Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Page 44
32 Fólk Vikublað 15.–17. mars 2016 FermingargjöFin í ár! fæst í öllum verslunum n1 Þráðlausu Touch heyrnartólin eru seld á N1 um allt land. Hægt að tengja við síma, ipad og öll bluetooth tæki. Einnig er hægt að svara í símann með þeim. Sérbakað fyrir þig Allt fyrir fermingar tertur, heitir réttir, brauðtertur, snittur og margt fleira. Sími: 483 1919 - almarbakari@gmail.com Hveragerði og Selfossi Þau eru öll fluggáfuð n Hollywood-stjörnurnar eru ekki bara frægar og fallegar n Sumar sprenglærðar M argir ímynda sér eflaust að líf Hollywood-stjarna snúist eingöngu um að vera frægur og fallegur, en sú er svo sannarlega ekki raunin. Að minnsta kosti ekki hvað sumar varðar. Við erum að tala um stjörnurnar sem eru fluggáfað- ar og jafnvel með fleiri en eina há- skólagráðu frá virtum skólum. Það eru ekki allir sem leika það eftir. n Natalie Portman  Leikkonan er sögð vera með greindarvísi- töluna 140, sem er töluvert yfir meðallagi, og hún hefur nýtt gáfur sínar vel. Portman er með sálfræðigráðu frá Harvard og hefur fengið greinar eftir sig birtar í vísinda- tímaritum. Hún lét hafa það eftir sér í viðtali við New York Post eitt sinn að hún vildi frekar vera klár en kvikmyndastjarna.  Dolph Lundgren Hasarmyndaleikarinn er með hvorki meira né minna 160 í greindarvísitölu, sem gerir hann eiginlega að snillingi. Lundgren er með gráðu í efnaverkfræði frá hvort tveggja Kungliga Tekniska Högskolan í Stokkhólmi og University of Sidney. Þá fékk hann Fulbright-námsstyrk til að fara í MIT.  David Duchovny X-Files-stjarnan er með greindarvísitöluna 147 og skartar tveimur háskólagráðum í ensku, frá Princeton og Yale, en sú síðarnefnda er meistaragráða. Hann hætti hins vegar í doktorsnámi árið 1987 þegar honum bauðst auglýsingasamningur sem fól í sér að auglýsa bjór.  Mayim Bialik Big Bang Theory-leikkonan er með greindarvísitöluna 150 og hvorki meira né minna en doktorsgráðu í taugavísindum. Hún er sérhæfð í áráttu- og þráhyggjuhegðun hjá unglingum. Þá talar hún fimm tungumál eins og drekka vatn.  Meryl Streep Þessi hæfileikaríka leikkona sem hefur fengið flestar tilnefningar til Óskarsverðlauna í sögunni er með greindarvísitöluna 143. Eins og það sé ekki nóg þá er hún líka með meistaragráðu frá Yale School of Drama.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.