, Síða 16

Fréttablaðið - 07.04.2017, Síða 16
Handbolti „Það er alltaf gaman að fá viðurkenningar fyrir það sem maður er að gera en á endanum snýst þetta allt um liðið,“ segir Ágúst Birgisson, línumaður FH, sem var kjörinn í úrvalslið Olís-deildar karla í handbolta en bestu leikmennirnir voru verðlaunaðir á kynningarfundi HSÍ fyrir úrslitakeppnina í gær. Ágúst var algjör lykilmaður í FH- liðinu sem varð óvænt deildarmeist- ari í fyrsta skipti í 25 ár. Fyrir utan að binda saman vörn Hafnarfjarðar- liðsins var hann fjórði markahæstur hjá FH með 76 mörk. „Það má segja að þetta sé mitt besta tímabil á ferlinum,“ segir Ágúst og fullyrðir að þó enginn hafi búist við svona árangri hjá FH-lið- inu stefndu leikmennirnir í hæstu hæðir á tímabilinu. „Við settum okkur markmið í sumar því við vissum hvað við gátum gert. Við höfðum alltaf trú þótt tímabilið byrjaði brösuglega. Við vissum að þetta myndi koma þannig að við misstum aldrei trúna.“ Sannaði fyrir sjálfum sér Ágúst skipti úr Aftureldingu í FH á miðju tímabili í fyrra en hann komst aldrei að hjá strákunum í kjúklingabænum. Það gerði ekk- ert nema gott fyrir Ágúst að skipta um umhverfi, en hann er nú orðinn einn besti línumaður deildarinnar. Síðustu 18 mánuðir hafa snúið ferli hans á rétta braut. „Dóri [Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari FH, innsk. blm.] sá eitthvað í mér. Ég fékk tækifæri hjá honum til að byrja á núlli fannst mér. Það var mikilvægt fyrir mig sjálfan að sýna og sanna það fyrir mér og öðrum að ég gæti eitthvað í handbolta því mig langar til að geta eitthvað í handbolta. Ég fékk tíma og traust hjá FH til að byrja upp á nýtt fannst mér,“ segir Ágúst sem var orðinn vel þreyttur á fáum tækifærum hjá Einari Andra Einarssyni, þjálfara Aftureldingar. „Mér fannst ég ekki fá tækifæri. Þegar ég var hjá Aftureldingu var ég að berjast um stöðuna við Pétur Júníusson sem er auðvitað frábær leikmaður. Hann fékk sénsinn hjá Einari Andra á undan mér og það er ekkert að því enda var Pétur að spila frábærlega. Ég fékk samt aldrei séns- inn. Kannski passaði ég bara ekki inn í spilið hjá Einari, hver veit?“ Stærri en gamli „Ísskápurinn“ Ágúst hefur ekki langt að sækja hæfileikana á línunni. Faðir hans er einn besti línumaður efstu deildar frá upphafi, Birgir Sigurðsson, fyrr- verandi leikmaður Víkings. „Ég er með tvo þjálfara; einn heima og einn í salnum,“ segir Ágúst og hlær. „Ég leita mikið til pabba og við förum yfir það góða og slæma. Hann bendir mér á rétta hluti og segir mér til. Ég hlusta svo stundum og stundum ekki. Maður getur ekki tekið við öllu en maður tekur það sem maður getur nýtt sér. Hann getur stundum verið erfiður en yfirleitt erum við bara góðir á því, feðgarnir, og spjöllum.“ Birgir var og er algjört heljar- menni og var kallaður „Ísskápurinn“ þegar hann var að spila. Er Ágúst kominn með viðurnefni? „Vallarþulurinn í Krikanum, sem er sá besti á landinu, kallar mig alltaf Ísskápinn eða Frystikistuna,“ segir Ágúst en þarf hann ekki að vera litli ísskápurinn fyrst hann er sonur upprunalega skápsins? „Ég er stærri en hann. Það má ekki gleyma því,“ segir Ágúst og hlær við en er hann orðinn jafn sterkur og faðir hans? „Ég næ því kannski einn daginn. Kallinn er alveg hrikalegur,“ segir Ágúst Birgisson. tomas@365.is Ekki litli „Ísskápurinn“ Ágúst Birgisson hefur átt frábæra 18 mánuði síðan hann skipti úr Aftureldingu í FH í fyrra. Hann toppaði gott tímabil með sæti í úrvalsliði ársins. Ágúst Birgisson hefur á hálfu öðru ári farið úr því að vera varamaður í Aftur- eldingu í það að vera í úrvalsliði Olís-deildarinnar. FréttABlAðið/AntOn Brink Ég er með tvo þjálfara; einn heima og einn í salnum. Ágúst Birgisson 112 Ágúst er búinn að skora 112 mörk í 36 deildarleikjum fyrir FH. 365.isMARGFALT SKEMMTILEGRI MEIRI HRAÐI, SKARPARI MYND, BETRA VIÐMÓT APPLE TV 4 Á 0 KR. Við hjá 365 leggjum metnað í að þú njótir fyrsta flokks skemmtunar á sem bestan hátt. Með 365 sjónvarp á Apple TV færðu meiri hraða, skarpari mynd og enn betra viðmót í sjónvarpi framtíðarinnar. Nú getur þú fengið þér Apple TV 4 með áskrift að efni frá 365 og sparað tugi þúsunda því við bjóðum þér Apple TV á 0 krónur með 12 mánaða áskrift að völdum pökkum 365. Tilboðið gildir með völdum sjónvarpspökkum 365 til 28. apríl 2017. Í samstarfi við Epli og Valitor Tilboð gildir til 28. apríl Íslensk valmynd og tímaflakk. Nánar á 365.is eða í síma 1817. 7 . a p r í l 2 0 1 7 F Ö S t U d a G U r16 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð 0 7 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C A 0 -2 9 4 C 1 C A 0 -2 8 1 0 1 C A 0 -2 6 D 4 1 C A 0 -2 5 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.