Fréttablaðið - 13.05.2017, Side 92
Marta Kristín, nemandi við Söngskólann í Reykjavík, var valin „rödd ársins“.
Töfraflautu-
hópurinn eftir
vel heppnaða
sýningu á Ísa-
firði.
Í Söngskólanum eru nemendur frá 10 ára aldri, allt frá byrjendum til nemenda sem stefna að útskrift
sem einsöngvarar eða söngkenn-
arar og vilja leggja tónlist fyrir sig í
framtíðinni. Garðar Cortes stofnaði
Söngskólann árið 1973 og alla tíð
hefur skólinn verið í samstarfi við
The Associated Board of the Royal
Schools of Music í Bretlandi. Þaðan
koma prófdómarar tvisvar ár hvert
og meta frammistöðu söngnema og
píanónema.
Þessa dagana er Julie Costley-
White, einn af prófdómurum
ABRSM, að dæma próf nemenda.
Hún hefur prófdæmt í fjölmörgum
löndum víða um heim og á ekki
nægilega sterk orð til að lýsa
gæðum og kostum nemenda við
skólann og staðfestir að „hvergi
í heiminum skili nemendur jafn
góðum prófúrslitum og á Íslandi!“.
Meistaranámskeið í Söng-
skólanum
„Söngskólinn býður upp á einka-
kennslu í söng og margs konar
námskeið fyrir kóra og söngáhuga-
fólk á öllum aldri. Auk þess eru
haldin ýmis meistaranámskeið
fyrir nemendur skólans. Kiri te
Kanawa, ein þekktasta söngkona
okkar tíma, sem er gestakennari
við Söngskólann, hefur t.d. marg-
sinnis haldið meistaranámskeið í
Söngskólanum, auk ýmissa annarra
þekktra söngvara og píanóleikara
sem koma til landsins víðsvegar
að úr heiminum. Meðal þeirra sem
hafa haldið námskeið nú í vetur eru
Katia Bortoletta, frá Scala-óperunni
í Mílanó, Paul Phoenix úr King’s
Singers, Robert Sund og Bára Gríms
og Chris Foster,“ segir Garðar.
Nemendaóperan flutti Töfra-
flautuna
Söngskólinn er miðsvæðis í Reykja-
vík og þar iðar nú allt af lífi og
hljómar af söng, enda tónleikahald
í algleymingi. „Undanfarnar tvær
vikur hafa verið haldnir níu loka-
og útskriftartónleikar frá skólanum.
Stærsta viðfangsefni vetrarins
Söngskólinn í Reykjavík –
fyrir allan aldur
Næstu daga er hægt að láta drauminn rætast og læra söng en fyrirhuguð
eru inntökupróf hjá Söngskólanum í Reykjavík fyrir næsta haust.
43. sýningin sem Nemendaóperan
setur upp.
„Hvorki meira né minna en
46 söngvarar tóku þátt, yngstu
söngvararnir aðeins 10 ára en það
er spennandi fyrir ungu kynslóðina
er Töfraflautan eftir Mozart sem
Nemendaópera Söngskólans flutti
tvisvar í Hörpu, á Flúðum og Ísa-
firði og þá með þátttöku heima-
manna, sem var kærkomin og eftir-
minnileg,“ segir Garðar, en þetta er
að taka þátt í svona krefjandi
verkefni. Þegar er farið að huga að
næstu uppfærslum og fyrirhuguð
er utanlandsferð Nemendaóperu
Söngskólans,“ segir Garðar. „Svo
erum við sérlega stolt af því að
nemandi Söngskólans, Marta
Kristín Friðriksdóttir, var valin
rödd ársins 2017 í opnum flokki
söngkeppninnar Vox Domini en að
launum fékk hún að halda tónleika
í Kaldalóni í Hörpu.“
Gleði og sjálfstraust
Að sögn Garðars veitir námið
nemendum ómælda gleði og byggir
upp sjálfstraust þeirra. „Unga fólkið
beinlínis blómstrar og það kemur
ljóslega fram á tónleikum, í söng-
leikja- og óperuuppfærslum sem
það tekur þátt í.“
Langflestir söngkennarar á
Íslandi hafa hlotið menntun sína í
Söngskólanum í Reykjavík. Garðar
segir mikilvægt að allir sem vilja
syngja læri frá grunni að beita
röddinni rétt. „Það skiptir ekki
máli hvaða tegund tónlistar maður
vill helst syngja, þeir sem velja sér
sönginn að atvinnu þurfa að vera
tilbúnir að taka þátt í ýmiss konar
uppákomum. Þetta hef ég marg-
sinnis fengið staðfest frá söngv-
urum sem hafa numið við Söng-
skólann. Þeir eru þakklátir fyrir að
hafa grunnþekkingu og tækni til að
byggja á, sama út á hvaða braut þeir
fara í söngnum.“
Næstu daga fara fram inntöku-
próf í Söngskólann en allir umsækj-
endur þreyta inntökupróf. „Þar er
hlustað eftir því hvort röddin er í
lagi og með góða þroskamöguleika.
Gott tóneyra er mikilvægt og önnur
undirbúningsmenntun hjálpar
auðvitað til, þótt hún sé ekki skil-
yrði fyrir inntöku í Söngskólann í
Reykjavík,“ segir Garðar.
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðunni www.songskolinn.is
eða í síma 552-7366.
MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI
HÓTEL- OG MATVÆLASKÓLINN | FERÐAMÁLASKÓLINN | LEIÐSÖGUSKÓLINN
MATSVEINN – MATARTÆKNIR
HEILSA OG MATUR
Matsveina-og matartæknanám er fyrir þá sem starfa eða vilja starfa við matreiðslu og
stjórnun í eldhúsum leik-, grunn- og framhaldsskóla, vinnustaða og heilbrigðis-
stofnana. Námið er einnig heppilegt fyrir þá sem starfa á fiski- og flutningaskipum og
í ferðaþjónustu.
INNRITUN STENDUR YFIR Á MENNTAGATT.IS TIL 31. MAÍ.
Menntaskólinn í Kópavogi
Sími: 594 4000
Stutt , hagnýtt starfsnám
10 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . m a í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
1
3
-0
5
-2
0
1
7
0
3
:5
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
D
9
-A
0
9
4
1
C
D
9
-9
F
5
8
1
C
D
9
-9
E
1
C
1
C
D
9
-9
C
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K