Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Page 14
14 Fréttir Erlent Vikublað 15.–17. mars 2016
Verið velkomin!
20%
AFSLÁTTUR
af
kæli- og frystiskápum
Lýtalæknir grunaður um
að falsa dánarvottorð
n Fegurðardrottning lést eftir lýtaaðgerð n Lögreglan stöðvaði útförina tók líkið í sína vörslu
L
ýtalækni er gefið að sök að
hafa falsað dánarvottorð feg-
urðardrottningar sem undir-
gekkst einfalda lýtaaðgerð
hjá honum, aðgerð sem kall-
ast „Chinese moustache“ eða kín-
verska yfirvararskeggið. Hin brasil-
íska Raquel Santos fékk meiriháttar
hjartaáfall í janúar síðast liðnum,
nokkrum tímum eftir að hafa geng-
ist undir aðgerð hjá dr. Wagner
Moraes. Í aðgerðinni fólst að fyllt
var upp í hrukkur í kringum munn-
inn; hrukkur sem myndast þegar
fólk brosir. Að sögn news.com.au
hafði konan, sem var 28 ára göm-
ul, þráhyggju gagnvart útliti sínu.
Hún var þeirrar skoðunar að bros-
hrukkurnar væru lýti.
Haft er eftir vinkonu hennar,
Deboru, á vefsíðunni G1, að Santos
hafi verið dauðhrædd um að deyja
í lýtaaðgerð en hún hafi verið svo
þjökuð af hégómagirnd að hún
hefði verið til í að fórna öllu til að
bæta útlit sitt. Lögregluna í Rio de
Janeiro grunar að dr. Moraes hafi,
þegar hann gaf út dánarvottorð
konunnar, breitt yfir mistök sem
hann gerði. Hann er grunaður um
að hafa látið undir höfuð leggjast
að spyrja hvort Santos hefði neytt
einhverra lyfja sem kynnu að hafa
áhrif á efnin sem hann notaði til
að fylla í andlitshrukkurnar. Hann
hafi ekki haft lagalegan rétt til að
gefa út dánarorsök en hafi gert
það til að breiða yfir þá staðreynd
að hann kannaði ekki sjúkrasögu
sjúklingsins.
Lögreglan stöðvaði útförina
Midia News greinir frá því að út-
förin hafi verið stöðvuð af lögreglu
sem gerði líkið upptækt. Krufning
leiddi í ljós að Santos hafði reglu-
lega sprautað sig með anabólískum
sterum – ætluðum hrossum – til að
bæta árangur sinn í ræktinni. Vitað
er að sterarnir geti hækkað blóð-
þrýsting verulega.
Lögreglan segir skoðun hafa
leitt í ljós að dr. Morares hafi ekki
vitað af steranotkuninni fyrr en
eftir að Santos var úrskurðuð látin.
Vinsæl fyrirsæta
Santos varð önnur í fegurðar-
samkeppninni Musa do Brasil í fyrra.
Um er að ræða eina stærstu keppni
landsins auk þess sem hún var á góðri
leið með að verða vinsæl fyrirsæta.
Fram kemur á news.com.au að
ekkillinn, Gilberto Azevedo, hafi
sagt lögreglu að Santos hefði kvartað
yfir hröðum hjartslætti og öndunar-
erfiðleikum í kjölfar aðgerðarinnar,
sem framkvæmd var á læknastofu í
Niteroi, nærri Rio de Janeiro, þann
11. janúar síðastliðinn. Hún var þá
flutt á annað sjúkrahús þar sem
hún lést nokkrum stundum síðar,
eftir hjartaáfall.
„Ég er þeirrar skoðunar að hún
væri á lífi ef hún hefði gengist undir
aðgerðina á stað sem er hæfur til að
framkvæma svona aðgerðir,“ hefur
Midia News eftir Gilberto Azevedo.
Fjölskyldan hafði áhyggjur
Fram kemur að Santos hafi farið
í sína fyrstu lýtaaðgerð, brjósta-
stækkun, 2014. Í kjölfarið hafi hún
látið laga á sér nefið, hökuna og
kinnar. „Hún reykti mikið og neytti
ýmissa lyfja til að reyna að bæta
útlit sitt,“ segir Gilberto Azevedo.
„Hún tók lyf fyrir æfingar en einnig
til að geta sofið.“ Hann er þeirrar
skoðunar að vanræksla lækna hafi
dregið hana til dauða. Gilberto
Azevedo segist hafa hvatt konu sína
til að láta af þráhyggju sinni – hún
væri nógu falleg fyrir. Áhyggjur fjöl-
skyldunnar af heilsufarsástandi
hennar hafi hún látið sem vind um
eyru þjóta. Fjölskyldan íhugar nú
hvort hún eigi að stefna lækninum
sem framkvæmdi aðgerðina. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
„Hún reykti mikið
og neytti ýmissa
lyfja til að reyna að bæta
útlit sitt.
Látin Raquel Santos
neytti ýmissa lyfja og
reykti í þokkabót.
Mynd CEn / FaCEBook
S
tjórnvöld í Tyrklandi hafa
greint frá því að árásar-
mennirnir tveir sem
sprengdu sig í loft upp í
Ankara á sunnudag hafi verið með-
limir PKK, Verkamannaflokks Kúr-
distans. 37 létu lífið í árásinni og
100 eru særðir eftir þriðju hryðju-
verkaárásina í borginni á einu
ári. Þrátt fyrir þetta hefur enginn
lýst ábyrgð á árásinni á hendur
sér. Daesh-samtökin hafa lýst yfir
ábyrgð á hinum tveimur.
Annar árásarmannanna var 22
ára gömul kona sem gekk til liðs við
PKK árið 2013.
Fólkið ók á vettvang, við versl-
unarmiðstöðina Kizilay, í bifreið
sem var full af nöglum og höglum.
Verslunarmiðstöðin er mikilvæg
samgöngum í borginni.
Á síðasta sólarhring hafa her-
þotur Tyrkja varpað sprengjum að-
setur á PKK í Írak, alls átján skot-
mörk. Forseti Tyrkja, Recep Tayyip
Er dog an, hefur heitið því að kné-
setja hryðjuverkamenn í landinu.
Hann segir að baráttunni muni
ljúka með sigri Tyrkja.
astasigrun@dv.is
Sprengdi sig í loft upp
22 ára kona annar árásarmanna PKK í Tyrklandi
Erfið bið
Ættingjar
bíða frétta af
ástvinum sín-
um í Ankara.
Mynd EPa