Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Blaðsíða 20
20 Fréttir Erlent Helgarblað 29. apríl–2. maí 2016 100% NÁTTÚRULEGT, FLJÓTANDI JÁRN ÁN AUKAEFNA MAMMA VEIT BEST KYNNIR: Purelife Red Iron Purelife Red Iron er unnið úr steingerðum jarðlögum þar sem plöntur og steinefni hafa myndað einstaka járnríkan jarðveg sem droparnir eru unnir úr. Hentar barnshafandi konum Milt í magann - engin hægðatrega Öruggt og áhrifaríkt GLÚTENLAUST - GERLAUST - MJÓLKURLAUST - VEGAN Mamma veit best - Laufbrekka 30 - 200 Kópavogur mammaveitbest.is 100% NÁTTÚRULEGT, FLJÓTANDI JÁRN ÁN AUKAEFNA MAMMA VEIT BEST KYNNIR: Purelife Red Iron Purelife Red Iron er unnið úr steingerðum jarðlögum þar sem plöntur og st i efni haf myndað einstaka járnríkan jarðveg sem droparnir eru unnir úr. Hentar barnshafandi konum Milt í magann - engin hægðatrega Öruggt og áhrifaríkt GLÚTENLAUST - GERLAUST - MJÓLKURLAUST - VEGAN Mamma veit best - Laufbrekka 30 - 200 Kópavogur mammaveitbest.is MAMMA VEIT BEST KYNNIR: Purelife Red Iron 100% NÁTTÚRULEGT, FLJÓTANDI JÁRN ÁN AUKAEFNA Purelife Red Iron er unnið úr steingerðum jarðlögum þar sem plöntur og steinefni h fa myndað einstaklega járnríkan jarðveg sem droparnir eru unnir úr. • Hentar barnshafandi konum • Milt í magan - engin hægðartregða • Öruggt og áhrifaríkt GLÚTENLAUST - GERLAUST - MJÓLKURLAUST - VEGAN Lífið eftir dauðann n 30 ár liðin frá kjarnorkuslysinu í Tsjernobyl n Fáir búa í annars yfirgefnum bæjum Þ ann 26. apríl árið 1986 átti sér líklega stað versta kjarnorkuslys sögunnar. Slysið varð í kjarnorkuveri í Pripyat í Úkraínu, sem þá var hluti af Sovétríkjunum sálugu. Sprengingar urðu í einum ofni í Tsjernobyl-kjarnorkuverinu sem olli því að gríðarmikið magn geisla- virkra efna slapp út í andrúmsloftið og dreifðist víða um vesturhluta þáverandi Sovétríkja og Evrópu. Allir íbúar í 30 kílómetra radíus frá verinu voru fluttir á brott á fyrstu dögunum eftir slysið – allt að 135 þúsund manns. Þegar frá leið voru fleiri fluttir á brott, af mun stærra svæði. Tveir verkamenn létust við sprengingarnar en 28 slökkviliðs- og björgunarmenn létu lífið fyrstu þrjá mánuðina eftir að hafa unnið á vett- vangi. Síðan eru liðin 30 ár. Lífið í kring um Tsjernobyl – þar sem 12–15 þús- und manns bjuggu – er enn ekki samt. Enn þann dag í dag eru fáir íbúar búsettir í bæjunum í kring. Stærstur hluti landsvæðisins hefur með tímanum verið nýttur til rækt- unar. Gróður- og dýraríkið dafnar ágætlega og nálægasti sveitabær er í 37 kílómetra fjarlægð frá kjarn- orkuverinu, skammt utan svæðis- ins þar sem takmarkanir hafa verið á aðgengi. Á umræddu býli eru ríf- lega 260 hestar og einar 55 kýr, sem ræktaðar eru til sölu. Starfsmenn verndarsvæðisins, í 30 kílómetra radíus umhverfis kjarnorkuverið, segja að náið sé fylgst með geislun á svæðinu. Meðfylgjandi myndir tóku Sergey Dolzhenko og Tatyana Zen- kovich fyrir myndveituna EPA. n Baldur Guðmundsson baldur@dv.is  Einmanalegt Maria Semenyku situr á rúmi og fylgist með hænunum sínum í þorpinu Paryshev, 25 kílómetrum frá Tsjernobyl-kjarnorkuverinu. Ekki er heimilt að búa svo nálægt kjarnorkuverinu en þó er ekki amast við þeim fáu íbúum sem þar hafast við. Mynd EPA  Minnisvarðar Karlmaður gengur fram hjá skiltum með nöfnum þeirra bæjarbúa sem fluttir voru á brott eftir slysið. Myndin er tekin í garði til minningar um þá sem létust vegna slyssins. Mynd EPA  Heft aðgengi Hvítrússneskur vörður opnar hlið sem veitir aðgengi að lokaða svæðinu umhverfis kjarnorkuver- ið. Aðgengi er heft í 30 kílómetra radíus umhverfis verið. Mynd EPA  Hestunum gefið Vinnumaður gefur hestum að éta innan verndarsvæðisins í Babchin. Landið sem lá á lausu eftir fólksflóttann hefur að mestu verið nýtt til ræktunar. Mynd EPA  Gamall bátur Lífríkið á svæðinu er smám saman að vakna til lífsins eftir hörmungarnar. Geislun er þó enn mikil.  Engin börn Hér má sjá hvernig tíminn hefur leikið húsnæði sem eitt sinn hýsti leikskóla í borginni Pripyat. Mynd EPA  Lokað Engin börn hafa í þrjá áratugi notið ævintýranna sem þessi skemmtigarður í borginni Pripyat, nærri Tsjernobyl, hafði eitt sinn upp á að bjóða. Mynd EPA  Allir farnir Þessir skór hafa í 30 ár legið óhreyfðir í yfirgefnu þorpi, Orecichi. Íbúar fengu engan tíma til að pakka niður eða undirbúa brottförina. Mynd EPA Mynd EPA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.