Norðurslóð - 16.12.1980, Blaðsíða 16
Lionsklúbbur Dalvíkur
20 ára
Nokkrir stofnfélagar á afmælisdaginn
Félagar í Lionsklúbbi Dalvíkur
minntust þann 6. nóv. sl. 20ára
afmælis klúbbsins í Víkurröst.
Á afmælisfundinum voru auk
félaganna eiginkonur þeirra og
umdæmisstjórinn Aðalsteinn
Jónsson og kona hans. Menn
áttu þar saman ánægjulega
kveldstund. Helgi Þorsteinsson,
fyrrv. skólastjóri flutti afmælis-
ræðu og skýrði frá tildrögum til
stofnunar klúbbsins og gat
nokkuð um störf hans. Ekki
voru þó öll störf tíunduð, en
bent var á þátt klúbbsins í
menningarmálum, t.d. vor-
komuhátíðarinnar, í líknarmál-
um, t.d. stuðning við veika og
sjúka og hjálparvana, við vist-
heimilin Dalbæ og Sólborg og
ýmislegt fleira.
í þessum stutta pistli verður
það ekki upptalið, en þess má
þó geta að hagnaðurinn af
síðustu vorkomuhátíð klúbbs-
ins um 1.1 milljón kr., var gefinn
vistheimilinu Sólborg.
Umdæmisstjórinn Aðal-
steinn Jónsson þakkaði störf
klúbbsins og hve virkur hann
hefur verið alla tíð. Hafliði
Ólafsson lék á harmoniku tvö
lög frumsamin og tileinkaði
hann klúbbnum annað lagið.
Halldór Jóhannesson flutti stök
ur, sem til urðu á fundinum og
sr. Stefán Snævarr flutti stofn-
endum, klúbbfélögum og eigin-
konum þeirra þakkir.
Lionsklúbbur Dalvíkur var
stofnaður 1. maí 1960.í Bað-
stofu U.K.E.D. Stofnfélagar
voru 18. Af þessum stofnfélög-
um eru 8 enn í klúbbnum, þaraf
einn heiðursfélagi, Jón Jónsson
frv. skólastjóri. Fyrsti form.
klúbbsins var sr. Stefán
Snævarr, en núverandi form. er
Sveinbjörn Steingrímsson.
Enginn dómur skal lagður á
störf klúbbsins þessi tuttugu ár,
en óhætt er að segja að félagar
hafi reynst trúir kjörorði Lions-
hreyfingarinnar: „Verðum að
liði“.
Á þessum tímamótum vilja
Lionsfélagarnir þakka öllum
velunnurum sínum öflugan og
góðan stuðning, og klúbbur-
inn óskar öllum Svarfdælingum
nær og fjær, gleðilegra jóla og
farsældar á komandi árum.
S.S.
Óskum öllum Dalvíkingum og Svarfdcelingum
gleðilegra jóla
og farsœls komandi árs.
Amý og Frímann.
Verslunin Ýlir
auglýsir:
Til jóla bjóðum við mokkafatnað með aðeins 65
þúsund króna útborgun og eftirstöðvar á þremur
mánuðum.
Nýkomnar dömuvattúlpur.
Nýtt snið. Partner flauels- og kakí buxur. $>"""<%
u.)
Rafeinda- og tölvuleikföng
Bílabrautir
Dúkkur, sem skríða
og margt, margt fleira.
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsceldar á nýju ári.
Þökkum viðskiptin á árinu.
Verslun / saumastofa.
16 - NORÐURSLÓÐ
Sendurn starfsfólki okkar og viðskiptavinum
bestu óskir um
GLEÐILEG JÓL
OG FARSÆLT KOMANDIÁR.
Þökkum samstarfið.
Söltunarfélag
Dalvíkur hf.
Dalvík - Sími 61475