Fréttablaðið - 07.04.2017, Page 22
bólur eru oftast hormónatengdar.
Það sést best sé litið til sjúkdóma
sem valda hækkun karlhormóna
svo sem fjölblöðrueggjastokks-
heilkennisins (polycystic ovary
syndrome). Mánaðarlegar sveiflur
í hormónum tíðahringsins skipta
máli fyrir myndun þrymlabóla
því allt að 85 prósent fullorðinna
kvenna með þrymlabólur versna
dagana fyrir blæðingar. Rannsókn
hefur sýnt þessa versnun vera mun
algengari hjá konum yfir þrítugt
borið saman við yngri konur. Það er
oft óljóst hvað veldur því að konur
geti fengið þrymlabólur í fyrsta sinn
komnar yfir þrítugt eða fái þá aftur
bólumyndun á þessum aldri eða
síðar,“ útskýrir hann.
Bólur með tíðahvörfum
„Sýnt hefur verið fram á að styrkur
karlhormóna sé hærri hjá konum
með þrymlabólur í kringum tíða-
hvörf borið saman við konur án
þrymlabóla þó báðir hóparnir hafi
styrk karlhormóna innan eðli-
legra marka. Við fall estrógens hjá
konum við tíðahvörf er mögulegt
að myndist óhagstætt hlutfall milli
þessara hormóna sem getur leitt til
aukinnar fituframleiðslu kirtlanna
og þar með myndunar þrymla-
bóla. Annar stór áhættuþáttur
fyrir utan hormóna er olía í vörum
svo sem snyrtivörum sem bornar
eru á svæði þar sem þrymlabólur
myndast. Vinna með olíur svo sem
í eldhúsi getur einnig leitt til bólu-
myndunar. Það er mjög óalgengt að
lyf sem ekki eru hormónalyf valdi
sjúkdómnum. Menn hafa velt fyrir
sér mögulegri áhættu af þáttum
svo sem mataræði, álagi, erfðum og
tóbaksnotkun en niðurstöður eru
oft misvísandi milli rannsókna,“
upplýsir Bolli og bendir á að aðal-
atriðið fyrir konur í kringum tíða-
hvörf sé að forðast útvortis vörur
sem innihaldi olíu svo sem sumar
snyrtivörur. „Framleiðendur sem
álíta sínar vörur ekki hafa áhrif á
bólumyndun merkja þær stundum
með „non-comedogenic“ eða
„non-acne genic“.“
Lækning getur hjálpað
Ef vandamálið er algengt getur
verið nauðsynlegt að leita læknis.
Bolli segir að kanna þurfi húðgerð,
notkun á snyrtivörum og horm-
ónagetnaðarvörn sé hún til staðar.
„Mjög margar gerðir þrymlabóla
eru til sem þarf að greina á milli.
Sjúkdómurinn getur verið allt frá
því að valda eingöngu fílapenslum
upp í að geta valdið aumum
öramyndandi bólgukýlum. Með-
ferðir eru einstaklingsbundnar og
miða einnig alltaf að því að aftra
öramyndun,“ segir hann.
„Fílapenslar eru stíflaðir fitu-
tappar í kirtilopum fitukirtla sem
geta verið svartir eða hvítir. Séu þeir
áberandi eru oft notuð útvortis lyf
sem brjóta niður keratín í efsta lagi
húðþekjunnar en við það losna
tapparnir út og flæði fitu út úr kirtl-
unum verður aftur eðlilegt. Séu þeir
á háu stigi kemur innvortis lyfja-
meðferð til greina til að draga úr
myndun fitu í kirtlunum. Lyfjameð-
ferðir við bólum geta verið allt frá
útvortis bakteríudrepandi kremum
upp í margs kyns innvortis lyf eða
blanda af hvoru tveggja.“
Lasermeðferð
Bolli segist stundum beita laser-
meðferð gegn bólum. „Með-
ferðin byggir á gjöf ljóss til yfirborðs
húðarinnar sem eyðir porfýríni
sem bakterían Propionibacterium
acnes þarf til að dafna. Bakterían er
álitin mikilvægur þáttur í myndun
bólanna. Við útstæðum örum er
stundum beitt lyfjainnspýtingum
og frystingum sem stundum er
fylgt eftir með lasermeðferð gegn
roða í örunum. Við innstæðum
örum er oft beitt lasermeðferð til
að hækka þau upp og fjarlægja lit.
Þessar lasermeðfeðir eru háðar
eftirliti læknis samkvæmt reglugerð
velferðarráðuneytisins eins og á
öðrum Norðurlöndum.“
Samkvæmt banda-
rískri rannsókn
hafa 26,3% kvenna á
aldrinum 40-49 ára
svokallaðar þrymlabólur
og 5,3% kvenna eftir
fimmtugt. Af þessu má
sjá að bólur eru nokkuð
algengar þótt konur séu
komnar af táningsaldri.
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Bólur í andliti
eru hvimleiðar
en ýmislegt er
hægt að gera
til að losna við
þær.
Innfallin ör í
andliti eftir
bólur. Hægt er
að milda slík
ör til mikilla
muna.
Dr. Bolli Bjarnason, húð- og kynsjúk-
dómalæknir hjá Útlitslækningu.
Hvers vegna fá konur sem komnar eru yfir fertugt bólur eins og unglingar? Dr. Bolli
Bjarnason, húð- og kynsjúkdóma-
læknir hjá Útlitslækningu, segir að
samkvæmt bandarískri rannsókn
hafi 26,3 prósent kvenna á aldrinum
40-49 ára svokallaðar þrymlabólur
og 5,3 prósent kvenna eftir fimm-
tugt. Sama rannsókn sýnir að 50,9
prósent kvenna á aldrinum 20-29
ára hafa þrymlabólur og 35,2 pró-
sent á milli 30-39 ára. Af þessu má
sjá að bólur eru nokkuð algengar
þótt konur séu komnar af tánings-
aldri. Margs kyns bólumyndun er
til í andliti fyrir utan þrymlabólur.
Má þar nefna rósroða eða sýkingar
af völdum baktería í umhverfinu.
Einnig eru til sérstakir sjúkdómar
sem mynda bólur annaðhvort í
kringum munn eða augu.
Tengt hormónum
Bolli var spurður hvort þrymla-
bólur gætu tengst hormónum og
svarar hann því játandi. „Þrymla-
Þess vegna fá eldri konur bólur
Það eru ekki bara táningar sem fá bólur í andlit. Konur sem eru komnar
yfir miðjan aldur fá líka bólur sem þær eru að vonum afar ósáttar með.
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
• Austurströnd 14
• Hringbraut 35
• Fálkagötu 18
PREN
TU
N
.IS
.......................................
www.bjornsbakari.is
TILBOÐ Í
APRÍL ÖLL
BRAUÐ Á
500 KR.
Gríptu lyfin á leiðinni heim
Apótek Garðarbæjar í alfaraleið
Litlatún 3, Garðarbæ | Sími 577 5010
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . a p r í l 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
0
7
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
0
-6
4
8
C
1
C
A
0
-6
3
5
0
1
C
A
0
-6
2
1
4
1
C
A
0
-6
0
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K