Fréttablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 6
2 4 . m a í 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U R6 f R é t t I R ∙ f R é t t a B L a Ð I Ð
Litla Borg ehf
Aðalfundur Litlu Borgar ehf verður haldinn miðvikudginn 31. maí, 2017,
kl. 20:00 að Lágmúla 4 , Reykjavík (Akóges salnum, 3ju hæð).
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lögð fram tillaga um arðgreiðslu.
3. Tillaga um breytingu á 11. gr. samþykkta
Litlu Borgar ehf.
4. Önnur mál.
Sjá nánar á heimasíðu félagsins
www.litlaborg.is
Stjórn Litlu Borgar ehf
Laugavegur 61 ︲ Kringlan ︲ Smáralind ︲ Sími 552 4910
jonogoskar.is
Glæsileg
útskriftargjöf
Útskriftarhálsmen 2017 eru komin.
Okkar hönnun og smíði.
Gullrós
Verð 21.000 kr.
Silfurstjarna
Verð 7.900 kr.
Gullstjarna
Verð 18.000 kr.
Nýjir vinir
bætast í hópinn
Fæst í FK, Byko, A4, Lyfju, Elko,
íslandspóst og um land allt.
Safnaðu þeim
öllum
Bæjarhrauni 2 | Hafnarfirði | Sími: 4370000 | hafis@hafis.is
Komdu og fáðu rjómaís og laktósafrían vegan ís
Íslenskur ís með ítalskri hefð
BREtLaND Minnst 22 létust og yfir sex-
tíu særðust í sjálfsmorðssprengju árás
í tónleikahöllinni Manchester Arena,
í Manchester-borg, í fyrrakvöld. Stór
hluti látinna og særðra er undir átján
ára aldri. Ekki er vitað hvar nokkur
börn eru niðurkomin og stendur leit
yfir.
Þetta er mannskæðasta árásin á
breskri grundu frá sprengjuárásum
í lestarkerfi Lundúna árið 2005. Þar
fórust 56.
Sprengingin kvað við undir lok
tónleika bandarísku poppstjörn-
unnar Ariönu Grande um klukkan
hálf ellefu að staðartíma. Árásar-
maðurinn, hinn 23 ára gamli Salam
Abedi, sprengdi sig í loft upp í anddyri
hallarinnar þar sem fólk var á leið út
af tónleikunum. Abedi var sonur líb-
ískra innflytjenda en fæddist og hafði
búið alla sína ævi í Manchester.
Talið er að heimatilbúin nagla-
sprengja hafi verið notuð við ódæðis-
verkið. Samtökin Íslamska ríkið hafa
lýst því yfir að sprengjuvargurinn hafi
verið á þeirra vegum. Tveir hafa verið
handteknir í tengslum við árásina en
enn bendir ekkert til að Abedi hafi átt
sér samstarfsmenn.
Þrjú fórnarlömb sprengingarinnar
hafa verið nafngreind. Það eru þær
Georgia Callander, átján ára, Saf-
fie Rose Roussos, átta ára, og John
At kinsson, 28 ára.
Eftir árásina greip mikil ringulreið
um sig þegar tónleikagestirnir, rúm-
lega 20 þúsund talsins, streymdu út
úr höllinni. Leigubílstjórar buðust
til að aka fólki endurgjaldslaust í
skjól, gistiheimili opnuðu dyr sínar
og sömu sögu er að segja af ýmsum
íbúum í nágrenni hallarinnar. Allir
lögðust á eitt við að hjálpa þeim sem
á þurftu að halda.
Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands, og Elísabet Englands-
drottning fordæmdu báðar árásina í
ávörpum í gær. Drottningin sagði að
þar hefði verið á ferðinni „hrein villi-
mennska“ og May benti á að þetta
væri ein alversta hryðjuverkaárás sem
dunið hefði á Bretlandi.
Þjóðarleiðtogar og stjórnmála-
menn víðsvegar um heiminn for-
dæmdu árásina einnig. Í þeim hópi
voru Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands, og forsætisráðherrann Bjarni
Benediktsson. Í samúðarkveðju for-
seta til Bretadrottningar segir meðal
annars að „enginn sem styðji ódæði af
þessu tagi verðskuldi skjól í lýðræðis-
samfélagi“.
„Ekkert fær útskýrt viljann til að
ráðast á saklaust fólk, á börn, unglinga
og foreldra þeirra, eins og gert var með
grimmdarverkinu í Manchester í gær-
kvöldi,“ ritaði Bjarni Benediktsson for-
sætisráðherra. johannoli@frettabladid.is
22.30 Salam
Abedi sprengdi
sig undir lok tón-
leikanna.
Árásarstaðurinn
Victoria Station
manchester arena
22. maí 2017 – manchester
Sjálfsvígsárás 22
7. apríl 2017 – Stokkhólmur
Vörubíl ekið á fólk 5
3. apríl 2017 – St. Pétursborg
Sjálfsvígsárás í lestarkerfi 15
19. desember 2016 – Berlín
Vörubíl ekið á fólk á jólamarkaði 12
26. júlí 2016 – Normandí
Kaþólskur prestur myrtur 1
14. júlí 2016 – Nice
Vörubíl ekið á fólk 77
12. júní 2016 – Orlando
Skotárás á skemmtistað 50
26. mars 2016 – Brussel
Þrjár sjálfsvígsárásir í borginni 32
13. nóvember 2015 – París
Sprengju- og skotárásir 130
7. – 9. janúar 2015 – París
Árásin á Charlie Hebdo 17
✿ Árásarstaðurinn í gær
✿ Árásir í hinum vestræna heimi undanfarin ár
Stór hluti látinna og
særðra á barnsaldri
Heimatilbúin naglasprengja var notuð við ódæðisverkið í tónleikahöllinni
Manchester Arena í fyrrakvöld. Eitt fórnarlamba árásarinnar var átta ára gamalt.
Árásarmaðurinn var ættaður frá Líbíu en hafði búið alla sína ævi í Manchester.
Fólk kom saman í borginni til að minnast hinna látnu og biðja fyrir hinum særðu. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
2
4
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
D
-0
8
F
0
1
C
E
D
-0
7
B
4
1
C
E
D
-0
6
7
8
1
C
E
D
-0
5
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K