Fréttablaðið - 13.05.2017, Blaðsíða 100
Argentínski læknirinn og uppreisnarmaðurinn Ernesto „Che“ Guevara er án vafa einn af áhrifamesu mönnum sögunnar.
Ekki vegna þrásetu í embætti eða
mikilla formlegra valda, heldur
fremur sem táknmynd. Um ára
tuga skeið hefur hann verið staðal
mynd byltingarhetjunnar, sem tekst
ótrauður á við ofurvaldið knúinn
áfram af brennandi hugsjón. Jafn
framt var Che af mörgum talinn
pólitískur hugsuður og kyntákn.
Menn sem uppfylla flest eða
öll þessi skilyrði hafa verið uppi á
ýmsum tímum: karlmannlegir bar
dagamenn, umvafðir hetjuljóma
sem fönguðu hugi almennings með
réttu eða röngu. Ítalski þjóðernis
sinninn Giuseppe Garibaldi kemur
skjótt upp í hugann þegar talið berst
að slíkum mönnum frá nítjándu öld
inni. Átjánda öldin átti einnig slíka
hetju. Sú nefndist Pasquale Paoli og
kom frá Korsíku.
Paoli er nú um stundir lítt þekktur
utan föðurlandsins, en áhrif hans á
mannkynssöguna voru þó töluverð.
Hann varð fyrirmynd frjálslyndra
afla og byltingarmanna víða um Evr
ópu og var í miklum metum meðal
stofnenda Bandaríkjanna enda er
fjöldi bæja og smáborga sem bera
nafn hans vestanhafs.
Þótt Paoli sé hampað sem mestu
þjóðfrelsishetju Korsíku, er óþarft
að taka fram að hann hafði ekki
erindi sem erfiði. Eyjan Korsíka á
norðanverðu Miðjarðarhafi hefur
alla tíð verið of fámenn, veikburða
og með of öfluga nágranna til að
geta haldið sjálfstæði sínu, nema um
skamma hríð í senn.
Undir lok þrettándu aldar var
Korsíka komin undir vald ítalska
borgríkisins Genúa og hélst sú
skipan næstu aldirnar. Um tíma var
það þó ekki furstinn í Genúa sem
sá um stjórnina, heldur einkabanki
sem var helsti lánardrottinn borg
ríkisins og fékk Korsíku til umsjónar
sem tryggingu fyrir skuldum.
Genúamenn reistu víggirtar
hafnar borgir umhverfis eyjuna, en
höfðu takmarkaða stjórn á eyjar
skeggjum sem höfðust við í þorpum
og bæjum inni í landi, þar sem
Che Guevara
átjándu aldar
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson skrifar
um gleymda sjálf-
stæðishetju.
Lukkuriddarar og skæruhernaður
Á fyrri hluta átjándu aldar tók að
bera á korsískum þjóðernishug
myndum. Má að miklu leyti rekja
þær til manna sem hrökklast höfðu
úr landi vegna ósættis við yfirráð
Genúamanna og tileinkað sér hug
myndastrauma upplýsingarstefn
unnar í útlegð sinni í evrópskum
borgum, jafnt í París sem á Ítalíu.
Árekstrar milli innfæddra og full
trúa ríkisvaldsins urðu tíðari og
árið 1729 braust út allsherjarupp
reisn. Ástæða hennar var ný skatt
lagning, sem bættist við óánægju
með spillta stjórnarhætti og van
mátt Genúamanna til að verja íbúa
Korsíku fyrir árásum sjóræningja.
Genúastjórn reyndist ófær um að
ráða niðurlögum uppreisnamanna,
sem beittu óspart skæruhernaði
gegn fjölmennum innrásarhernum
og neyddist því til að leita á náðir
öflugri grannríkja. Korsíkumenn
skorti hins vegar pólitíska forystu
eða leiðtoga til að sameinast um.
Til marks um örvæntingu þeirra,
létu uppreisnarmenn sannfærast af
fagurgala þýsks ævintýramanns sem
lofaði að leiða þá til sigurs, þrátt
fyrir að hafa enga hernaðarreynslu
og tvær hendur tómar. Sá þýski steig
á land í Korsíku með aðstoð nokk
urra útlaga og herflokks frá Túnis,
lýsti þegar yfir stofnun konungs
ríkisins Korsíku og lét krýna sig sem
Theodór fyrsta. Hann ríkti frá mars
og fram í nóvember árið 1736 í einu
skammlífasta ríki sögunnar. Þá hélt
hann til meginlands Evrópu í leit
að lánsfé og hernaðarstuðningi en
var þegar varpað í skuldafangelsi. Er
ferill hans og konungsríkisins Kors
íku oft rifjaður upp í sömu andrá og
valdatíð Jörundar hundadagakon
ungs á Íslandi.
Pasquale Paoli var tæplega ell
efu ára gamall þegar hin vonlitla
valdataka Theodórs fyrsta átti sér
stað. Faðir hans var læknir og þjóð
ernissinni, sem tók virkan þátt í
uppreisninni. Hraktist fjölskyldan
í útlegð til Napólí þegar Pasquale
var á táningsaldri og lærði hann
herstjórnarlist undir leiðsögn föður
síns í hersveit Korsíkumanna við
hirð konungsins af Napólí.
Um þrítugsaldurinn hafði Paoli
áunnið sér virðingu meðal kors
ískra útlaga á Ítalíu, þar sem hann
hvatti landa sína til að berjast sjálfir
fyrir sjálfstæði í stað þess að treysta
á hjálp annarra ríkja eða veðja á
erlenda lukkuriddara. Árið 1755 var
hann kvaddur aftur heim til Korsíku
þar sem hann tók fljótlega að sér
stjórn andspyrnuhreyfingarinnar
sem efndi til nýrrar uppreisnar.
Lýðræði og frjálslyndi
Líkt og tveimur áratugum fyrr, byrj
uðu uppreisnarmenn á að lýsa yfir
stofnun nýs ríkis. Að þessu sinni var
þó ekki um konungsveldi að ræða,
heldur lýðveldi sem var innblásið
af ferskustu stjórnmála og
hugmyndastefnum
álfunnar.
Paoli var kjörinn
forseti og sá sjálfur
um að semja stjórn
arskrána, sem þótti
frjálslynd, enda
innblásin af hug
myndum heimspek
ingsins Rousseau.
Grunnstef hennar
var jafnræði fyrir
lögum, sanngjörn
skattheimta og að
kosningaréttur væri
sem almennastur.
Konur höfðu fengið
að kjósa á héraðs og þorpsfundum
á Korsíku og virðist sú regla hafa
verið viðhöfð í hinu nýja lýðveldi.
Sé sú ályktun rétt, var Korsíka lang
fyrsta landið þar sem konur fengu
kosningarétt.
Valdamenn í Genúa sáu sæng sína
upp reidda og í stað þess að reyna
sjálfir að berja niður uppreisnina,
gripu þeir til þess ráðs að selja
Frökkum eyjuna á laun. Franski her
inn réðst svo á Korsíku með ofurefli
liðs árið 1768 og braut lýðveldið á
bak aftur á innan við ári. Pasquale
Paoli flúði land í kjölfarið, fyrst til
Vínarborgar en síðan til Lundúna.
Athygli umheimsins var þó
vakin. Frjálslyndir menntamenn
hömpuðu lýðveldisstjórnarskránni
sem fyrirmynd annarra samfélaga
og hetjuleg barátta Korsíkumanna
gegn ofureflinu vakti aðdáun. Rit
höfundurinn Voltaire dró upp
magnaðar lýsingar af hugprýði
þeirra og fórnfýsi. Bera þær keim af
hugmyndinni um hinn „göfuga villi
mann“, þar sem fólkinu á Korsíku
var lýst sem hjartahreinum náttúru
börnum sem bæru siðferðislega af
spilltum íbúum stórveldanna.
Um svipað leyti sendi skoski rit
höfundurinn James Boswell frá sér
geysivinsæla ferðasögu frá Kor
síku, þar sem Paoli var hafinn til
skýjanna sem hetja og hugsuður. Sú
bók varð öðru fremur til að tryggja
stöðu Korsíkumannsins sem hálf
gerðrar poppstjörnu í Lundúnum,
þar sem hann baðaði sig í sviðsljós
inu og beið eftir að pólitískir vindar
breyttust. Í löndum Breta í Norður
erfitt var að ferðast um og auðvelt
að verjast innrásarherjum. Þannig
myndaðist visst valdajafnvægi sem
helst raskaðist ef herraþjóðinni datt
í hug að innheimta nýja skatta. Ann
ars fór orka Korsíkumanna einkum í
erjur milli ættbálka, sem staðið gátu í
margar kynslóðir og því erfitt að sam
eina þjóðina gegn utanaðkomandi
óvinum. Raunar er óljóst hvort íbúar
hafi litið á sig sem sérstaka þjóð, hvað
þá að í þeim hafi blundað óskir um
að stofna sjálfstætt þjóðríki.
Ameríku var aðdáunin á Paoli síst
minni. Þar horfðu sjálfstæðissinnar
til Korsíkumanna sem fyrirmyndar
og létu sig dreyma um að skipta út
nýlendustjórninni fyrir lýðveldi
með framsækna stjórnarskrá.
Franska byltingin gaf Pasquale
Paoli færi á að snúa aftur til fóstur
jarðarinnar. Vegna fyrri baráttu
sinnar við konungsvaldið hafði
hann hetjustöðu í huga margra
byltingarmanna og var honum því
falin landsstjórn á Korsíku. Útlegðin
í Bretlandi hafði þó breytt viðhorf
um Paolis á mörgum sviðum. Hann
var á laun dyggur stuðningsmaður
bresku krúnunnar og fór snemma
að leggja á ráðin um að koma Kors
íku undir vald hennar. Deilt er um
hvort Paoli hafi hreinlega komið
aftur til heimalandsins sem breskur
útsendari eða hvort hann hafi fyrst
orðið afhuga frönsku byltingunni
eftir að franska konungsfjölskyldan
var tekin af lífi í ársbyrjun 1793.
Samband Paolis við stjórnina í
París kólnaði skjótt og síðar á árinu
1793 ákvað byltingarstjórnin að
setja hann af. Hann brást við með
því að lýsa sjálfan sig forseta Korsíku
en því næst að tilkynna um stofnun
Enskkorsíska konungsveldisins,
sem myndi lúta stjórn hins sturlaða
Georgs þriðja Bretakonungs.
Bretar, sem áttu í styrjöld við
Frakka, sáu sér leik á borði að ná var
anlegri fótfestu við mitt Mið jarðar
haf og frá 17946 blöktu bresku
krúnutáknin yfir Korsíku ásamt
hinum sérkennilega fána eyjarinn
ar, sem sýnir höfuð þeldökks Mára
með klút um ennið. Innan skamms
gerðu Bretar sér þó grein fyrir því að
vonlaust yrði til lengdar að halda
völdum á Korsíku, svo að segja í kál
garði Frakklands. Ríkið nýstofnaða
var gefið upp á bátinn og Pasquale
Paoli hrökklaðist á ný í útlegð eftir
enn styttri valdatíma en fyrr.
Paoli átti ekki afturkvæmt til
Korsíku og lést í Lundúnum árið
1807. Sú fregn féll í skuggann af
ótalmörgum stríðsfréttum þess árs,
sem flestar hverfðust um son gamla
einkaritara Paolis frá lýðveldisár
unum á Korsíku. Ritarinn hét Carlo
og bar ættarnafnið Buonaparte.
… hetjuleg barátta
KorSíKumanna gegn
ofureflinu vaKti að-
dáun.
-50%
Súpukjöt
2. FLOKKUR
399 KRKG
1 3 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R40 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
1
3
-0
5
-2
0
1
7
0
3
:5
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
D
9
-4
C
A
4
1
C
D
9
-4
B
6
8
1
C
D
9
-4
A
2
C
1
C
D
9
-4
8
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K