Fréttablaðið - 13.05.2017, Síða 18
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Logi Bergmann
Donald Trump Bandaríkjaforseti er ekki stjórnmálamaður. Hann kemur úr við-skiptalífinu eins og flestir vita. Tvennum sögum fer af því hvernig honum hefur tekist að ávaxta þau auðæfi sem hann erfði eftir föður sinn.
Í kringum forsetakosningarnar síðastliðið haust var
staðhæft að Trump hefði haft meira upp úr því að leggja
fé í hlutabréfasjóði sem byggðust á bandarísku NASDAQ
vísitölunni en að standa í eigin viðskiptabrölti. Með
öðrum orðum, hefði betur verið heima setið en af stað
farið.
Enginn velkist þó í vafa um að Trump kann þá list að
upphefja sjálfan sig. Hann hefur alla tíð verið áberandi
á forsíðum dagblaða og glanstímarita. Frægðarsól hans
reis hæst í tengslum við þáttinn The Apprentice þar sem
hann réði og rak ungt og upprennandi fólk úr vinnu með
miklum tilþrifum.
Trump virðist ætla að halda uppteknum hætti nú
þegar í Hvíta húsið er komið. Embættisverk hans vekja
ávallt mikla athygli, þótt tvennum sögum fari af árangr-
inum. Aðferðirnar sem hann beitir í starfsmannahaldinu
minna óþægilega á þjösnaskapinn, sem hann sýndi unga
fólkinu í sjónvarpsþættinum forðum.
Í þessari viku rak Trump stjórnanda FBI, James Comey,
úr embætti með tilþrifum. Tvær ef ekki þrjár ástæður eru
gefnar. Talsmenn Trumps gáfu til kynna að Comey hefði
brugðist við meðferð á tölvupóstamáli Hillary Clinton.
Mike Pence varaforseti tók svo sérstaklega fram að
Trump hefði farið eftir ráðleggingum dómsmálaráðherra
síns í málinu.
Sjálfur kom Trump svo í viðtal og lét í ljós að Comey
hefði þurft að taka pokann sinn vegna Rússlandsmálsins
svokallaða, það er að segja þeirra ásakana að Rússar hafi
á óeðlilegan hátt beitt sér fyrir því að Trump næði kjöri
síðastliðið haust. Hann bætti svo við að hann hefði tekið
ákvörðunina einn síns liðs og hvorki þurft leiðsögn frá
dómsmálaráðherranum né nokkrum öðrum.
Allt sem forsetinn sagði stangaðist á við það sem
undirmenn hans höfðu áður látið út úr sér.
Þetta er í annað sinn sem forstöðumanni FBI er vikið
úr embætti. Fyrra tilfellið var í stjórnartíð Bills Clinton
og var nokkuð óumdeilt en William Sessions, sá sem var
látinn fara, var flæktur í net hneykslismála. Nú er rétt-
lætingin allt önnur og persónulegri. Trump virðist hafa
óttast að Comey myndi hefja rannsókn á tengslum hans
sjálfs og stjórnar hans við Rússa.
Ef satt reynist kembir Trump varla hærurnar á valda-
stóli. Í besta falli er það þó stórkostlegt áhyggjuefni að
sjálfur forseti Bandaríkjanna beiti enn sömu aðferðum
og hann gerði í sínum dapra sjónvarpsþætti um árið.
Ýmsir höfðu áhyggjur af því að skapgerð Trumps
hentaði ekki hans háa embætti. Með hverri vikunni
sem líður bendir fleira til að áhyggjurnar hafi ekki verið
ástæðulausar.
Rekinn með
tilþrifum
Allt sem
forsetinn
sagði stangað-
ist á við það
sem undir-
menn hans
höfðu áður
látið út úr sér.
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
K
V
IK
A
Maður verður að vera léttur. Ég er búinn að segja þetta milljón sinnum. Og þetta á alltaf við en alveg sérstaklega þessa viku. Eurovisi-
on. Það er allt skemmtilegt við þetta en okkur hættir
til að taka þetta full alvarlega. Svona eins og þetta sé í
alvöru keppni í tónlist. Sem er nánast það fyndnasta
sem ég hef heyrt!
Við erum stundum eins og maður sem fer á bekkjar-
kvöld í skólanum hjá barninu sínu og fer svo heim og
skrifar harðorða gagnrýni um það. Alveg brjálaður!
Í stað heillar viku af gleði eru nefnilega svo margir
sem ákveða að eyða þessari viku í samsæriskenn-
ingar, djúpar tónlistarlegar pælingar, vangaveltur um
strauma og stefnur og viðbrögð blaðamanna. (Ég held
að ég sé ekki að ljóstra upp neinu leyndarmáli þegar
ég segi að þetta eru ekki allt alvöru blaðamenn. Finnst
ykkur líklegt að margir fjölmiðlar sendi blaðamann í
tveggja vikna ferð til að taka selfies af sér með kepp-
endum? Það ætti líka að vera vísbending þegar blaða-
menn spyrja hvað sé að frétta af „Síga og Grætar“.)
Auðvitað væri gaman að vinna. Það eru reyndar
meiri líkur á því að við vinnum einhvern tímann en
að blaðamannafundur íslenska hópsins gangi ekki vel
eða að íslenski hópurinn klúðri æfingu.
Plebbahelgi
Þetta er vikan sem við leyfum okkur að vera plebbar.
Baða okkur í Vogaídýfu, troða í okkur of mörgum
pitsum og mögulega drekka of mikið. Ótrúlegustu
menn verða sérfræðingar í búningum og dansi og fyrir
flesta er þetta eina landafræðikennslan sem þeir hafa
fengið eftir grunnskóla.
Umgjörðin verður svo alltaf keppni í að fara aðeins
of langt. Oft hjá þjóðum sem hafa eiginlega ekki efni á
því. Allt er aðeins of stórt og mikið og pínu tilgerðar-
legt.
En svo kemur sveitamennskan, svo falleg og
skemmtileg, þegar Jon Ola Sand kemur – alltaf eins og
óvart – í mynd og tilkynnir að sýslumaður hafi farið
yfir allt heila landafræðisamsærið. Svo sitjum við eins
og á kosninganótt og botnum ekkert í því af hverju
okkar flokkur/lag naut ekki trausts kjósenda. EIns og
við vorum stolt af því!
Sameinumst!
Við sameinumst í meðvirkni með okkar fólki. Það
skipti sennilega ekki máli þótt Svala hefði ökkla-
brotnað, gubbað og gleymt textanum. Okkur hefði
alltaf fundist að hún hefði staðið sig frábærlega. Sem
hún reyndar gerði. Og við erum brjáluð yfir að aðrar
þjóðir hafi ekki séð það.
En svo er þetta líka eina kvöldið þar sem það er
fyllilega samþykkt að tala um feitt fólk og ljótt. Jafn-
vel henda í smá rasisma. Bara ef maður man að setja
#12stig á eftir.
Við eigum að sameinast í gleði. Gleðjast yfir því að
það er ekki jafn rosalega hallærislegt og hér í eina tíð
að horfa. Eða yfir því að það er í lagi að vera svo hall-
ærislegur að hafa gaman af þessu. Fagna því að það eru
ekki bara gamlir píanókennarar sem fá að kjósa. Og
náttúrlega því að fá að vera með. Það er nú eitthvað!
Óður til gleðinnar?
Þetta er vikan sem við leyfum okkur að
vera plebbar. Baða okkur í Vogaídýfu, troða
í okkur of mörgum pitsum og mögulega
drekka of mikið. Ótrúlegustu menn verða
sérfræðingar í búningum og dansi og fyrir
flesta er þetta eina landafræðikennslan sem
þeir hafa fengið eftir grunnskóla.
1 3 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R18 s k o ð U n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
SKOÐUN
1
3
-0
5
-2
0
1
7
0
3
:5
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
8
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
9
-3
8
E
4
1
C
D
9
-3
7
A
8
1
C
D
9
-3
6
6
C
1
C
D
9
-3
5
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K