Fréttablaðið - 13.05.2017, Page 44
Allt skipulag
keppninnar
hefur verið til
fyrirmyndar.
Horft yfir Euro-
vision-þorpið.
NordicpHotos/
GEtty
Horft yfir Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, sem er sjöunda stærsta borg Evrópu ef miðað er við mannfjölda.
Öryggisgæslan er
gríðarleg. Stranglega
bannað er að taka mynd
af öryggisvörðum eins og
sá er þetta skrifar komst
að.
Kænugarður er ógurlega falleg borg sem vert er að bæta á listann yfir borgir sem þarf
að heimsækja. Flug hingað er
ekki sérstaklega dýrt. Blaðamenn
Fréttablaðsins flugu frá London,
hópur frá Morgunblaðinu flaug
frá Frankfurt og íslenski hópurinn
kom hingað í gegnum Brussel.
Verðlagið er líka hagstætt.
Hér kostar matur fyrir tvo á fínu
veitingahúsi með smá öli og heilli
rauðvínsflösku um 12 þúsund
krónur. Hamborgari og söng-
vatn kostar um þúsund krónur.
Maturinn í fjölmiðlahöllinni, sem
er gríðarlega góður, kostar um 400
krónur.
Kænugarður hefur tekið blaða-
mönnunum 1.200 sem þangað eru
komnir til að fjalla um Eurovision
opnum örmum. Blaðamenn-
irnir koma víða að. Þjóðverjarnir
í blaðamannahöllinni eru meira
að segja ánægðir með skipulagið
og Svisslendingar sem við hittum
í mat brostu út að eyrum yfir
hvernig keppnin hefði tekist. Það
þarf nú töluvert til að þessar þjóðir
hrósi öðrum fyrir skipulag.
Öryggisgæslan er gríðarleg.
Stranglega er bannað að taka
mynd af öryggisvörðum eins og sá
er þetta skrifar komst að. Hermenn
í fullum skrúða, lögreglumenn
með hríðskotabyssur og hundar
leita á hverjum einasta blaða-
manni. Allt þarf að taka í sundur
og sýna að hver einasti hlutur virki.
Ekkert virðist fara fram hjá þeim.
Þeir bílar sem koma of nálægt eru
umsvifalaust reknir í burtu með
harðri hendi.
Skemmtanalífið er í miklum
blóma þrátt fyrir undirliggjandi
sorg. Miðbærinn að nóttu til virkar
öruggur en það gæti svo sem verið
vegna allrar öryggisgæslunnar.
Eftir gott kvöld hér úti finnur
maður aldrei til hræðslu. Hjartað
slær örar þegar gengið er um stræti
Reykjavíkur.
Það eina sem mætti setja út á
í Kænugarði er enskukunnátta
heimamanna. Flestir eru ekkert
sérstakir svo vægt sé tekið til orða.
En þeir svara á úkraínsku og slíkt
er skemmtilegt. Ef við höfum þurft
að komast á milli staða höfum við
notað Uber. Við vorum varaðir við
okri á leigubílum og svindlurum
í þeim geira þannig að Uber varð
fyrir valinu.
Eurovision lýkur í kvöld og flug-
völlurinn verður þétt setinn næstu
daga. Reyndar fengu að blaðamenn
Fréttablaðsins ekki flug heim fyrr
en með síðustu vél á mánudag.
Borgin verður kvödd með bros á
vör og gleði í hjarta enda hefur hún
tekið vel á móti okkur og hinum
blaðamönnunum.
Keppendur eru einnig ánægðir
og munu skila stórkostlegri
sýningu heim í stofu landsmanna
sem og allrar Evrópu. Á því er
enginn vafi.
stórkostlegur staður og
stórkostleg stund
Allir eru sammála um að Úkraínumenn eigi hrós skilið fyrir framkvæmd Eurovision í ár. Borgin
hefur tekið tæplega 1.200 blaðamönnum opnum örmum og allt skipulag hefur gengið eftir.
l Kænugarður er höfuðborg og
stærsta borg Úkraínu.
l Borgin liggur í norðurhluta lands-
ins við fljótið Dnjepr.
l Í borginni búa 2,9 milljónir
manna.
l Flatarmál Kænugarðs er 840 fer-
kílómetrar.
l Kænugarður er sjöunda stærsta
borg Evrópu ef miðað er við
fólksfjölda.
l Jarðlestakerfið í Úkraínu er stór-
merkilegt og það dýpsta í Evrópu.
Það var byggt 105 metra niður í
jörðu og var gert ráð fyrir því að
borgarbúar gætu flúið í jarðlesta-
kerfið ef kæmi til loftárásar.
l Hnefaleikakappinn Vitali
Klitschko er borgarstjóri í Kænu-
garði.
l Það er þriggja klukkustunda tíma-
mismunur á Íslandi og Kænu-
garði.
Nokkrar
staðreyndir
um Kænugarð
skrifa frá
Eurovision
í Kiev
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@365.is
Stefán Árni
Pálsson
stefanp@365.is
L-Mesitran
Náttúruleg
sáragræðsla
með hunangi
- Fæst í apótekum -
Hunangsplástur og sárakrem með
hunangi. Hentar á allar tegundir sára.
Plásturinn hentar vel á lítil yfirborðssár.
Nauðsynlegur á sára hæla eftir göngur.
www.wh.is
4 KyNNiNGArBLAÐ FÓLK 1 3 . m A Í 2 0 1 7 L AU G A r dAG U r
1
3
-0
5
-2
0
1
7
0
3
:5
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
9
-A
0
9
4
1
C
D
9
-9
F
5
8
1
C
D
9
-9
E
1
C
1
C
D
9
-9
C
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K