Fréttablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 24
Í syrpunni Augnablik mynda ég fjölskyldur á heimilum sínum yfir tímabil og legg ljósmynd
irnar saman svo þær blandast
hver inn í aðra. Við það verður
til mynd af svo til óbreyttu rými,
þar sem samskipti og athafnir
fjölskyldunnar eru skrásettar með
óljósu, draugalegu yfirbragði.
Myndirnar benda þannig á
hverfulleika tilverunnar og verða
vitnisburður um hvernig hvers
dagslegar uppákomur geta orðið
að þýðingarmiklum minningum.
Stillan í myndunum vekur upp
bæði fortíðarþrá og missi, tíminn
stendur í stað og gefur áhorfendum
bæði tækifæri og rými til að endur
vekja hugsanir um eigin reynslu,
minningar og staði.“ Svona lýsir
ljósmyndarinn Charlotta Hauks
dóttir sýningu sinni sem stendur
nú yfir í Ramskram, Njálsgötu 49.
Charlotta býr í San Francisco
ásamt manni og börnum og segir
myndefni sýningarinnar jafnvel
eiga rætur sínar í söknuði eftir
bernskustöðvunum.
„Það er auðvitað ákveðin nost
algía tengd Íslandi. Mér finnst ég
að vissu leyti vera komin heim
þegar ég keyri í gegnum hraunið
frá Keflavíkurvelli,“ segir hún og
bætir við að ætlunin hafi verið að
ala börnin upp á Íslandi.
„Ég og maðurinn minn, ásamt
tveggja ára dóttur, fluttum til
Íslands frá Kaliforníu í enda árs
2007, en við höfðum þá búið í San
Francisco í sjö ár. Sonur okkar
fæddist svo á Íslandi í maí 2008
en eftir hrunið fluttum við aftur
út. Þar fór ég að hugsa um hvernig
líf við myndum eiga, hvernig
minningar börnin okkar myndu
eignast sem yrðu ólíkar þeim sem
við höfðum verið að vonast til og
hversu miklu máli heimilið skiptir
í lífi fjölskyldu. Hugsandi um mína
eigin barnæsku þá hafði mitt æsku
heimili mikil mótandi áhrif á mitt
líf og mínar minningar. Verkin mín
eru mörg hver mjög ólík í „útliti“
en þau fjalla öll á einn eða annan
hátt um minningar, tíma og staði.
Hvernig maður mótast af umhverf
inu og áhrif tímans,“ segir Char
lotta. Íslenskt landslag er henni
einnig hugleikið myndefni.
„Þá set ég saman myndir af
mismunandi sjónarhornum en
frá sama stað og raða þeim lóðrétt
saman. Ég prenta myndirnar út
180 cm á hæð sem verður til þess
að myndin umlykur áhorfandann.
Þetta er mín leið til þess að eiga
stað til að „hverfa inn í“ og finnast
ég vera heima.“
Hvernig viðtökur hefur sýningin
fengið?
„Það kom töluverður fjöldi á
opnunina og fékk ég almennt
góð viðbrögð gesta. Ég held að
þemað nái til margra og fólk geti
tengt við og rifjað upp sínar eigin
minningar við verkin. Ég vil vekja
áhorfandann til umhugsunar um
sitt eigið líf. Þessa stundina er ég að
vinna að bók með myndum sem
ég tók á Íslandi haustið 2015 yfir
fjögurra mánaða tímabil út um
gluggann á íbúð sem við leigðum.
Á veggnum hékk segultafla þar
sem ég hengdi fréttaúrklippur og
persónulegar myndir. Hugmyndin
var að koma með „heiminn“ inn í
okkar verndaða umhverfi. Það er
svo hægt að sjá tímann líða út um
gluggann, þar sem haustið breytist
í vetur.“
Sýning Charlottu stendur til 16.
júní.
Augnablik verða
að minningum
Ljósmyndasýning Charlottu Hauksdóttur stendur yfir
í Ramskram. Myndirnar eru lagðar hver ofan í aðra
og sýna daglegar athafnir fjölskyldna. Hversdagslegar
uppákomur verða að þýðingarmiklum minningum.
„Verkin mín eru mörg hver mjög ólík
í „útliti“ en þau fjalla öll á einn eða
annan hátt um minningar, tíma og
staði.“
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Charlotta Hauksdóttir opnaði
ljósmyndasýninguna Augnablik í
Ramskram. „Myndirnar benda á
hverfulleika tilverunnar og verða
vitnisburður um hvernig hvers-
dagslegar uppákomur geta orðið að
þýðingarmiklum minningum.“
Mynd/CHARlottA HAuksdóttiR
„stillan í myndunum vekur upp bæði
fortíðarþrá og missi, tíminn stendur
í stað.“
„samskipti og athafnir fjölskyld-
unnar eru skrásettar með óljósu,
draugalegu yfirbragði.“
Úr myndabók sem inniheldur myndir teknar í sama herberginu frá sama
sjónarhorni yfir fjögurra mánaða tímabil.
Árstíðaskipti út um gluggann.
Rauðagerði 25 - 108 Reykjavík
Sími: 517 0900 / 777 1901
www.kaelivirkni.is
VIÐHALD OG VIÐGERÐIR
Á KÆLI- OG FRYSTIKERFUM
VIÐ
SJÁUM
UM
• Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex álgluggum ehf.
• Hágæða álprófílkerfi frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga
idex.is - sími 412 1700
framl.- sölu- og þjónustuaðili Schüco á Íslandi
- þegar gæðin skipta máli
idex.is - sím 412 1700
framl.- sölu- og þjónustuaðili
Schüco á Íslandi
- merkt framleiðsla
• Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex
álgluggum ehf.
• Hágæða álprófílkerfi frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi
tegundum bygginga
Álgluggar
- þegar gæðin skipta máli
www.schueco.is
Álgluggar og hurðir
Nýjar vörur frá
Útsöluaðilar:
Útilíf – Kringlunni – Smáralind • Sportver Akureyri • Toppmenn & Sport Akureyri
K Sport Keflavík • Nína Akranesi • Sportbær Selfossi • Axel Ó Vestmannaeyjum
Dreifingaraðili: DanSport ehf. Hægt að sjá vörur á dansport.is
4 kynninGARBlAÐ Fólk 2 4 . M a í 2 0 1 7 M i ÐV i ku dAG u R
2
4
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
C
-E
6
6
0
1
C
E
C
-E
5
2
4
1
C
E
C
-E
3
E
8
1
C
E
C
-E
2
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K