Fréttablaðið - 13.05.2017, Page 84
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Lokaverkefnið mitt er afrakst-ur sex mánaða ferlis sem hófst á rannsókn á sterkum
karakterum úr tónlistarheim-
inum, Aaliyah, Rihönnu og fleiri
söngkonum sem hafa afgerandi
stíl. Rannsóknin leiddi mig að
„oversized“ yfirhöfnum og að
fangelsisbúningum og fangelsum,“
útskýrir Hanna Margrét Arnar-
dóttir, ein útskriftarnema fata-
hönnunardeildar frá Listaháskóla
Íslands nú í vor.
„Það er í alvörunni til bleikt
fangelsi í Texas þar sem fang-
arnir eru látnir klæðast bleiku frá
toppi til táar, í þeim tilgangi að
mýkja mennina. Veggir eru einnig
málaðir bleikir. Bleikur litur varð
því áberandi í línunni minni og
rendur, líkt og finna má í fanga-
samfestingum. Sjálf hef ég mikinn
áhuga á íþróttum og lagðist í
rannsóknir á snjóbrettafatnaði
og „díteilum“ í fatnaði ólíkra
íþróttagreina. Í línuna blandaði
ég meðal annars saman fínum
efnum eins og ull og kasmír við
íþrótta- og útivistarefni eins og
jersey og nælon-úlpuefni. Ég óf
einnig efni í tvo jakka, alveg frá
grunni með hjálp Maríu Ásgeirs-
dóttur. Það þurfti að þræða mörg
þúsund þræði gegnum vefstól-
inn. Þetta er búin að vera mikil
vinna, sérstaklega síðustu dagana
fyrir sýningu en sem betur fer
hjálpumst við öll að, bekkjarsystk-
inin, líka andlega,“ segir Hanna
en útskriftarnemar sýndu línur
sínar á stórri tískusýningu í Hörpu
í síðustu viku. Hanna segir afar
lærdómsríkt að undirbúa og setja
upp slíka tískusýningu.
„Sýningin í Hörpu var mjög vel
sótt og heppnaðist ótrúlega vel.
Við höfðum áður haldið tísku-
sýningu á öðru ári í skólanum
þar sem hver sýndi þrjú „lúkk“ en
þessi var allt öðruvísi. Flestir voru
með átta alklæðnaði og við réðum
öllu sjálf. Maður þurfti að skipu-
leggja sig sjálfur og láta allt ganga
upp. Ég lærði ótrúlega mikið af
þessu,“ segir Hanna.
Hvað tekur nú við? „Það eru
allir gluggar opnir. Mig langar út
í starfsnám eða fara af stað með
eigin hönnun hér heima, ég er svo
heimakær. En það er spennandi
að fara út og ná sér í reynslu.“
Í dag mun sýning allra útskrift-
arnema Listaháskólans verða
opnuð í Hafnarhúsinu.
Bleikt fangelsi innblástur
Hanna Margrét Arnardóttir útskrifast úr fatahönnun frá Listaháskóla
Íslands nú í vor. Sterkar söngkonur og fangelsi veittu henni innblástur við
hönnun lokaverkefnisins. Útskriftarsýning hefst í Hafnarhúsinu í dag.
Hanna Margrét Arnardóttir leitaði innblásturs til sterkra karaktera úr tónlistarheiminum og til fangelsis í Texas. Mynd/GvA
Myndir/ Leifur WiLBerG OrrAsOnBleikur litur er áberandi í línu
Hönnu.
rendur fangabúninga sjást hér á jakka. yfirhafnir voru áberandi í línu
Hönnu.
„Það eru allir gluggar opnir. Mig
langar út í starfsnám eða fara af stað
með eigin hönnun hér heima.“
Það eru allir
gluggar opnir. Mig
langar út í starfsnám eða
fara af stað með eigin
hönnun hér heima, ég er
svo heimakær.
Hanna Margrét Arnardóttir
Heimilissýningin AmAzing Home sHow
Sérblað um heimilissýninguna Amazing Home Show
kemur út þann 17. maí.
Í þessu blaði verður hægt að kaupa bæði auglýsingar sem og
kynningar.
Áhugasamir geta haft samband við Jóhann waage
sími 512 5439
johannwaage@365.is
12 KynninGArBLAÐ fÓLK 1 3 . M A Í 2 0 1 7 L Au G A r dAG u r
1
3
-0
5
-2
0
1
7
0
3
:5
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
D
9
-9
1
C
4
1
C
D
9
-9
0
8
8
1
C
D
9
-8
F
4
C
1
C
D
9
-8
E
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K