Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Side 15
Fréttir Erlent 15Vikublað 15.–17. mars 2016 Gæði í merkingum I-phone eða Macbook með persónulegri merkingu www.graf.is - s: 663-0790 Við merkjum allt mögulegt Eyravegi 23, Selfossi, sími 555-1314 Allt til hannyrða á einum stað Eyravegi 23, Selfossi // 555-1 314 // Opið virka daga 11 - 6 og lau gardaga 11 - 2 Allt til hannyrða Ótrúleg t úrval Gefum góð ráð Zeus flytur að heiman Vélmenni sem faðmar fólk, eyðilegging flótta- mannabúða og slæpt ljón Flytur að heiman Ljónið Zeus, sem búið hefur í dýragarðinum Burgers í Arnhem í Hollandi undanfarin fimm ár, var svæft, deyft og flutt milli landa á dögunum. Nýtt heimili Zeus verður í dýragarðinum Sosto í Ungverjalandi. Myndir epa Kjörgengur Þessir félagar mættu saman á kjörstað í Magdeburg í Þýskalandi á sunnudag í sambandsríkjaþingkosningum. Þó að hundurinn hafi án efa ekki verið kjörgengur hélt hann ró sinni og beið þolinmóður á meðan eigandi hans sinnti lýðræðisskyldum sínum. niðurrifið Fljóttamaður stendur mitt í ónýtum flóttamannabúðum sem hafa verið brenndar til grunna. Yfirvöld í Frakklandi hafa ákveðið að draga stórlega úr stærð flóttamannabúð- anna í Calais, við landamæri Frakklands og Bretlands. Calais hefur í rúma tvo áratugi verið viðkomustaður flóttamanna, en á undanförnum mánuðum hefur fjöldi flóttamanna sem þar eiga dvalarstað margfaldast. Nú eiga þeir að færa sig um set, en spurningin er hvert? Vinátta? Aurora Chiquot, samskiptastjóri Aldebaran SoftBank Group, og vélmennið Pepper, sem er í eigu fyrirtækisins fallast í faðma á tölvuráðstefnunni CeBIT í Hanover. rétta augnablikið Ljósmyndari EPA náði mynd á hárréttu augnabliki í óveðri í Bhopal á Indlandi. Talsverðar þrumur, eldingar og mikil rigning gerði íbúum borg- arinnar lífið leitt um helgina. „Mér var ekki rænt“ O fur hressa og lífsglaða sjón- varps- og líkamsræktar- stjarnan Richard Simmons segir að fregnir af því að honum hafi verið rænt og að hann sé í sálrænu fangelsi séu stórlega ýktar. Bandaríska dagblaðið New York Daily News birti grein þess efnis um helgina. Þar kom fram að á undan- förnum tveimur árum hefði Simm- ons svo gott sem horfið, hann svar- aði ekki símanum, tölvupósti eða skilaboðum og var ráðskonu hans, Teresu Reveles, kennt um. Var hún sögð yfirmáta stjórnsöm, en hún býr á heimili hans. Í yfirlýsingu á laugardag sagði lögmaður Richards Simmons að þetta væri með öllu rangt og ásak- anirnar fáránlegar. Simmons hafi einfaldlega þráð að fá smá frið eftir 40 ára starf í sviðsljósinu. Það þótti tortryggilegt í ljósi aðstæðna að Simmons kaus að svara í gegnum lögmann sinn og því ákvað hann sjálfur að mæta í símaviðtal á sunnudag. Þar sagðist hann vilja frið. „Mér var ekki rænt. Ég er bara heima hjá mér núna. Svona vil ég haga lífi mínu á þessum tímapunkti. Til allra sem hafa áhyggjur af mér, ekki hafa þær. Ef ég væri í hættu eða ef mér liði illa myndi ég láta vita,“ segir hann og segist vera að jafna sig eftir erfiða hnéaðgerð. n richard Simmons segist vera hress

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.