Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1993, Blaðsíða 18

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1993, Blaðsíða 18
hefðir sem ekki síendur til að breyta þótt við verð- um aðilar að EES. Engar kvaðir eru heldur um það í samningnum að þessu þurfi að breyta. Er allt miklu betra hér? Því er oft haldið fram að það sé mjög óhagstætt fyrir ísland og Norðurlöndin að fara út í víðtæka samvinnu um vinnumarkaðs- og félagsmál við ríki EB vegna þess að kjör og aðstæður séu svo miklu betri hjá okkur en hjá hinum þjóðunum. Þetta hefur auðvitað verið kannað ofan í kjölinn af ASI og syst- ursamtökum okkar á Norðurlöndunum. Niðurstaðan er sú að hér er um eina klisjuna enn að ræða. Að- stæður hér eru betri á sumum sviðum en innan EB, en EB er okkur framar á sumum sviðum líka. Það er liggur allavega á borðinu að það reglugerðarverk sem við þurfum að taka upp vegna EES-samnings- ins færir okkur ekki aftur á bak, en á sumum veiga- miklum sviðum færir það okkur fram á við. I tengsl- um við EES-samninginn höfum við þurft að breyta ýmsum lögum um réttindi launafólks til betri vegar vegna þess að aðstæður í EB eru betri en hér. Sem dæmi um þetta eru lög um ríkisábyrgð á launum vegna gjaldþrota fyrirtækja, lög um hópuppsagnir, lög um réttindi starfsfólks við eigendaskipti á fyrir- tækjum og lög um starfsmenntun. A öllum þessum sviðum hefur EES-samningurinn verið beinn eða ó- beinn hvati til þess að við þurfum að bæta úr. EES og evrópskt atvinnulíf EES samningurinn býður upp á víðtækt samstarf þeirra þjóða sem að samningnum standa. I inngangi samningsins setja samningsaðilar sér ýmis háleit markmið t.d. í sambandi við atvinnustig, verndum umhverfis, jafna stöðu kynjanna o.fl. Það liggur í augum uppi að mörg brýnustu vandamála nútímans verða einungis leyst með víðtækri samvinnu á milli þjóða. Umhverfismál eru gott dæmi um þetta. Það hefur lítinn tilgang fyrir eitt nki að herða reglur um útblástur frá stóriðjuverum ef ríkið við hliðina gerir ekki neitt. Eina raunhæfa leiðin til þess að ná fram úrbótum í umhverfismálum er að fleiri ríki vinni saman, setji sameiginlegar reglur og vinni saman að málunum. Að undanfömu hafa menn æ betur gert sér grein fyrir því að sama gildir um atvinnumálin og um- hverfismálin. Sameiginlegt átak margra þjóða er nauðsynlegt til þess að hægt sé að draga úr atvinnu- leysi á raunhæfan hátt. Atvinnuleysi í Evrópu er nú gífurlegt og svo hefur verið í langan tíma. Þessi mál hafa verið rædd mikið innan EB að undanfömu og auðvitað er EES mjög æskilegur vettvangur til þess að fást við þessi mál, enda er hátt atvinnustig eitt af markmiðum EES samningsins. Þótt EES sé ekki enn komið á koppinn eru þessi mál samt farin að hreyfast á vettvangi EES. Að frumkvæði Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra Noregs munu fjármálaráðherrar allra EFTA og EB landanna hitt- ast í Lúxemborg þann 19. apríl nk. til þess að ræða stöðu atvinnumála í Evrópu og leiðir til úrlausnar. Ég tel þennan fund vera mjög mikilvægan og nauð- synlegt að vanda til undirbúnings hans. í fyrsta skipti höfum við íslendingar því miður æma ástæðu til þess að taka þátt í þessu samstarfi. Auðvitað hefur hátt kaupmáttar- og atvinnustig í Evrópu alltaf skipt okkur máli vegna þess að þar em okkar helstu útflutningsmarkaðir, og velgengni þar þýðir að við seljum mikið á háum verðum. En úr- lausn þessara mála skiptir okkur nú miklu meira máli en áður vegna þess hve atvinnuleysi er orðið mikið hér á landi. Ein ástæða aukins atvinnuleysis hér er bágur efnahagur iðnríkjanna og því er brýnt fyrir okkur að hægt verði að auka hagvöxt í þessum ríkjum með sameiginlegu átaki. I þessu sambandi skiptir aðild okkar að EES máli vegna þess að við höfum möguleika á því að koma að málinu og koma sjónarmiðum okkar á framfæri ef einhver eru. Ég hef þá trú að þetta samstarf um atvinnumál í Evrópu sé aðeins upphafið að enn frekara samstarfi þessara þjóða á sviði efnahagsmála. Þegar efnahags- íegum landamærum hefur verið meira eða minna eytt á milli þjóða þarf víðtæka samvinnu til að ná árangri við stjóm þessara mála . Lokaorð Opinn vinnumarkaður 18 ríkja er ekkert lítið dæmi. í þessu samstarfi rekast margir hlutir á. T.d. skiptir norður/suður miklu í þessu sambandi. Þetta samstarf og þessi vinnumarkaður nær frá Grikklandi og Ítalíu í suðri til Islands og Noregs í norðri. Það gefur auga leið að reglur, hefðir og lausnir á vinnu- markaði þessara ríkja eru mjög mismunandi og oft heyrast þær raddir að þessi ríki eigi erfitt með að vinna saman. Við norðurlandabúamir höfum oft tilhneigingu til þess að segja sem svo að við séum á toppnum hvað kjör, aðbúnað og réttindi varðar. Á Norður- löndunum sé verkalýðshreyfingin sterk og í því sambandi höfðum við gjarnan til almennrar þátttöku í verkalýðsfélögunum sem auðvitað er mun víðtæk- ari á Norðurlöndunum en víðast hvar í Evrópu. En eftir að hafa skoðað málið í kjölinn kemur í ljós að málið er kannski ekki alveg svona einfalt. Norræna vinnumarkaðslíkanið er nokkuð einstakt að því leyti að þar er allur réttur sameiginlegur, það 18

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.