Fréttablaðið - 13.05.2017, Side 42
Undanfarin sextán ár hefur Jón-atan verið liðsstjóri íslensku Eurovision-keppendanna
og fylgst með keppninni bak-
sviðs. Í kvöld ætlar hann að horfa á
keppnina í rólegheitum heima hjá
sér, ásamt fjölskyldunni.
„Ég kom fyrst að Eurovision þegar
ég var í vinnuhópi sem hvatti til
þess að við Íslendingar tækjum þátt
í keppninni. Síðan var ég útgefandi
íslensku Eurovisionlaganna og frá
2001-2016 var ég liðsstjóri íslensku
keppendanna. Mér fannst algjörlega
orðið tímabært að stíga til hliðar
og Felix Bergsson var tilbúinn að
taka við keflinu. Hann var mér til
aðstoðar í fyrra og sá þá hvað hann
þurfti að læra og kunna.“
En hvað skyldi standa upp úr
þegar hann lítur til baka? „Fyrst og
fremst allt fólkið sem ég hef unnið
með í gegnum tíðina, allt prýðisfólk.
Stundum hefur þetta verið mikill til-
finningarússíbani, ég hef tekið sumt
inn á mig, bæði gleði og svo minni
gleði, stundum nánast sorg, en alltaf
haft fagmennskuna að leiðarljósi.“
Töfrar á úrslitakvöldinu
Jónatan er nýkominn heim úr fríi
frá New York og hefur því ekki fylgst
grannt með undankeppninni en
hann segist þó vel vita hvað sé að
gerast. En hver er líklegasti sigur-
vegarinn að hans mati? „Eins og
staðan er núna spái ég Portúgal,
Búlgaríu eða Ítalíu sigri en svo getur
allt breyst í kvöld. Stundum finnur
maður þetta fyrirfram en svo verða
einhverjir töfrar í salnum á úrslita-
kvöldinu. Þetta eru ólík lög, fyrri tvö
eru róleg en þriðja er meira stuðlag.
Það fer alveg eftir stemningunni í
Evrópu í kvöld hvaða lag vinnur.
Svo er kannski eitthvert lag þarna
sem ég hef ekki tekið eftir sem
getur skotist upp og farið í fyrsta
sætið. Það væri reyndar gaman ef
Portúgal ynni. Þeir hafa átt í fjár-
hagskröggum eins og við og drógu
sig út úr keppninni og ætluðu alveg
að hætta en koma svo með þetta
lag, sem hefur vakið mikla athygli.
Söngvarinn syngur af einlægni og
ef hann nær í gegn er aldrei að vita
hvað gerist.“
Svala stóð sig með prýði
Svo skemmtilega vill til að Jónatan
og Svala Björgvinsdóttir eiga sama
afmælisdag. Hann segist ekki vita
hvers vegna hún komst ekki áfram.
„Svala stóð sig með stakri prýði,
flutti lagið vel og gerði sitt allra
besta, en þessi keppni er þann-
ig að maður veit í rauninni aldrei
hvernig atkvæðin raðast. Eflaust má
velta upp ýmsum flötum á mynd-
vinnslunni, sviðsetningunni og hinu
og þessu, en einfalda svarið er að
evrópska sveiflan var einfaldlega
ekki með okkur að þessu sinni.“
Spurður hvort við þurfum að
breyta einhverju varðandi for-
keppnina hér heima til að komast
í aðalkeppnina segir Jónatan að
það þurfi alltaf að skoða alla fleti
varðandi þessi mál. „En það er ekki
til nein töfraformúla. Svíar leggja
gríðarlega vinnu og fjármuni í að
leita að rétta laginu á hverju ári og
það er her manna og kvenna sem
vinnur að Melodifestivalen, sem er
næstum því jafn viðamikil keppni
og Eurovision. Þeir hafa sérhæft sig í
að semja Eurovisionlög og sviðsetja
þau, enda er það svo núna í ár að
10 lög í Eurovision eru eftir sænska
höfunda og sænskir verkefnastjórar
koma að sviðsetningu margra laga
í keppninni. Þetta er fyrst og fremst
gott sjónvarpsefni, góð afþreying
sem maður á ekki að taka allt of
alvarlega. Mér finnst alveg jafn
mikilvægt að leyfa alls konar
höfundum og flytjendum að láta
ljós sitt skína í Söngvakeppninni
hérna heima eins og að taka þátt í
Eurovision. Þetta er einn af vaxtar-
sprotunum í okkar fjölbreytta tón-
listarlífi og á hverju ári koma fram
nýir höfundar og flytjendur sem fá
ómetanlegt tækifæri til að spreyta
sig í sjónvarpskeppni. Mikilvægast
er að íslenska þjóðin sé sátt við það
Hér er Jónatan í Belgrad í Serbíu eftir að Euroband, Regína Ósk og Friðrik
Ómar, komust í úrslit. Ísland hafði ekki náð þeim árangi í þrjú ár þar á undan.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
lag sem sent er í keppnina hverju
sinni og standi heils hugar að baki
sínum keppendum.“
Ekkert Eurovisonlag
í uppáhaldi
Jónatan heldur ekki upp neitt eitt
Eurovision lag umfram annað. „En
ég man eftir tveimur sem mér fannst
frábær á sínum tíma, annars vegar
All Kinds of Everything með írsku
söngkonunni Dana og hins vegar
Waterloo með Abba. Af íslensku
lögunum finnst mér mörg mjög vel
heppnuð og sennilega standa lögin
All Out of Luck og Is It True upp úr
af þeirri einföldu ástæðu að þau
komust bæði í annað sæti.“
Eurovision góð
byrjun á sumrinu
Eurovison-keppnin hefur alla tíð
verið sérlega vinsæl hérlendis og
flestir landsmenn fylgst grannt
með henni. „Þegar við tókum þátt í
Eurovision í fyrsta sinn voru miklar
vonir bundnar við íslenskan sigur
en þegar það gekk ekki eftir töluðu
margir keppnina niður. Það hafði
samt ekki þau áhrif að vinsældinar
minnkuðu. Landsmenn komust
fljótt upp á lag með að efna til sam-
kvæma í heimahúsum þetta kvöld,
þar sem vinir og vandamenn hittast
til að njóta góðra veiga, horfa á
keppnina og skiptast á skoðunum.
Það hefur væntanlega líka sitt að
segja að á hverju ári verður Euro-
vision stærri í sniðum, með sífellt
viðameiri sviðsbúnaði, ljósum,
grafík og öllu sem hægt er að láta sér
detta í hug að gera í einum sjón-
varpsþætti. Margir segjast ekki horfa
á keppnina, en vita samt sem áður
allt um hana. Sennilega er þetta
einfaldlega góð byrjun á sumrinu og
kjörið tækifæri til að lyfta sér upp í
góðra vina hópi eftir langan vetur.“
„Við Jóhanna
Guðrún og Helgi
Jóhannesson,
upptökustjóri
sjónvarpsins,
árið 2009. Þetta
var merkileg
ferð í alla staði
og það sem stóð
upp úr var þegar
Jóhanna Guðrún
eða Yohanna,
hafnaði í öðru
sæti keppninnar.
Eins og staðan er
núna spái ég Portú-
gal, Búlgaríu eða Ítalíu
sigri en svo getur allt
breyst í kvöld. Stundum
finnur maður þetta
fyrirfram en svo verða
einhverjir töfrar í salnum
á úrslitakvöldinu.
Vörunúmer: 29502-0003
Danmörk kr 17.119*
Svíþjóð kr 14.340*
*skv.verðskrá levi.com og gengistöflu Íslandsbanka
501 Skinny kr.
13.990
Leví s kringlunni – Leví s Smáralind – Leví s Glerártorgi
Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457
Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . m a Í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
1
3
-0
5
-2
0
1
7
0
3
:5
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
9
-B
4
5
4
1
C
D
9
-B
3
1
8
1
C
D
9
-B
1
D
C
1
C
D
9
-B
0
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K