Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Qupperneq 27
Helgarblað 15.–17. mars 2016 Kynningarblað - Sameignin 9
Brýnt að hreinsa loftræstikerfi
áður en þau skaða heilsu fólks
L
oftstokkahreinsunin K2
ehf. sérhæfir sig í hreinsun
og sótthreinsun loftræsti-
kerfa og hefur yfir áratuga
reynslu af hreinsun
loftræstikerfa á Íslandi.
Magnús Ásmundsson,
verkefnastjóri K2,
segir fyrirtækið sinna
einstaklingum sem og
fyrirtækjum og það sé
nóg að gera enda gríðar-
lega mikilvægt að hreinsa
loftræstikerfi reglu-
lega áður en þau skaða
heilsu fólks.
Hreinsa myglusvepp
í heimahúsum og
fyrirtækjum
„Við hreinsum óhreinindi
og myglusvepp úr loftræsti-
kerfum, hvort sem um ræðir í
heimahúsum eða fyrirtækjum og
stofnunum,“ segir Magnús. Magnús
nefnir að fólk eigi til að hugsa of
sjaldan út í að það þurfi að hreinsa
loftræstikerfi reglulega sem verður
til þess að raki getur safnast fyrir og
myndað myglusvepp sem getur oft
verið skaðlegur heilsu fólks.
„Þetta gerist bæði heima
hjá fólki og hjá fyrir-
tækjum. Það þarf að
hreinsa til dæmis fjöl-
býlishús á þriggja til
fimm ára fresti en það
kemur mjög oft fyrir
að það sé ekki gert yfir-
höfuð. Kostnaðurinn sé
ekki mikill við hreinsun
lagna í fjölbýlishúsum
en þessi aðgerð get-
ur minnkað líkurnar
á rakaskemmdum og
myglu í lögnum heil-
mikið,“ segir Magnús í
framhaldinu.
Þjónusta skip og veitingastaði
„Við þjónustum einnig veitingastaði
með því að hreinsa eldhúsaháfa en
það er mikilvægt til að minnka líkur
á að það kvikni í, spara rafmagn og
gera umhverfi starfsmanna heilsu-
samlegra og betra séu dæmi nefnd.
Því er nauðsynlegt að hreinsa þá
einu sinni eða oftar á ári,“ segir
Magnús, en fyrirtækið býður upp á
það besta sem völ er á í dag í alhliða
hreinsun á eldhúsháfum.
Stundum er ekki þörf á hreinsun
– þetta getið þið gert sjálf
Það kemur stundum fyrir að starfs-
menn K2 mæta á vettvang til að
hreinsa loftræstingu, til dæmis
í baðherbergi í fjölbýlishúsi, og
þá kemur í ljós að ekki er þörf á
hreinsun. Stundum þarf bara að
skrúfa túðuna úr og þrífa. En þetta
geta allir gert sjálfir. Þessi aðgerð er
framkvæmd í þremur skrefum:
n Þú byrjar á því að skrúfa miðjuna úr.
n Síðan snýrðu túðunni til að losa hana frá.
n Loks skolar þú túðuna og skrúfar hana
síðan aftur í.
Veitingahús: Fyrir og eftir Útsog frá baði:
Fyrir og eftir
Lofttúða
JOMA pípulagnir tryggja
gæði og vönduð vinnubrögð
J
OMA pípulagnir er rótgróið
fyrir tæki sem var stofnað
árið 1971 og sérhæfir sig í al-
hliða viðgerðum og breyting-
um í eldri húsum; sérstaklega
í endurnýjun á skolpi og í drenlagn-
ingu í kringum hús. Jón Magngeirs-
son, pípulagningarmeistari og fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir
fyrirtækið sinna bæði einstaklingum
og fyrirtækjum.
Tryggja gæði
Hjá JOMA pípulögnum er verð ekki
miðað við magntölur. „Þegar kem-
ur að skolpverkefnum gerum við
ávallt fast tilboð sem stendur alltaf;
bara eitt fast verð og skriflegt tilboð.
Verð helst því það sama í byrjun og
lok verks,“ segir Jón. „Við notum að-
eins PVC plaströr, þegar við skiptum
út því gamla, sem eru sömu plaströr
og eru sett í ný hús í dag,“ bætir Jón
við. „Við erum afar vel tækjum bún-
ir og getum því sinnt öllum þeim
verk efnum sem koma inn á borð til
okkar,“ segir hann í framhaldinu.
Vönduð vinnubrögð og
afbragðs þjónusta
„Við leggjum mikið upp úr því að
veita fyrirmyndar þjónustu og fag-
mennsku þegar kemur að vönduðum
vinnubrögðum,“ segir Jón. „Við erum
stundvísir og skilum af okkur verk-
um á tilsettum tíma. Jafnframt sinn-
um við viðskiptavinum strax,“ bætir
hann við. Það er vert að segja frá því
að allir starfsmenn Jóns hafa starf-
að hjá honum í um 10 ár og því góð
reynsla og mikil þekking til staðar
innan fyrirtækisins. Hægt er að panta
þjónustu JOMA pípulagna með því
að hringja í Jón eiganda í síma 892-
4598 á kristilegum tíma. n
myndir EinaraS