Fréttablaðið - 13.05.2017, Page 42

Fréttablaðið - 13.05.2017, Page 42
Undanfarin sextán ár hefur Jón-atan verið liðsstjóri íslensku Eurovision-keppendanna og fylgst með keppninni bak- sviðs. Í kvöld ætlar hann að horfa á keppnina í rólegheitum heima hjá sér, ásamt fjölskyldunni. „Ég kom fyrst að Eurovision þegar ég var í vinnuhópi sem hvatti til þess að við Íslendingar tækjum þátt í keppninni. Síðan var ég útgefandi íslensku Eurovisionlaganna og frá 2001-2016 var ég liðsstjóri íslensku keppendanna. Mér fannst algjörlega orðið tímabært að stíga til hliðar og Felix Bergsson var tilbúinn að taka við keflinu. Hann var mér til aðstoðar í fyrra og sá þá hvað hann þurfti að læra og kunna.“ En hvað skyldi standa upp úr þegar hann lítur til baka? „Fyrst og fremst allt fólkið sem ég hef unnið með í gegnum tíðina, allt prýðisfólk. Stundum hefur þetta verið mikill til- finningarússíbani, ég hef tekið sumt inn á mig, bæði gleði og svo minni gleði, stundum nánast sorg, en alltaf haft fagmennskuna að leiðarljósi.“ Töfrar á úrslitakvöldinu Jónatan er nýkominn heim úr fríi frá New York og hefur því ekki fylgst grannt með undankeppninni en hann segist þó vel vita hvað sé að gerast. En hver er líklegasti sigur- vegarinn að hans mati? „Eins og staðan er núna spái ég Portúgal, Búlgaríu eða Ítalíu sigri en svo getur allt breyst í kvöld. Stundum finnur maður þetta fyrirfram en svo verða einhverjir töfrar í salnum á úrslita- kvöldinu. Þetta eru ólík lög, fyrri tvö eru róleg en þriðja er meira stuðlag. Það fer alveg eftir stemningunni í Evrópu í kvöld hvaða lag vinnur. Svo er kannski eitthvert lag þarna sem ég hef ekki tekið eftir sem getur skotist upp og farið í fyrsta sætið. Það væri reyndar gaman ef Portúgal ynni. Þeir hafa átt í fjár- hagskröggum eins og við og drógu sig út úr keppninni og ætluðu alveg að hætta en koma svo með þetta lag, sem hefur vakið mikla athygli. Söngvarinn syngur af einlægni og ef hann nær í gegn er aldrei að vita hvað gerist.“ Svala stóð sig með prýði Svo skemmtilega vill til að Jónatan og Svala Björgvinsdóttir eiga sama afmælisdag. Hann segist ekki vita hvers vegna hún komst ekki áfram. „Svala stóð sig með stakri prýði, flutti lagið vel og gerði sitt allra besta, en þessi keppni er þann- ig að maður veit í rauninni aldrei hvernig atkvæðin raðast. Eflaust má velta upp ýmsum flötum á mynd- vinnslunni, sviðsetningunni og hinu og þessu, en einfalda svarið er að evrópska sveiflan var einfaldlega ekki með okkur að þessu sinni.“ Spurður hvort við þurfum að breyta einhverju varðandi for- keppnina hér heima til að komast í aðalkeppnina segir Jónatan að það þurfi alltaf að skoða alla fleti varðandi þessi mál. „En það er ekki til nein töfraformúla. Svíar leggja gríðarlega vinnu og fjármuni í að leita að rétta laginu á hverju ári og það er her manna og kvenna sem vinnur að Melodifestivalen, sem er næstum því jafn viðamikil keppni og Eurovision. Þeir hafa sérhæft sig í að semja Eurovisionlög og sviðsetja þau, enda er það svo núna í ár að 10 lög í Eurovision eru eftir sænska höfunda og sænskir verkefnastjórar koma að sviðsetningu margra laga í keppninni. Þetta er fyrst og fremst gott sjónvarpsefni, góð afþreying sem maður á ekki að taka allt of alvarlega. Mér finnst alveg jafn mikilvægt að leyfa alls konar höfundum og flytjendum að láta ljós sitt skína í Söngvakeppninni hérna heima eins og að taka þátt í Eurovision. Þetta er einn af vaxtar- sprotunum í okkar fjölbreytta tón- listarlífi og á hverju ári koma fram nýir höfundar og flytjendur sem fá ómetanlegt tækifæri til að spreyta sig í sjónvarpskeppni. Mikilvægast er að íslenska þjóðin sé sátt við það Hér er Jónatan í Belgrad í Serbíu eftir að Euroband, Regína Ósk og Friðrik Ómar, komust í úrslit. Ísland hafði ekki náð þeim árangi í þrjú ár þar á undan. Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@365.is lag sem sent er í keppnina hverju sinni og standi heils hugar að baki sínum keppendum.“ Ekkert Eurovisonlag í uppáhaldi Jónatan heldur ekki upp neitt eitt Eurovision lag umfram annað. „En ég man eftir tveimur sem mér fannst frábær á sínum tíma, annars vegar All Kinds of Everything með írsku söngkonunni Dana og hins vegar Waterloo með Abba. Af íslensku lögunum finnst mér mörg mjög vel heppnuð og sennilega standa lögin All Out of Luck og Is It True upp úr af þeirri einföldu ástæðu að þau komust bæði í annað sæti.“ Eurovision góð byrjun á sumrinu Eurovison-keppnin hefur alla tíð verið sérlega vinsæl hérlendis og flestir landsmenn fylgst grannt með henni. „Þegar við tókum þátt í Eurovision í fyrsta sinn voru miklar vonir bundnar við íslenskan sigur en þegar það gekk ekki eftir töluðu margir keppnina niður. Það hafði samt ekki þau áhrif að vinsældinar minnkuðu. Landsmenn komust fljótt upp á lag með að efna til sam- kvæma í heimahúsum þetta kvöld, þar sem vinir og vandamenn hittast til að njóta góðra veiga, horfa á keppnina og skiptast á skoðunum. Það hefur væntanlega líka sitt að segja að á hverju ári verður Euro- vision stærri í sniðum, með sífellt viðameiri sviðsbúnaði, ljósum, grafík og öllu sem hægt er að láta sér detta í hug að gera í einum sjón- varpsþætti. Margir segjast ekki horfa á keppnina, en vita samt sem áður allt um hana. Sennilega er þetta einfaldlega góð byrjun á sumrinu og kjörið tækifæri til að lyfta sér upp í góðra vina hópi eftir langan vetur.“ „Við Jóhanna Guðrún og Helgi Jóhannesson, upptökustjóri sjónvarpsins, árið 2009. Þetta var merkileg ferð í alla staði og það sem stóð upp úr var þegar Jóhanna Guðrún eða Yohanna, hafnaði í öðru sæti keppninnar. Eins og staðan er núna spái ég Portú- gal, Búlgaríu eða Ítalíu sigri en svo getur allt breyst í kvöld. Stundum finnur maður þetta fyrirfram en svo verða einhverjir töfrar í salnum á úrslitakvöldinu. Vörunúmer: 29502-0003 Danmörk kr 17.119* Svíþjóð kr 14.340* *skv.verðskrá levi.com og gengistöflu Íslandsbanka 501 Skinny kr. 13.990 Leví s kringlunni – Leví s Smáralind – Leví s Glerártorgi Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365. is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . m a Í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 1 3 -0 5 -2 0 1 7 0 3 :5 6 F B 1 2 8 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C D 9 -B 4 5 4 1 C D 9 -B 3 1 8 1 C D 9 -B 1 D C 1 C D 9 -B 0 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 8 s _ 1 2 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.