Fréttablaðið - 24.05.2017, Page 22
Sjálfboðaliðar frá Empower Nepali Girls heimsækja skólastelpurnar reglulega til Nepal.
Útivistardagurinn Mitt eigið Everest fer fram á morgun, uppstigningardag, við
Úlfarsfell í Mosfellssveit. Þar ætla
þátttakendur að labba upp á
Úlfarsfell, eins oft og hver vill, og
um leið að styrkja gott málefni.
Það er nýlega stofnuð Íslandsdeild
samtakanna Empower Nepali
Girls sem skipuleggur daginn
en samtökin hafa það markmið
að efla og styðja ungar stúlkur í
Nepal, þá helst með því að veita
skólastyrki og annan stuðning til
stúlkna sem annars myndu ekki fá
tækifæri til að mennta sig.
Markmið útivistardagsins er
tvíþætt, að sögn Guðrúnar Hörpu
Bjarnadóttur, formanns Íslands
deildar Empower Nepali Girls.
„Í fyrsta lagi er þetta fjáröflunar
viðburður fyrir Empower Nepali
Girls samtökin. Peningum er
safnað annars vegar með skrán
ingargjöldum og styrkjum, og hins
vegar með áheitasöfnun eins og
við þekkjum frá Reykjavíkurmara
þoninu.“
Í öðru lagi er markmiðið að
hvetja fólk til hreyfingar og úti
vistar, segir Guðrún. „Hugmyndin
er að hver og einn finni sitt eigið
Everest. Þá meinum við að hver
og einn finni sitt markmið, skori á
sjálfan sig og fjölskylduna og færi
sig örlítið út fyrir þægindaramm
ann. Fyrir einhverja getur það
verið áskorun að ganga eina ferð
á Úlfarsfellið eða ganga þar með
börnin sín. Fyrir aðra getur verið
skemmtilegt markmið að ganga
ákveðinn fjölda ferða á fellið.“
Tónlist og veitingar
Allur ágóði af söfnuninni verður
sendur til Empower Nepali Girls
samtakanna sem sjá um að koma
fjármunum á rétta staði, að sögn
Guðrúnar. „Það kostar að meðal
tali um 20.000 kr. fyrir barn að
stunda nám í grunnskóla í Nepal.
Fyrir þá upphæð er hægt að greiða
skólagjöld, ritföng, skólabúning
og fleira sem til þarf. Samtökin
styrkja nú yfir 280 börn til náms
í mismunandi þorpum víðsvegar
um landið.“
Dagurinn hefst kl. 9 og stendur
yfir til kl. 23 en Guðrún gerir ráð
fyrir að flestir verði á ferðinni milli
kl. 12 og 16. „Við höfum heyrt af
einhverjum sem ætla að ganga í
allt að 14 klukkustundir. Það er
sá tími sem tekur að meðaltali að
ganga á Hvannadalshnjúk sem
er markmið margra þeirra sem
stunda fjallgöngur. Við gerum
þó ráð fyrir að flestir taki eina til
tvær ferðir og þá væri gaman að
sem flestir þeirra væru á ferðinni
á svipuðum tíma til að sem mest
orka myndist í fjallinu. Því höfum
við hvatt fólk til að koma og ganga
milli kl. 12 og 16 og vonumst eftir
mikilli stemningu á þeim tíma.“
Tjöld vera sett upp í „grunnbúð
um“ við rætur Úlfarsfells en gengið
verður upp hjá Leirtjörn sem er
Úlfarsárdalsmegin við fjallið. „Þar
mun tónlist óma og léttar veitingar
verða í boði fyrir göngugarpa.
Gönguleiðin sjálf verður síðan
skreytt marglitum bænaflöggum
frá Nepal.“
Heilluðust af Söru
Íslandsdeild Empower Nepali
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Framhald af forsíðu ➛
Girls var stofnuð í byrjun mars
og er markmið hennar eingöngu
að afla fjár fyrir samtökin til að
auðvelda þeim það góða starf sem
þau vinna í Nepal, segir Guðrún.
„Stofnfundurinn var haldinn í
Háskólanum í Reykjavík þar sem
Sara Safari heimsótti okkur og
sagði sögu sína og samtakanna í
máli og myndum.“
Sara er írönsk og búsett í Banda
ríkjunum. Hún setti sér það mark
mið að ganga á Everest árið 2015 í
þeim tilgangi að afla fjár og vekja
athygli á Empower Nepali Girls.
Hún var stödd á miðjum Khumbu
skriðjöklinum þegar jarðskjálftinn
mikli reið yfir landið og komst hún
við illan leik upp í fyrstu búðir þar
sem hún beið björgunar í tvo sólar
hringa. „Við heilluðumst af frásögn
Söru af Everest ferðinni og starfi
samtakanna. Því ákváðum við að
þó það væri ekki minnsti mögu
leiki á að við myndum nokkurn
tíma klífa Everest þá hlytum við
að geta fundið okkar eigið Everest
til að takast á við og vekja þannig
athygli á starfi samtakanna.“
Skráning á viðburðinn fer fram
með greiðslu skráningargjalds,
5.900 kr., fyrir hverja fjölskyldu
óháð fjölda barna. Tengill inn á
skráningarsíðuna er á Facebook
síðu viðburðarins (Mitt eigið
Everest). „Áheitasöfnunin fer fram
í gegnum síðu sem heitir Crowd
rise en það er síða sem skipuleggj
endur margra stórra viðburða
nota til fjáröflunar. Slóðin á
viðburðinn er www.crowdrise.
com/mitteigideverest en undir
viðburðinum hafa nokkrir göngu
hópar og fyrirtæki stofnað lið sem
keppa innbyrðis um árangur í
söfnun framlaga. Cintamani hefur
síðan gefið glæsileg verðlaun sem
veitt verða þeim þremur einstakl
inum sem safna hæstu framlög
unum í sínu nafni svo til mikils er
að vinna.“
Í þorpinu Borang voru samtökin með sérstaka aðstoð í kjölfar jarðskjálftanna til viðbótar við skólastyrkina.
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA
Arctic star sæbjúgnahylki
innihalda yfir fimmtíu tegundir af
næringarefnum, og eru þekkt fyrir:
• Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið
• Að auka blóðflæði
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla að
myndun húðpróteins og insúlins
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er
Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar
fást á www.arcticstar.is
Arctic Star sæbjúgnahylki
Varan fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hagkaupum.
hollur kostur á 5 mín.
Plokkfiskur
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . m a Í 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R
2
4
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
C
-F
A
2
0
1
C
E
C
-F
8
E
4
1
C
E
C
-F
7
A
8
1
C
E
C
-F
6
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K