Fréttablaðið - 13.05.2017, Page 12
Saga Vélstjórastéttarinnar er
komin út og er aðgengileg sem rafbók
á heimasíðu félagsins, www.vm.is
VM-Félag vélstjóra
og málmtæknimanna
Konur sem eru
hættar störfum og
eru 67 ára og eldri eiga mjög
lítið brot af þeim lífeyris-
sjóðsinneignum
sem sá aldurs-
hópur á.
Þorbjörg I. Jóns-
dóttir, lögmaður
kvenfélagsins
Líknar
stjórnsýsla „Samkvæmt lögum eru
þetta orlofsgreiðslur til kvenna og
þetta á að fara þangað, við eigum ekk
ert að úthluta þessu í neina aðra hluti,“
segir Edda Ólafsdóttir, formaður kven
félagsins Líknar um þau tilmæli bæjar
ráðs Vestmannaeyja að félagið leggi
húsmæðraorlofsgreiðslu frá bænum í
góðgerðarmál.
Líkn hefur í heilt ár reynt að inn
heimta greiðslur frá Vestmannaeyja
bæ til húsmæðraorlofs sem samkvæmt
lögum er viss upphæð á hvern íbúa
sveitarfélags. Í fyrra var upphæðin
106 krónur á íbúa og átti þá bærinn að
greiða alls 459 þúsund krónur. Með
dráttarvöxtum var upphæðin komin í
603 þúsund krónur í vor. Eftir að hafa
ítrekað neitað kröfunni samþykkti
bæjarráð loks á þriðjudaginn að borga
reikninginn er innheimtubréf barst frá
lögmanni.
„Bæjarráð hefur áður lýst yfir full
um stuðningi við einróma ályktun
kvennafundar bæjarstjórnar á kven
réttindadaginn 19. júní 2008 þess
efnis að greiðsla húsmæðraorlofs væri
ekki í anda jafnréttis. Sá stuðningur er
óbreyttur,“ bókaði bæjarráðið sem vís
aði síðan í gott samstarf við Líkn í góð
gerðarmálum og samþykkti að hækka
upphæðina en lét þó skilaboð fylgja.
„Bæjarráði er afar annt um að hvergi
beri skugga á það samstarf og sam
þykkir því að greiða Líkn 700 þúsund
krónur og hvetur Líkn til að nýta upp
hæðina til góðgerðamála.“
Sem fyrr segir
telur Edda, for
maður Líknar,
ekki rétt að nota
féð á þann hátt
sem bæjarráðið
hvetji til. Hún
kveðst heldur
ekki sammála
bæjarráði um
að greiðsla hús
mæðraorlofs sé
ekki í anda jafn
réttis.
„Lögin eru í
gildi ennþá og öll bæjarfélög eiga að
greiða þetta. Þannig að það er mín
skoðun að þetta eigi að vera áfram eins
og það var þangað til annað kemur í
ljós, eða lögum verður breytt,“ segir
Edda.
F r u mv a r p u m
afnám húsmæðra
orlofs hefur á síðustu
árum ítrekað verið lagt
fram á Alþingi en aldrei verið afgreitt.
Það var lögmannsstofa Þorbjargar
I. Jónsdóttur, fyrrverandi formanns
Kvenréttindafélags Íslands, sem rak
málið fyrir hönd Líknar. Þorbjörg
bendir á að kærunefnd jafnréttismála
hafi þegar komist að þeirri niður
stöðu að húsmæðraorlof brjóti ekki
reglu um jafnrétti kynjanna. Þá megi
hafa í huga að konur á Íslandi eigi að
jafnaði mun minni lífeyrisréttindi en
karlar. Fram hafi komið að það tæki
konur minnst 65 ár í viðbót að ná
sömu lífeyrisinneign og karlar.
„Konur sem eru hættar störfum og
eru 67 ára og eldri eiga mjög lítið brot
af þeim lífeyrissjóðsinneignum sem
sá aldurshópur á. Það eru þær konur
sem eru mest að sækja í þessar orlofs
nefndir og sækja þessar ferðir,“ segir
Þorbjörg I. Jónsdóttir.
gar@frettabladid.is
Húsmæðraorlofið ekki
ætlað í góðgerðarmálin
Bæjarráð Vestmannaeyja segir húsmæðraorlof ekki í anda jafnréttis en borgar
loks árs gamla kröfu kvenfélagsins Líknar með hvatningu um að féð fari í góð-
gerðarmál. Peningarnir fara samt í húsmæðraorlof, að sögn formanns Líknar.
Fréttablaðið
1. júní 2016
Fyrir tæpu ári sagði
Fréttablaðið frá
gagnrýni bæjaryfir-
valda í Hveragerði
á greiðslu hús-
mæðraorlofs til
sunnlenskra kvenna.
Hafnarframkvæmdir á Sundabakka
Framkvæmdir við byggingu á nýjum hafnarbakka í Sundahöfn hafa nú staðið yfir um nokkurt skeið og ganga
vel. Er nýja hafnarbakkanum ætlað að taka við hlutverki Kleppsbakka og verða meginvöruflutningabakki
fyrir stærri og djúpristari flutningaskip. Hér má sjá stálþil sem verið er að reka niður Fréttablaðið/GVa
Sala fasteigna frá
588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík
Laugavegur 28b
101 Reykjavík
Höfum fengið í einkasölu heildareignina við Laugaveg 28B, Reykjavík.
413,9 fm hús sem stendur á 234 fm eignarlóð með nýtingarhlutfall 3,9.
í dag er rekinn verslun á jarðhæð og veitingarstaður á efri hæð húsins.
Húsið skiptist í 222 fm verslunarhúsnæði á jarðhæð og 191,8 fm á
2. hæð og í risi. Það er veitingahúsnæði og skrifstofur.
Í dag er húsnæðið í leigu til tveggja leigutaka.
Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Nánari uppl. veitir:
Kjartan Hallgeirsson
Löggiltur fasteignasali
kjartan@eignamidlun.is
824 9093 / 588 9090
Dómsmál Hæstiréttur hefur dæmt
mann til sektargreiðslu fyrir inn
flutning á 1.050 nikótínfilterum í
rafsígarettur. Tollskýrsla mannsins
um varninginn sagði að um væri að
ræða hosur og grænmetiskvörn.
Maðurinn pantaði vörurnar
með póstsendingu hingað til lands
í gegnum innflutningsfyrirtæki í
hans eigu. Tollstjóri fór fram á að
maðurinn legði fram upplýsingar
um kaupin en þar kom fram ofan
greind skýring á því hvað pakkarnir
hefðu að geyma. Maðurinn sagðist
ekki hafa vitað að níkótínfilterarnir
væru í sendingunni.
Maðurinn var dæmdur til 200
þúsund króna sektar og til að greiða
allan sakarkostnað, samtals 981
þúsund krónur. – snæ
Flutti inn rafrettur og hlaut sekt
Viðskipti Forsvarsmenn Netflix
stefna að því að auka umsvif sín í
Evrópu og lofa að skapa 400 ný störf
þar. Störfin muni verða í Amster
dam þar sem Netflix mun opna nýja
skrifstofu í vikunni. Í byrjun munu
starfa þar 170 manns en stefnt er að
því að starfsmenn verði orðnir 400
fyrir árslok 2018. Nú þegar hefur
starfsmannafjöldinn á skrifstofunni
í Amsterdam, sem er höfuðstöðvar
fyrir Evrópu, MiðAusturlönd og
Afríku, tvöfaldast á síðastliðnu ári
og nemur nú 120 manns.
Stefnt er að því að setja í loftið
sex nýjar Netflixsjónvarpsseríur
sem framleiddar eru í Evrópu á
þessu ári, þeirra á meðal er franska
vísindaskáldskaparserían Osmosis.
Netflix hefur varið 1,75 milljörðum
dollara í 90 verkefni í Evrópu á síð
ustu fimm árum. – sg
Netflix skapar 400 ný störf í Evrópu
1 3 . m a í 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
3
-0
5
-2
0
1
7
0
3
:5
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
9
-5
1
9
4
1
C
D
9
-5
0
5
8
1
C
D
9
-4
F
1
C
1
C
D
9
-4
D
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K