Fréttablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 13
Á upphafsdögum gossins í Eyjafjallajökli, meðan eingöngu gaus á Fimmvörðu
hálsi, ákvað ég og þrír aðrir að
stofna ferðaskrifstofu sem mundi
sérhæfa sig í móttöku erlendra
gesta. Ég byggi á áratuga reynslu úr
ferðaþjónustu og tveir hluthafanna
eiga og reka ferðaskrifstofu í Hol
landi sem sérhæfir sig í Íslands
ferðum. Við töldum okkur hafa
góðan grunn og að eldgosið yrði
okkur ekki til mikilla trafala. Sem
ekki varð, heldur hefur mestum
vandræðum valdið hvað rekstr
arumhverfið er óstöðugt. Óstöðug
leikann má kalla manngerðar ham
farir og eru að hluta til af völdum
stjórnvalda.
Það sem ferðaskrifstofa eins og
okkar gerir, er að velja þjónustu
framboð frá öðrum innlendum
fyrirtækjum, eins og gistingu, mat,
bílaleigubíla og afþreyingu, raða
því saman og selja sem einn pakka.
Það skiptir okkur því ekki máli á
hvaða þjónustuþátt ferðaþjónust
unnar skattar og álögur eru lagðar,
það endar í heildarverði pakkanna
okkar.
Frá þeim tíma þegar mitt fyrir
tæki var stofnað árið 2010 höfum
við farið í gegnum fjórar skatta
breytingar í okkar rekstrar
umhverfi. Ef af verður að færa
ferðaþjónustu í efra þrep virðis
aukaskatts á miðju ári 2018 og
lækka svo það þrep í ársbyrjun
2019, þá verða skattbreytingar
orðnar sex, þ.e. breyting á hverju
ári frá 2015 til 2019.
Þessar breytingar eru:
l Innleiðing gistináttagjalds árið
2012.
l Árið 2015 breyttist prósenta
virðisaukaskatts á t.d. gistingu
úr 7% í 11% (og fyrirvarinn var
um tvær vikur).
l Árið 2016 innleiðing virðisauka
skatts á alla þætti ferðaþjónustu
að innanlandsflugi og ferjusigl
ingum undanskildum.
l Árið 2017 hækkun á gistinátta
gjaldi frá 1. september 2017.
l Árið 2018 flutningur flestra þátta
ferðaþjónustu í efra þrep virðis
aukaskatts á miðju ári.
l Árið 2019 breyting á prósentu
virðisaukaskatts.
Allar þessar skattabreytingar,
ásamt kostnaðarhækkunum á
borð við launahækkanir, skila sér
beint út í verð á ferðum okkar sem
viljum stunda heiðarleg viðskipti
og fara að lögum og reglum.
Það hefur lengi verið um talað
að töluvert sé af svartri starfsemi í
ferðaþjónustu. Aðilar komist upp
með að bjóða þjónustu sína á eigin
heimasíðum og erlendum sölu
síðum, án þess að vera með tilskilin
leyfi og án þess að skila virðisauka
skatti. Ég var ein þeirra sem studdu
það að öll ferðaþjónusta færi inn í
virðisaukaskattskerfið í ársbyrjun
2016. Vonir stóðu til að þá yrði
fastar tekið á leyfislausri starfsemi.
Því miður er ekki að sjá nein áform
um það, heldur ýtir fyrirhuguð tvö
földun á virðisaukaskatti stórum
hluta ferðaþjónustu enn frekar
undir muninn á þeirri þjónustu
sem seld er „svart“ og þjónustu
okkar sem viljum vinna í samræmi
við lög. Fyrir erlendan ferðamann
sem vafrar um netið og skipuleggur
Ferðaþjónusta – frá eldgosi
til hamfara af mannavöldum
Unnur
Svavarsdóttir
framkvæmda-
stjóri GoNorth
Travel
sína Íslandsferð, er það ekki auð
greinanlegt hvaða aðilar skila
sínum sköttum og hverjir starfa
ólöglega utan íslensks skattkerfis.
Einföldun skattkerfis er nefnt
sem rök fyrir tvöföldun virðisauka
skattsins, en þetta verður ekki ein
földun fyrir okkar rekstur.
Hefðbundin ferð um Ísland
samanstendur af mörgum þjón
ustuþáttum, bílaleigupakki inni
felur til dæmis: bílaleigubíl (nú
í 24% vsk.), gistingu (11% vsk.),
kvöldverð á veitingahúsi (11%
vsk.), innanlandsflug (0% vsk.).
Þarna erum við að vinna með þrjú
þrep virðisaukaskatts. Eins og
fyrirhugaðar breytingar hafa verið
kynntar þá verður skattainnheimta
okkar eftir 1. júlí 2018: bílaleigubíll
(nú í 24% vsk.), gisting (24% vsk.),
kvöldverður á veitingahúsi (11%
vsk.), innanlandsflug (0% vsk.),
áfram þrjú þrep. Í hverju felst ein
földunin?
Ég óttast að tvöföldun á virðis
aukaskatti á stóran hluta ferða
þjónustunnar geri verðmuninn á
ferðum frá löghlýðnum fyrirtækj
um og þeim óskráðu og leyfislausu
það mikinn að kaup á Íslandsferð
um færist nærri öll yfir í skuggahag
kerfið og til leyfislausra aðila sem
ekki skila sköttum, þar með talið
virðisaukaskatti. Lokaútkoman
verði minni tekjur ríkisjóðs.
SMÁTÓMATAR
Þræðið upp á spjót.
Penslið með mangó
chutney og grillið
þar til brúnast.
Grillaðu grænmeti eins og meistari
með hjálp myndbandanna okkar á
islenskt.is
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13M i ð V i k u D A G u R 2 4 . M A í 2 0 1 7
2
4
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
E
C
-E
6
6
0
1
C
E
C
-E
5
2
4
1
C
E
C
-E
3
E
8
1
C
E
C
-E
2
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K