Fréttablaðið - 13.05.2017, Page 64
16 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 3 . m a í 2 0 1 7 LAUGARDAGUR
Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • Sími 525 6700 • mos@mos.is • www.mos.is
VIRÐING • JÁKVÆÐNI • FRAMSÆKNI • UMHYGGJA
Umsóknarfrestur er til 02. júní 2017.
Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni
í starfið skulu berast á netfangið mos@mos.is. Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu
Mosfellsbæjar en auk þess veitir Aldís Stefánsdóttir, forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar upplýsingar
í síma 525 6700. Um framtíðarstarf er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt
kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum fólk af báðum
kynjum til að sækja um starfið.
Forstöðumaður menningarmála
MOSFELLSBÆR AUGLÝSIR EFTIR ÖFLUGUM FORSTÖÐUMANNI MENNINGARMÁLA OG BÓKASAFNS
Forstöðumaður menningarmála og bókasafns Mosfellsbæjar stýrir starfsemi bókasafnsins í samræmi við lög og
reglugerðir. Forstöðumaður menningarmála hefur yfirumsjón með starfsemi Bókasafns og Listasalar
Mosfellsbæjar. Hann er verkefnastjóri viðburða og starfsmaður Menningarmálanefndar.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru
leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Háskólamenntun í bókasafns- og
upplýsingafræðum eða sambærilegu námi er
skilyrði
Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er
æskileg
Haldbær reynsla í verkefnastjórnun og
skipulagningu viðburða er æskileg
Hugmyndaauðgi og skýr framtíðarsýn er
skilyrði
Reynsla og þekking á málefnum sveitarfélaga
er æskileg
Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og
rituðu máli er skilyrði
Framúrskarandi tölvukunnátta og þekking á
helstu forritum er skilyrði
Góð hæfni í mannlegum samskiptum er
skilyrði
Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
Brunahönnun slf óskar eftir
brunavarnaverkfræðingi.
Brunahönnun er lítið en öflugt fyrirtæki á sviði brunavarnaráð-
gjafar sem leggur áherslu á praktískar lausnir í brunavörnum og
greiningarvinnu í samræmi við þarfir verkefna og viðskiptavina.
Fyrirtækið býr að stórum reynslubanka úr fjölbreyttum verkefnum
og verkefnastaðan fer vaxandi. Framundan eru mörg spennandi
verkefni.
Óskað er eftir sjálfstæðum og þjónustuliprum einstaklingi með
grunnmenntun og/eða reynslu á sviði brunavarnaverkfræði.
Upplýsingar um starfið gefur Gunnar H. Kristjánsson í síma 662-
5990. Öllum umsóknum verður svarað. Laun verða vel árangurs-
tengd og því er um gott tækifæri að ræða fyrir öflugan aðila.
Brunahönnun slf er með heimasíðuna; www.brunahonnun.com
þar sem hægt er að kynna sér starfsemi fyrirtækisins.
Myndlistaskólinn í Reykjavík – tvö störf laus til umsóknar
Myndlistaskólinn í Reykjavík auglýsir starf deildarstjóra barna- og
unglingadeildar laust til umsóknar. Deildarstjórinn ber ábyrgð á
öllu starfi sem fram fer innan deildarinnar; skipuleggur fjölbreytt
námskeið fyrir börn á aldrinum 4-16 ára á öllum starfsstöðvum
skólans, ræður kennara og heldur utan um innlend jafnt sem alþjóð-
leg samstarfsverkefni sem deildin er þátttakandi í. Um er að ræða
70% starf en mögulegt er að auka starfshlutfallið með kennslu.
Við leitum að lausnamiðuðum og metnaðarfullum myndlistar-
manni eða hönnuði með menntun í listkennslufræðum og réttindi
til að starfa sem kennari á leik- eða grunnskólastigi. Viðkomandi
þarf að hafa til að bera frjóa hugsun, góða skipulagsgáfu, gott vald
á íslensku og ensku og brennandi áhuga á skólastarfi. Nýr deildar-
stjóri tekur formlega við deildinni í byrjun ágúst en æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Skólinn auglýsir einnig eftir umsjónarmanni nemendabókhalds,
vefsíðu og kynningarmála. Starfið felst í því að halda utan um
skráningar og námsferla nemenda í námsumsjónarkerfinu inna.is
og fleiri skráningarkerfum, sjá um vefsíðu og annað kynningarefni
skólans og hafa samskipti við fjölmiðla og auglýsendur.
Við leitum að einstaklingi með góða tölvukunnáttu, gott vald á íslen-
sku og ensku og áhuga á miðlun og markaðsmálum. Skipulags-
hæfileikar og nákvæmni eru nauðsynlegir kostir og jafnframt er
æskilegt að umsækjandi hafi menntun eða mikinn áhuga á myndlist
og hönnun. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknum skal fylgja yfirlit yfir starfsferil ásamt greinargerð þar
sem forsendur umsóknar og framtíðarsýn umsækjanda koma
fram. Umsóknir þurfa að berast skrifstofu skólans eða á netfangið
skolastjori@mir.is fyrir kl. 17:00 miðvikudaginn 24. maí.
Frekari upplýsingar veitir Áslaug Thorlacius skólastjóri, skolastjori
@mir.is. Skólinn áskilur sér rétt til að hafna öllum umsækjendum.
Myndlistaskólinn í Reykjavík er lifandi og skemmtilegur vinnustaður
með á annað þúsund nemendur á ári hverju. Skólinn er sjálfs-
eignarstofnun sem rekin er af félagi starfandi myndlistarmanna og
hönnuða. Markmiðið er að miðla þekkingu í verklegum og fræði-
legum þáttum sjónlista og efla með því grunnmenntun á sviðinu.
Skólinn fagnar 70 ára afmæli á árinu.
Staða leikskólastjóra við leikskólann Kirkjuból í
Garðabæ er laus til umsóknar. Leikskólinn er
þriggja deilda og vinnur samkvæmt áherslum
fjölgreindakenninga Howards Gardner.
Einkunnarorð leikskólans eru virðing, vinátta og
væntumþykja.
Leitað er að leikskólastjóra til að leiða skólastarfið í
samvinnu við starfsfólk, foreldra og börn.
Leikskólastjóri tekur einnig þátt í að móta
skólasamfélag Garðabæjar með uppbyggilegum og
framsýnum hætti í samvinnu við skólaskrifstofu
Garðabæjar.
Helstu verkefni:
• Að vera faglegur leiðtogi
• Að bera faglega og rekstrarlega ábyrgð á starfi
leikskólans, stjórna daglegri starfsemi hans og
hafa forgöngu um mótun og framgang stefnu
leikskólans
• Að vinna náið með starfsfólki að því að skapa
frjótt námsumhverfi þar sem vellíðan er tryggð
og styrkleikar hvers og eins fá að njóta sín
Menntunar og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg
• Reynsla af stjórnun og rekstri
• Áhugi og reynsla í að leiða þróunarstarf
• Góðir skipulagshæfileikar og vilji til að leita
nýrra leiða í skólastarfi
• Sveigjanleiki og framsýni
• Hæfni í samskiptum
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf
umsækjanda og menntun ásamt reynslu hans sem
stjórnanda og þeim verkefnum sem hann hefur
unnið að og lýsa færni hans til að sinna starfi
leikskólastjóra. Umsækjandi þarf einnig að skila
greinargerð með hugmyndum sínum um starfið og
hvernig hann sér Kirkjuból þróast í skólasamfélagi
Garðabæjar undir sinni stjórn.
Staðan er laus frá 1. ágúst 2017.
Umsóknarfrestur er til og með 28. maí 2017.
Nánari upplýsingar um starfið veita Halldóra
Pétursdóttir verkefnastjóri, netfang
halldorapet@gardabaer.is eða í síma 5258500 og
Margrét Björk Svavarsdóttir forstöðumaður
fræðslu- og menningarsviðs, netfang
margretsv@gardabaer.is eða í síma 5258500.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og Félags stjórnenda í leikskólum.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til
að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir að sækja um rafrænt á
ráðningavef Garðabæjar www.gardabaer.is.
GARÐATORGI 7 • SÍMI 525 8500 • GARDABAER.IS
LAUS STAÐA
LEIKSKÓLASTJÓRA Á KIRKJUBÓLI
1
3
-0
5
-2
0
1
7
0
3
:5
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
9
-8
2
F
4
1
C
D
9
-8
1
B
8
1
C
D
9
-8
0
7
C
1
C
D
9
-7
F
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K