Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1993, Síða 15

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1993, Síða 15
Ari Skúlason, hagfræðingur. ÞJÓÐARTEKJUR, ÞRÓUN ATVINNULÍFS, FRJÁLS FLUTNINGUR FÓLKS OG ATVINNUFRELSI Góðir ráðstefnugestir Eg vil strax í upphafi þakka fyrir þann heiður sem mér er sýndur með því að fá að taka þátt í þess- ari ráðstefnu. Eg vil taka fram strax í upphafi að ég er ekki að flytja skoðanir ASI og tala einungis út frá eigin brjósti. Um fátt hefur verið rætt eins mikið hér á landi á undanfömum mánuðum og EES. Umræður um samninginn um Evrópska efnahagssvæðið hafa ver- ið minni því stór hluti umræðnanna hefur því miður snúist um allt aðra hluti. Misskilningur, fordómar, slagorð, oftúlkanir o.fl. hafa tekið sinn hluta af um- ræðunni eins og gengur. Ég held að fáum málum hafi verið misþyrmt svo mikið í pólitískri umræðu hér á landi eins og þessu máli. Nægir þar að nefna að allir stjómmálaflokkarnir nema tveir hafa kúvent í málinu frá því að það hófst og það án þess að um nokkrar verulegar efnislegar breytingar hafi verið að ræða varðandi málið sjálft. Umræðan hefur líka pólast mjög mikið, sumir telja EES gefa okkur lausn allra okkar helstu vandamála og aðrir telja að við séum að fóma sjálfsforræði þjóðarinnar með því að samþykkja EES-samninginn. Hvorugt er rétt eins og flestir heilvita menn ættu að sjá. Áður en ég kem að því að fjalla um meginefni er- indis míns, sem snýr að vinnumarkaðinum langar mig til þess að koma aðeins inn á stöðu íslands í Evrópu framtíðarinnar. Eins og allir vita ríkir enn nokkur óvissa um framtíð EES-samningsins. Fjölmiðlar hafa sagt okk- ur mjög misvísandi fréttir af því hvort mögulegt sé að samningurinn taki gildi þann 1. júlí á þessu ári. Ég tel það mög mikilvægt að þessi tímasetning standist. Fyrir viðskiptahagsmuni okkar skiptir miklu máli að EES taki til starfa sem fyrst. Pólitískt skiptir það líka máli fyrir alla málsaðila, ekki síst okkur. Eins og allir vita eru 4 EFTA-ríkjanna um það bil að hefja aðildarviðræður við EB. Margir eru reyndar á þeirri skoðun að EES verði aðeins tíma- bundin málamyndalausn, eftir að Svíar, Norðmenn, Finnar og Austurríkismenn gangi inn í EB verði ekkert eftir. Einmitt vegna þessa er mikilvægt að EES-samningurinn taki gildi þann 1. júlí til þess að þessar þjóðir fái viðskiptahagsmunum sínum borgið sem fyrst. Ég tel þannig afar brýnt að EES fái að starfa nokkuð lengi áður en til úrslita dregur í aðild- armálum ríkjanna fjögurra. Við íslendingar erum nokkuð sammála um að inn í EB höfum við ekkert að gera miðað við núver- andi aðstæður, þannig er aðild að EB alls ekki á dagskrá hér. Fari svo að Norðmenn, Svíar og Finnar gangi inn í EB munum við auðvitað standa í alger- lega nýrri stöðu sem eitt Norðurlanda utan EB, og þá verðum við að hugsa aðildarspuminguna upp á nýtt. En fram að því getum við bara vonað að þessi ríki gangi ekki í EB og láti sér nægja að starfa innan EES. Sú lausn væri okkur best að mínu mati. Ég tel reyndar afar litlar litlar líkur á því að þess- ar þrjár þjóðir gangi allar inn í EB á næstu ámm. í fyrsta lagi er ljóst að samningar um aðildarskilmála verða erfiðir og í öðru lagi virðist vera mikil and- staða meðal þessara þjóða gegn því að gerast aðilar að EB. EES leysir brýnustu nauðsyn þessara þjóða og því er nauðsynlegt að samningurinn taki gildi sem fyrst og gildi sem lengst sem samvinnuvett- vangur Norðurlandanna og EB. Með þessu er ég kannski að varpa fram þeirri óskhyggju að EES verði það góð lausn fyrir þessar þrjár þjóðir að á- hugi þeirra á að ganga í EB dvíni. 15

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.