Fréttablaðið - 13.05.2017, Síða 96
Hver hefur þinn ferill í stjórnmálum verið? Hvar byrjaði þetta allt? Ég hef alla tíð haft áhuga á heim-inum í kring um
mig og þá sérstaklega fólkinu og
undirliggjandi hugmyndafræði mis-
munandi samfélagsgerða. Á mínum
yngri árum notaði ég mikið listir til
að tjá hugmyndir mínar og tilfinn-
ingar. Eftir hrun uppgötvaði ég að
upplifun mín á því samfélagi sem ég
bjó í var á skjön við raunveruleikann.
Teppinu hafði verið kippt undan mér
og mér líkaði ekki það sem ég sá og
þá fann ég fyrir lönguninni til að taka
þátt og láta eitthvað gott af mér leiða.
Ég trúði því að við gætum byggt upp
sanngjarnara og fallegra samfélag á
Íslandi og ég trúi því enn.
Hvað kom til að þig langaði að
setjast á Alþingi? Sástu það fyrir
þér fyrir nokkrum árum? Ekki fyrir
mitt litla líf hefði mér nokkurn tíma
dottið í hug að ég myndi taka þátt í
stjórnmálahreyfingu og hvað þá að
ég yrði kosin á þing. Ég kaus í fyrsta
skiptið árið 2009 og þá var ég þrí-
tug. Stjórnmál voru ekki eitthvað
sem mér fannst mig varða. Þegar ég
byrjaði að taka þátt í því að stofna
Pírataflokkinn árið 2012 þá var það
löngun mín til að gera eitthvað sem
skipti einhverju máli sem dreif mig
áfram. Ég hafði tröllatrú á því fólki
sem ég hafði kynnst innan Pírata og
þeim grunngildum sem við höfðum
sett okkur. Mér fannst það ekki
skipta máli hvort ég kæmist á þing
eða ekki, mér fannst skipta mestu
máli að Píratar fengju rödd á þingi
og ég gaf mig alla í að gera það að
veruleika.
Hvað úr reynslubankanum nýtist
þér í starfinu? Það er samansafn af
svo mörgu í lífinu. Allt ferðalagið
hingað og sá lærdómur sem ég hef
aflað mér á leiðinni. Það er erfitt að
taka eitthvað eitt út fyrir sviga en það
sem mér dettur í hug í fljótu bragði
er að mamma sagði mér alltaf að ég
væri svo klár og skemmtileg. Hún
sagði það svo oft að undir lokin þá
trúði ég henni. Ég held að þetta hafi
gert mér kleift að gera ótrúlegustu
hluti.
Sérðu fyrir þér að gera stjórnmál að
ævistarfi? Nei. Stjórnmál eiga ekki að
vera ævistarf. Það á ekki að vera inni
í myndinni. Það er allt of auðvelt að
missa sjónar á því sem skiptir máli.
Vald spillir og eina leiðin til að koma
í veg fyrir það er að dreifa valdinu.
Hvaða frumvarp iðar þú í skinn-
inu að leggja fram? Ég er búin að
leggja það fram! Ekki samt frumvarp
en þingsályktun um skilyrðislausa
grunnframfærslu eða það sem kallast
borgaralaun. Borgaralaunatillagan
snýst um að skipa starfshóp til að
kortleggja leiðir til að tryggja öllum
borgurum landsins skilyrðislausa
grunnframfærslu með það að mark-
miði að styrkja efnahagsleg og félags-
leg réttindi fólks og útrýma fátækt.
Hvar ólstu manninn og hvernig var
æska þín? Ég ólst upp úti um allt.
Aðallega í Bandaríkjunum og Bret-
landi en svo kom ég heim í 10. bekk.
Ég stoppaði samt ekki lengi og var
farin á flakk aftur um 19 ára aldur
en flutti svo alfarið heim um 25 ára
og hef verið hér síðan. Æska mín var
erfið á köflum þar sem ég var alltaf
utanaðkomandi og þurfti oft að líða
fyrir það, bæði úti og svo heima. En
eins og með allt erfiði þá fylgir dýr-
mætur lærdómur og ég lærði að elska
fólkið sem var mér verst vegna þess
að ég skynjaði þjáningu þess jafnt
við mína eigin. Með aldrinum lærði
ég líka að vera óhrædd við að fara
út fyrir þægindarammann minn. Ég
lærði að láta ekkert stoppa mig.
Hvernig nærir þú þig andlega? Ég
mála, skrifa ljóð eða sest niður með
dóttur minni og spjalla við hana um
daginn og veginn. Hennar sýn og
skilningur á heiminum veitir mér
endalausa gleði.
En líkamlega? Ég borða hollan mat
og iðka jóga þegar að ég man eftir því,
sem mætti vera mun oftar.
Hver er fallegasti staður sem þú
hefur komið á? Þeir eru svo margir.
Ég bjó á Ítalíu í ár og hef ferðast um
Balkanskagann og Taíland. Það er
erfitt að gera upp á milli svo fallegra
staða. Ég held samt svei mér þá að ég
hafi aldrei litið aðra eins fegurð eins
og þegar ég keyrði frá Kirkjubæjar-
klaustri að Jökulsárlóni.
Uppáhaldsborg utan landstein-
anna? Það er þá annaðhvort Berlín
eða Sarajevó.
Hvert langar þig mest að ferðast? Til
Suður-Ameríku og Indlands.
Hvernig verðu helgarfríum? Þær
helgar sem ég er með dóttur minni
eru að mestu helgaðar henni. Hún
fær að ráða. Aðrar helgar er ég mest-
megnis að vinna eða lesa eða kannski
að horfa á einhverja góða þáttaröð.
Hvaða hljómsveit eða tónlistar-
maður er mest spilaður á Spotify
aðganginum þínum? Ég er búin að
vera að hlusta slatta á Little Dragon,
Moderat og Samaris.
Hvaða lag tækirðu í karókíi alþing-
ismanna? Líklegast eitthvað með
Carole King eða Janis Ian.
Hvað er síðasta myndband sem þú
horfðir á á YouTube? Minnir að það
hafi verið Mammút-myndband.
Hvaða bók eða rit hefur haft mest
áhrif á líf þitt? Hvers vegna? Þær eru
svo margar. Kurt Vonnegut, Phillip K.
Dick og Iain Banks hafa hiklaust haft
áhrif á hvernig ég hugsa um heiminn,
eins og allir góðir sci-fi rithöfundar
gera.
Hefurðu lent í lífsháska eða ann-
arri dramatískri lífsreynslu? Ég hef
oft lent í dramatískri lífsreynslu en
engu svona einu sem stendur upp úr.
Tæki Carole
King í karókíi
alþingismanna
Halldóra Mogensen er þingmaður Pírata í Reykjavíkurkjördæmi
norður. Hún kaus fyrst þegar hún var þrítug og átta árum síðar var hún
orðin þingmaður. Halldóra stundar jóga, yrkir ljóð og málar myndir.
Fædd: 11. júlí 1979
Börn: 6 ára gömul stúlka
Foreldrar: Arnbjörg Linda
Jóhannsdóttir (nálarstungu-
og jurtalæknir) og Erik Júlíus
Mogensen (tónsmiður)
Menntun: Engin formleg skóla-
ganga. Er mestmegnis sjálf-
menntuð.
Fyrri störf: Ég hef starfað um
víðan völl en lengst í ferða-
þjónustunni. Þar hef ég unnið
sem deildarstjóri hjá Íslenskum
fjallaleiðsögumönnum og svo
ferðahönnuður hjá Iceland
Encounter.
Áhugamál: Ljóðagerð, tónlist,
myndlist, dans, lestur,
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, hefur nú þegar lagt fram draumafrumvarpið sitt en það snýst um svokölluð borgaralaun. FréttaBlaðið/Ernir
Þekktu þingmanninn Halldóra Mogensen
Snærós
Sindradóttir
snaeros@frettabladid.is
1 3 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R36 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
1
3
-0
5
-2
0
1
7
0
3
:5
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
D
9
-7
9
1
4
1
C
D
9
-7
7
D
8
1
C
D
9
-7
6
9
C
1
C
D
9
-7
5
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K