Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1993, Síða 25

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1993, Síða 25
Árni Tómasson, löggiltur endurskoðandi. AHRIF EES A BOKHALD OG REIKNINGSSKIL Á ÍSLANDI 1. Inngangur. Samningur um Evrópska efnahagssvæðið (EES) hefur verið staðfestur á Alþingi íslendinga og tekur væntanlega gildi á miðju ári 1993. Með samningn- um hafa Islendingar skuldbundið sig til að samræma íslensk lög og fyrirmæli að hætti 9 tilskipana og einnar reglugerðar á sviði félagaréttar. Almennur aðlögunartími til að koma breytingunum á er til 1. janúar 1995. Meginmarkmið Evrópubandalagsins er að stuðla að friði og til þess að ná þessu meginmarkmiði hefur verið lögð mikil áhersla á að greiða fyrir því að vinnuafl, vörur, þjónusta og fjármagn geti flust ó- hindrað milli aðildarlandanna. Til þess að stuðla að meiri hreyfanleika á vinnuafli hafa verið felld úr gildi ákvæði um vegabréf og atvinnuleyfi, aflétt hef- ur verið hömlum á eignakaupum og fjármagnsflutn- ingi einstaklinga, auk þess sem persónuskattar hafa verið samræmdir. Vöru- og þjónustuviðskipti hafa verið aukin með afnámi tolla, samræmingu á virðis- aukaskatti og samræmingu á mælieiningum, stöðl- um hvers konar og gjaldmiðli. Fjármagnsflutningar hafa verið auðveldaðir með því að fella niður gjald- eyriseftirlit og að samræma viðskiptalöggjöf, þ.m.t. um skattlagningu félaga og flutning á skattalegum réttindum milli landa. Ennfremur hafa fjármagns- flutningar verið auðveldaðir með því að stuðla að samræmdum reglum um bókhald, ársreikningagerð og endurskoðun og er það einkum þessi þáttur máls- ins sem ég mun gera að umtalsefni. í erindi þessu mun ég því fyrst fjalla um ákvæði til- skipananna, einkum þeirra sem varða ársreikninga og endurskoðendur, því næst mun ég fjalla um stöðu ársreikningagerðar og endurskoðenda í Evrópu og að lokum velta upp hugmyndum um hvaða breyt- ingar séu í vændum að því er varðar ársreikninga- gerð og störf endurskoðenda. 2. Tilskipanir og reglugerð. 2.1. Tilskipanir. Framkvæmdastjóm Evrópubandalagsins beitir í meginatriðum tveimur aðferðum til að ná markmið- um sínum fram. Annarsvegar eru tilskipanir sem að- ildarrrkin skuldbinda sig til að fella inn í eigin laga- bálka innan tilskilins tíma og hins vegar reglugerðir sem öðlast lagagildi, án þess að hljóta samþykki viðkomandi þjóðþinga. Tilskipanirnar níu á sviði fé- lagaréttar, sem EES samningurinn tekur til, eru við það miðaðar að samræma réttarreglur, t.d. þannig að stofnsetning og rekstur félaga og fyrirtækja annars staðar en í heimalandi verði auðveldari, vegna þess að svipaðar reglur gilda hvarvetna á svæðinu og eru þegnunum kunnar. Hér fer á eftir yfirlit um tilskip- anirnar svo og markmiðið með hverri þeirra: Fyrsta frá 1968. Fjallar um samræmdar ráðstafanir til að vernda hagsmuni lánardrottna hlutafélaga o.fl. með því að birta upplýsingar, veita aðgang að ársreikningum og takmarka möguleika á að ógilda skuldbindingar sem félag hefur tekist á hendur. Önnur frá 1976. Fjallar um samræmdar ráðstafanir til að tryggja lánardrottnum og hluthöfum almenningshlutafélaga lágmarksvemd, með ákvæðum um lágmarkshlutafé (25.000 ECU) og takmörkun á úthlutun fjár úr félagi 25

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.