Fréttablaðið - 24.05.2017, Page 44
100% JAFN HITIBETRI STJÓRN
Á HITA
0:00
STYTTRI
ELDUNARTÍMI
Í ALLRI
VEÐRÁTTU
MINNI
GASNOTKUN
ENGAR
ELDTUNGUR
SAFARÍKARI
MATUR
CHAR-BROIL
TITAN GASGRILL
Grillflötur 670x485 mm
3 brennarar
189.000 KR.
CHAR-BROIL
GASGRILL
Grillflötur 420x440 mm
2 brennarar
69.900 KR.
CHAR-BROIL
GASGRILL
Grillflötur 670x470 mm
3 brennarar
109.900 KR.
CHAR-BROIL
BIG EASY
Steikarofn, reykofn
og grill
54.900 KR.
P
IP
A
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
71
89
1
CHAR-BROIL
GÆÐAGRILL
TAKTU ÞÁTT Í LEIKNUM Á FACEBOOK!
– þú gætir unnið glæsilega Big Easy grillið
sem bæði steikir, reykir og grillar!
Öll Char-Broil grillin eru með
TRU-infrared tækninni sem
kemur í veg fyrir eldtungur
og tryggir jafnari steikingu.
facebook.com/charbroilisland/
Eva Dögg
SigurgEirSDóttir
Eigandi tiska.is
„Já, ég er komin með kort. Ég nýtti
mér stundum Costco þegar ég
bjó í USA fyrir 20 árum og fannst
fínt að geta keypt matvörur og
aðrar heimilisvörur í magni. En það
krefst skipulags að versla í Costco,
Íslendingar eiga eftir að læra á
verslunina og fólk með stór heimili
á eftir að spara helling. Ég er sjálf
með stórt heimili og hlakka til
að geta sparað. Ég er ánægð með
komu Costco og held að þetta sé
hollt fyrir samkeppnina og við-
skiptalífið á Íslandi. Ég verð kannski
ekki daglegur gestur þarna en þetta
er svona verslun sem maður fer í
kannski tvisvar í mánuði. Ég hugsa
samt að Costco verði nýja uppá-
haldsbensínstöðin mín. Og það er
ótrúlega hressandi að sjá verðið
sem þeir eru að bjóða upp á í raf-
vörum og slíku. Tek Costco fagnandi
alla leið.“
Hvað finnst þeim um
komu Costco?
Það virðast allir hafa skoðun á
komu Costco til Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Friðrik
ÁlFur MÁnaSon
Pönkari
„Ég hef enga skoðun á þessu þannig
séð, nema mér finnst alveg út í
hött að hafa beina útsendingu frá
opnuninni í fréttunum. En þetta er
bara búð. Eina sem ég vona er að
þetta verði til þess að það verði
verðlækkun á markaðinum, en ég
hef þó enga trú á að það gerist.
Ég hef trú á að mafían taki völdin
þarna eins og annars staðar. Ef
þetta hristir upp í markaðinum, þá
er þetta gott mál.“
Sigrún MagnúSDóttir
Þjóðfræðingur og
fyrrvErandi umhvErfisráðhErra
„Skoðun mín á Costco hefur raun-
verulega ekkert breyst síðan var
haft við mig viðtal fyrir um
þremur árum. Þá fagnaði
ég samkeppninni sem
fylgir komu Costco
og taldi að það væri
bara nauðsynlegt inn
á matvörumarkaðinn
eins og hann er orðinn á
Íslandi. En hins vegar varaði
ég við að Costco væri að fara að
flytja inn ófrosið kjöt. Og þar tel
ég að ég hafi rutt brautina, því mér
sýnist þetta vera það sem margt fólk
talar um núna. Síðan varð ég um-
hverfisráðherra og ég var hreykin af
því að hafa haft þessa skoðun áður
en einhver titill sagði mér að ég ætti
að hafa skoðun. Þetta
stendur alveg, en þetta
var afbakað á sínum tíma og
það leit út fyrir að ég væri alveg
á móti Costco en það var ég ekki,“
segir Sigrún sem mun ekki fá sér
Costco-kort. „Ég sé enga ástæðu til
þess þar sem ég er ekki að kaupa inn
í stórum skömmtum. Rangá hefur
nægt mér hingað til og nægir mér
enn þá.“
rangÁ HEFur
nægt Mér
Hingað til og nægir
Mér Enn þÁ.
StEinþór HElgi
arnStEinSSon
viðburðastjóri CCP
„Ég er skammarlega mikill áhuga-
maður um tilboð og góð verð, og
hef alltaf verið. Er meira að segja
stundum kallaður Steini Coupon af
nánum vinum. Ég hlakka aðallega
bara til að sjá vöruúrvalið og hvað
verður í boði sem maður hefur
ekki áður séð á Íslandi, sérstaklega
þegar kemur að lífrænum vörum.
Og ef þau eru með hreinsiefni sem
nær steinefnum af sturtugleri verð
ég frekar sáttur. Geri samt ekki ráð
fyrir mörgum ferðum á mánuði og
er frekar slakur yfir þessu.“
HilDur kriStín
StEFÁnSDóttir
söngkona
„Nei, ekki enn þá. ég hef alltaf
ætlað að gera það [fá mér kort í
Costco], er samt engin múgæsingar-
manneskja þannig að ég geri það
bara einhvern tímann í rólegheitun-
um þegar ég nenni. Ég er sko sökker
fyrir amerísku snakki og nammi
þannig að ég sé mig fyrir mér fara
yfir um í þeirri deild – og kannski
snyrtivörudeildinni líka. Annars
langar mig aðallega bara í kortið
til að geta spókað mig um þarna,
keypt eitthvað sem mig vantar alls
ekki og verið með í þjóðfélagsum-
ræðunni. Mig langar líka mjög mikið
að klappa 500.000 króna gullfílnum,
það eitt er kortsins virði.“
lína Birgitta
bloggari
„Nei, ég er ekki komin með Costco-
kort, en mig langar í það. Málið er,
að maður er svo klikkaður, að um
leið og maður fór að sjá snöpp frá
fólki þá sá maður að það er bara
allt til þarna. Þannig að maður vill
einhvern veginn taka þátt í geð-
veikinni.“
Það hefur varla farið fram hjá neinum að Costco er
komið til Íslands. Af því tilefni fór Lífið á stúfana
og spurði nokkra einstaklinga um skoðun
þeirra á komu verslunarinnar til
landsins og hvort þeir væri
komnir með kort. Flestir
virðast vera spenntir.
2 4 . m a í 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U R28 l í f I Ð ∙ f R É T T a B l a Ð I Ð
Lífið
2
4
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
E
D
-0
4
0
0
1
C
E
D
-0
2
C
4
1
C
E
D
-0
1
8
8
1
C
E
D
-0
0
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K