Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Blaðsíða 40
Helgarblað 29. apríl–2. maí 201632 Fólk Viðtal
J
ón Þór var harðákveðinn í því
frá unga aldri að verða húðflúr
ari. „Ég man eftir tónlistarhá
tíð í Kaplakrika árið 1989, þar
sem ég gekk um á meðal rokk
aranna og gjörsamlega missti kjálk
ann í gólfið þegar ég stóð skyndilega
frammi fyrir tveggja metra flúruð
um mótorhjólamanni. Ég tók í hand
legginn á honum og byrjaði að skoða
flúrin, alveg dolfallinn.“
Nokkrum árum seinna steig hann
í fyrsta sinn inn á húðflúrstofu Helga
heitins tattú. „Það var bara eitthvað
sem heltók mig, ég varð ein augu og
fannst ég strax eiga heima þarna. Ég
vissi að þetta vildi ég læra og byrjaði
strax að suða í Helga um að kenna
mér.“ Jón Þór var þolinmóður og
Helgi tók hann inn sem lærling þegar
hann varð 21 árs gamall. „Þetta hafð
ist með þrjóskunni minni, held ég.
Ég hékk mikið á stofunni og Helgi
ætlaði alls ekkert að kenna mér til að
byrja með. Á þessum árum var mik
ilvægt að sýna að manni væri alvara.“
Sópaði gólf og flúraði fáa
Nám Jóns Þórs hófst sem sagt fyrir
tíma internetsins. „Þetta var allt öðru
vísi en í dag. Það var heilmikið fyrir
tæki að verða sér úti um vél. Mað
ur þurfti að hafa réttu samböndin
og geta sannað að maður væri í
þessu fyrir alvöru. Eftir bréfaskrift
ir og undirbúning fór ég svo sjálfur
til Bandaríkjanna árið 1998 og keypti
mér sett af græjum. Ég var ákveðinn í
að sanna fyrir Helga að ég ætlaði að
læra að flúra, með eða án hans hjálp
ar.“ Móðir Jóns Þórs studdi hann frá
upphafi varðandi val hans á námi, en
pabbi hann hefði kosið aðra leið fyrir
hann. „Pabbi vildi að ég lærði á tölv
ur og eitthvað praktískt. Mér leiðast
þannig tæki alveg svakalega svo það
átti aldrei við mig.“
Jón Þór lærði listina af Helga í
þrjú ár. Húðflúraranám er ekki staðl
að eða í föstum skorðum og misjafnt
hversu langan námstíma fólk þarf.
„Við erum mismunandi lengi að til
einka okkur tæknina og þróa list okk
ar. Í dag sér maður flúrara sem hafa
kannski verið að í tvö ár og eru mjög
góðir. Helgi kenndi á gamla mátann.
Ég byrjaði í þrifum og flúraði fáa aðra
en sjálfan mig þessi þrjú fyrstu ár.
Áherslan var lögð á gott handverk
hjá þessum gömlu körlum í brans
anum. Það var einfaldlega ætlast til
þess að maður framkvæmdi það sem
var lagt fyrir mann.“
Í framhaldinu flutti Jón Þór til
Englands og fékk vinnu sem flúrari
þar. „Ég var úti á árunum fyrir hrun,
2002–2007, pundið var hundrað
kall og ég fékk ekki mikið fyrir laun
in mín á Íslandi. Þegar ég kom svo
heim hækkaði það í 200 kall. Það
var skrítið að koma heim – einhver
ónotatilfinning sem fylgdi því.“ Eft
ir heimkomuna fór Jón Þór að flúra
á stofunni Tattú og skart og í fram
haldinu stofnaði hann sitt eigið
stúdíó, Kingdom within, sem hann
starfrækti á Skólavörðustígnum í sex
ár, eða þar til hann fór á flakk um
heiminn með bakpokann sinn.
Fyrsta flúrið hans pabba
17 árum eftir að Jón Þór byrjaði
að flúra fékk hann í fyrsta
sinn að flúra pabba sinn.
„Þetta var rétt áður en ég
fór á flakkið. Pabbi vissi ekki
hvenær ég myndi koma
heim aftur. Mér þótti mjög
vænt um að fá að flúra
pabba. Hann fékk sér mynd
af merinni sinni og tripp
inu. Ljósmynd af þeim var
fyrirmyndin, en hún var
tekin í haga uppi í sveit fyr
ir norðan.“
Hver flúrari á sín
ar sterku hliðar. Jón Þór
er bestur í hefðbund
um, japönskum flúrum
og munsturgerð. „Ég geri
samt ýmislegt annað, eig
inlega bara það sem lagt
er fyrir mig, það sem
kúnninn óskar eftir. Ákveðna hluti
tek ég þó alls ekki að mér og hika
ekki við að vísa á aðra flúrara. Ég fæ
oft áskoranir sem reyna mikið á. Það
sem stendur upp úr á ferlinum er
líklega eitt verk. Það var ermi sem ég
hannaði út frá verkum Erró. Ég not
aði klippimyndir, aðallega úr pop
art stílnum hans. Það tók langan
tíma að finna út úr þessu og plana
ermina. En útkoman var frábær.“
Hefur oft vísað fólki frá
„Ég hef oft og mörgum sinnum sagt
nei við óskum kúnna. Stundum sendi
ég þá hreinlega annað, ef ég er ekki
viss um að geta uppfyllt óskir
þeirra. Það skiptir máli hvað
maður setur á fólk og auðvit
að vil ég alltaf að kúnninn sé
ánægður. Svo eru það þeir sem
koma með miður góðar hugmynd
ir. Þá reyni ég eiginlega að útskýra
hvers vegna hugmyndin virkar ekki –
ef viðkomandi vill ekki hlusta verð ég
hreinlega að vísa honum frá.
Suma hluti geri ég alls ekki, þá yf
irleitt af siðferðisástæðum. Til dæm
Seldi allt
og fann
hamingjuna
„Ég lét gamlan draum rætast þegar ég ákvað að
pakka öllu saman og taka sénsinn. Ég hugsaði
bara „fokkitt“, ef þetta virkar ekki er alltaf
möguleiki að koma heim og byrja upp á nýtt.“
Þetta segir Jón Þór Ísberg um ástæður þess
að hann ákvað að losa sig við flestar af veraldleg-
um eigum sínum og leggja á flakk um heiminn með
einn bakpoka, já og auðvitað tattúvélina sína.
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is „Mér
þótti
mjög vænt
um að fá að
flúra pabba
Fegurð í fjöllunum Buscalan-þorpið, þar sem húðflúrmeistarinn Apo Whang Od býr í 5
þúsund feta hæð. Margir íbúanna hafa aldrei yfirgefið þorpið sitt. Aðeins er vitað til þess að
hin 97 ára gamla Apo hafi yfirgefið þorpið sitt einu sinni, var það vegna jarðarfarar.
Pabbi á bekknum Honum þótti vænt um að fá að flúra karlinn eftir 17 ár í bransanum.