Fréttablaðið - 13.05.2017, Page 17
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
7
-2
6
8
3
Fræðslufundur
um fyrstu fasteign
í Arion banka, Borgartúni 19,
þriðjudaginn 16. maí kl. 17.30
Á fundinum fer Breki Karlsson yfir helstu hugtök sem
skipta máli við íbúðakaup og Snædís Ögn Flosadóttir
kynnir kosti þess að nýta skattfrjálsan viðbótar-
lífeyrissparnað til að stíga fyrsta skrefið inn á
fasteignamarkaðinn.
Skráning á arionbanki.is.
Allir velkomnir!
samgöngur „Því miður er óraun
hæft að ætla að í náinni framtíð
skapist þær aðstæður í íslenskri
heilbrigðisþjónustu að ekki verði
þörf á að koma mörgum af erfiðustu
tilfellunum sem koma upp á lands
byggðunum á Landspítalann við
Hringbraut,“ segir í bókun bæjar
stjórnar Hornafjarðar.
Árið 2015 voru, að sögn bæjar
stjórnarinnar, 58 fluttir í sjúkraflugi
frá Hornafjarðarflugvelli. Skorað
er á ríkisstjórnina og borgarstjórn
Reykjavíkur að „tryggja óskerta
starfsemi Reykjavíkurflugvallar og
tryggja þar með öryggishagsmuni
íbúa landsbyggðanna, að minnsta
kosti þangað til jafngóð eða betri
lausn finnst“ eins og segir í bókun
inni.
„Það er með öllu ólíðandi að
dregið verði úr öryggi sjúklinga og
slasaðra sem þurfa að komast með
hraði á Landspítalann.“ - gar
Sjúkraflug
með 58 frá
Hornafirði
Á Reykjavíkurflugvelli.
FRéttablaðið/Daníel
DÓmsmÁL Hæstiréttur hafnaði á dög
unum kröfu manns á Akureyri þess
efnis að fá kjörföður sinn borinn út
úr húsi á Þórshöfn.
Í niðurstöðunni kemur fram að
árið 2007 hafi húsinu á Þórshöfn
verið afsalað til mannsins af móður
hans, þáverandi eiginkonu kjörföður
ins. Maðurinn telur að kjörfaðir sinn
hafi búið í húsinu án leyfis og án þess
að borga leigu. Vill hann losna við
hann úr því til að geta selt eignina.
Kjörfaðir hans hélt því hins vegar
fram að húsinu hefði verið afsalað til
sonarins til málamynda og að hann
ætti í raun ekkert í eigninni.
Á báðum dómstigum var tekið
fram að til að unnt væri að fallast á
aðför þyrfti heimild eiganda að vera
ótvíræð. Þar sem feðgarnir voru tví
saga var vafi uppi um raunveruleg
atvik málsins og útburði því hafnað.
– jóe
Útburði hafnað
menntamÁL „Við tókum þetta upp
árið 2012 og erum að hætta með
þetta aftur,“ segir Ásgeir Jónsson, for
seti hagfræðideildar Háskóla Íslands.
Inntökupróf var haldið í deildinni
síðustu fjögur árin en ekkert inntöku
próf verður í haust.
Hann segir ýmsar ástæður fyrir
þessari ákvörðun. „Þegar við fórum af
stað með þetta var álitið að aðrir væru
að fara af stað með þetta líka, að aðrar
deildir eins og viðskiptafræði myndu
fylgja í kjölfarið. Við litum á að þarna
værum við brautryðjendur en það
hefur ekki gengið eftir.
Við í deildinni stefnum að því að
hafa í staðinn stærðfræðipróf sem
nemendur geta tekið sjálfir og metið
sína eigin stöðu í kjölfarið.“ – sg
Inntökupróf í
hagfræði lagt af
Ásgeir Jónsson,
forseti hagfræði-
deildar Háskóla
íslands
umhverfismÁL Blöndustöð Lands
virkjunar hefur hlotið Blue Planet
verðlaunin, sem Alþjóðavatnsafls
samtökin (International Hydro
power Association, IHA) veita
verkefnum sem skara fram úr í
sjálfbærri nýtingu vatnsafls í heim
inum. Verðlaunin voru veitt á þingi
samtakanna, sem haldið var í Addis
Ababa í Eþíópíu.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Landsvirkjun.
Verðlaunin eru veitt á grundvelli
alþjóðlegs matslykils um sjálfbæra
nýtingu vatnsafls (Hydropower
Sustainability Assessment Protocol,
HSAP), en úttekt á grundvelli hans
var gerð á Blöndustöð árið 2013.
Í úttektinni, sem var mjög
umfangsmikil og fór fram í Blöndu
stöð og á aðalskrifstofu Landsvirkj
unar, voru teknir til nákvæmrar
skoðunar 17 flokkar sem varða
rekstur Blöndustöðvar – til dæmis
samskipti og samráð, stjórnun á
umhverfislegum og samfélagslegum
þáttum, vatnsauðlindina, vinnuafl
og vinnuaðstöðu, líffræðilegan fjöl
breytileika og framandi tegundir
ásamt rofi og setmyndun. – shá
Blöndustöð Landsvirkjunar fær alþjóðleg verðlaun
laxveiði í blöndu hefur stóraukist eftir tilkomu virkjunarinnar. FRéttablaðið/GVa
f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð 17L a u g a r D a g u r 1 3 . m a í 2 0 1 7
1
3
-0
5
-2
0
1
7
0
3
:5
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
D
9
-3
3
F
4
1
C
D
9
-3
2
B
8
1
C
D
9
-3
1
7
C
1
C
D
9
-3
0
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K