Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1993, Blaðsíða 7

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1993, Blaðsíða 7
Árni Páll Árnason, lögfræðilegur ráðunautur utanríkisráðherra í Evrópumálum: EVRÓPSKA EFNAHAGSSVÆÐIÐ FRÁ SJÓNARHÓLI ÍSLANDS Hvers vegna EES?, er spumingin sem fyrir mig er lögð í dag. Hvaða ástæður lágu að baki því að farin var sú leið að leita samninga um Evrópskt efnahagssvæði með öðrum EFTA ríkjum, í stað þess að leita aðildar að EB eða tvíhliða samninga? Það er fyrst til að taka að sú ákvörðun að taka þátt í samningaviðræðum um EES á rætur að rekja allt aftur til ársbyrjunar 1989. Jacques Delors, for- seti framkvæmdastjómar Evrópubandalagsins bauð EFTA-ríkjunum samninga sem tækju til alls fjór- frelsisins, þ.e. frjálsra vöm-, fjármagns- og þjón- ustuviðskipta og frjálsrar farar launþega. Jafnframt yrði þá samið um ýmis jaðarmálefni sem tengjast fjórfrelsinu, s.s. menntamál, rannsóknir og þróun, umhverfismál og fleira. Þá gæfist einnig kostur á því að ræða önnur samskiptamál íslands og Evrópu- bandalagsins í tengslum við EES-samningana. EFTA-ríkin voru einhuga um að taka þessu boði og var það gert á leiðtogafundi EFTA-ríkjanna í Osló 14. -15. mars 1989. Ríkisstjóm Steingríms Hermannssonar taldi að æskilegt væri að ísland gæti gerst aðili að samrana- þróuninni í Evrópu, og þá sérstaklega fjórfrelsinu, án þess að taka á sig allar þær skuldbindingar sem EB-aðild fylgja. I því sambandi var horft til yfir- þjóðlegra stofnana, sem mönnum stóð nokkur stuggur af, sem og til þess að fiskveiðistefna EB var og er óásættanleg fyrir íslendinga. Þá er ljóst að samflot íslendinga með öðmm EFTA ríkjum hefur verið okkur árangursríkt í gegum tíðina. Vegna EFTA aðildar bauðst okkur fríverslunarsamningur við EB árið 1972. Engum blandaðist hugur um að aðgangur að fjórfrelsinu fengist aldrei í tvíhliða samningi við Evrópubandalagið. Tvíhliða viðræð- um höfðu líka, allt frá 1976 fylgt aðrir gallar. Þannig er mál með vexti að við Islendingar höfð- um, þegar hér var komið sögu, gert ítrekaðar til- raunir til að fá kjör fyrir fiskútflutning okkar á Evr- ópumarkað bætt. Innganga Spánar og Portúgals í EB, okkar helstu saltfiskkaupenda, hafði gert stöðu okkar skv. bókun 6 lakari en svo að við mætti una. Evrópubandalagið svaraði hins vegar allri málaleit- an Islendinga í þessa veru á einn hátt; þ.e. fiskveið- heimildir yrðu að koma í stað frekari tollívilnana, auk þess sem fulltrúar bandalagsins minntu á óefnd fyrirheit um fiskveiðsamning milli íslands og EB, sem gefin voru í lok síðasta þorskastríðs. EES-við- ræðumar buðu upp á þann möguleika að unnt yrði að ræða samskipti Islands og EB, þ.á m. tollívilnan- ir á nýjum grundvelli. Það voru því margar augljós- ar ástæður sem ollu því að rétt var að reyna til þrautar hvaða kjör byðust í EES-samningunum. Eg tel rétt að fjalla hér stuttlega um meginmarkmið ís- lendinga í samningviðræðunum og hvemig til tókst. Helstu áhersluatriði íslendinga í EES-viðræðunum í skýrslu utanríkisráðherra til Alþingis í október 1990 vom helstu áhersluatriði Islendinga í EES- samningaviðræðunum rakin. Þar var efst á lista sú megin krafa að vörusviðið yrði að ná til allra sjávar- afurða; að samkeppnisskilyrði skyldu vera jöfn; að bókun 6 skyldi halda gildi sínu, hvort sem EES- samningnum kynni að verða sagt upp eða ekki. Þá var tekið fram að eignarhald erlendra aðila yrðu ekki leyft í náttúruauðlindum; að vamaglaákvæði yrði sett um frjálsan atvinnurétt og að ekki yrði slakað á kröfum um öryggi-, hollustuhætti og um- hverfisvemd. Árangurinn liggur nú fyrir. Þegar samningurinn verður að fullu kominn til framkvæmda mun sjávar- útvegurinn í fyrsta sinn í sögunni standa nokkum 7

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.