Ráðunautafundur - 12.02.1979, Blaðsíða 18
98
breyting. dskyld eða óháð svokölluðum veiðimálum, sportveiði
og ferðamannaiðnaði í því sambandi, þurfa að koma til atvinnu-
sjónarmið og raunhæf viðleitni í þá átt að hagnýta náttúrlegar
auðlindir íslands, til lands og sjós, til laxaframleiðslu, er
skipt gæti verulegu máli fyrir lífsafkomu þjóðarinnar í heild.
Slíkt atvinnustjónarmið verður naumast betur skýrt en með því
að vitna í viðtal, sem birtist við dr. Donaldson í Norgunblaðinu
þann 18. mars 1978. Þar segir hann: "Þið getið sleppt 100
milljónum laxaseiða í hafið á ári. Þið eruð komnir með 200
mílna fiskveiðilögsögu, þar sem enginn utanaðkomandi aðili
getur komist að laxinum í beitarlandinu. Þið hafið orkuna,
vatnið, fæðuna og beitarlandi. Ef við lítum á hlutföllin
milli þess sero gera þarf í landi og þess, sem sjórinn sár um,
kerour í ljós að landvinnan, klakið og eldið er aðeins 1%,
sjórinn sér um 99%". Sarokværat þeirri áætlun um verðmætasköpun
er ég nefndi hér á undan, myndu 100 milljónir laxgönguseiða
skila 140 milljörðum króna brúttó tekjum á ári. Væntanlega
hefur dr. Donaldson gert sér ljóst, að slfku takmarki yrði ekki
náð með Atlantshafslaxi, með því að nægilegt eldisvatn fyrir-
finnst naumast fyrir slíka framleiðslu. Til þess myndi þurfa
magn af vatni um það bil einu og hálfu sinnum meira en meðal-
vatnsmagn Laxár £ Aðaldal, 12-14 gráðu heitu. Mig grunar, að
honum hafi verið það fyrst og fremst í mun að stjaka nokkuð
yið þeim ríkjandi sjónarmiðum fslenskra veiðimála og sportveiði-
manna, sem eru tiltölulega lítilvæg frá þjóðhagslegu sjónarmiði,
þótt hér sé ura að ræða mikilvæg hlunnindi, er veita fjölda
manns margar ánægjustundir. Enda mun lífsstarf dr. Donaldson
á þessum vettvangi hafa verið nátengdara atvinnu- eða fram- .
leiðslusjónarmiðum en sportveiði eða veiðimálum, eins og við
þekkjum til hér á landi. Þó er ekki örgrannt um, að dr .
Donaldson kunni að hafa haft í huga aðrar laxategundir en
Atlantshafslax, t.d. svokallaðan chum eða dog salmon, sem ég
gaf hið ljóta nafn hundlax £ greinarkorni er ég birti um
þennan stórmerkilega fisk £ ÆGI fyrir um tveim árum. Með
ákyeðnu magni mætti sennilega framleiða um 10 sinnum fleiri
sjógönguseiði af þessari laxategund en af Atlantshafslaxi. Er
raunar auðsætt að við ættum að kanna möguleika á fraraleiðslu
þessa fisks hér við land.