Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Blaðsíða 33
Helgarblað 29. apríl–2. maí 2016 Kynningarblað - Gæða gólfefni 5 Spennandi nýjungar í gólfefnum Parket & Gólf: Toppþjónusta, gæði og gott verð í 28 ár M argar spennandi nýj­ ungar í gólfefnum er nú að finna hjá Parket & Gólf, Ármúla 32, til dæmis vínyl parket, teppaflísar og ofinn gólfdúk. Enn fremur eru veggfóður og gólfteppi mjög vinsæl nú um stundir og finna má allt það flottasta í þeim efnum hjá Parket & Gólf. Nýjungagirni í bland við afar trausta þjónustu einkennir starf­ semina. Vatnshelt gólfefni og nýjungar í harðparketi „Mest of okkar efni kemur frá Evrópulöndum og birgjarnir okkar eru margir með langa framleiðslu­ sögu. Sem dæmi um það má nefna parketframleiðandann Haro sem hefur starfað í 150 ár,“ segir Elías H. Melsted, sölustjóri hjá Parket & Gólf. Meðal nýjunga hjá versluninni er vatnshelt gólfefni – vínylparket sem hægt er að leggja í baðherbergjum, eldhúsum og þvottahúsum, sem og öllum rýmum. „Vínyldúkurinn er fáanlegur með smellukerfi, sem gerir lagn­ ingu hans auðveldari enda þarf ekki að líma hann,“ segir Elías. Vínyl­ parketið er afar slitsterkt og er það vinsæll kostur í leiguíbúðum auk þess sem stéttarfélög hafa valið það í sumarbústaði. Ofinn vínydúkur er síðan einstök nýjung, en þar er um að ræða um­ hverfisvæna hátæknivöru af gerðinni Bolon, efni sem þolir vel bleytu og er afar slitsterkt og auðvelt í þrifum. Bolon er sænskt fjölskyldu­ fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í að endurvinna vínylefni. „Við höfum notað þetta efni víða, t.d. í versl­ unum, veitingahúsum, hótelum og gistiheimilum, en einnig á mörgum heimilum. Þetta efni er einnig mjög vinsælt í mottur,“ segir Elías. Nýjungar og endurbætur ein­ kenna líka harðparketið hjá Parket & Gólf. Kjarninn er þéttari en áður og tvöföld vatnsvörn er, bæði í kjarna og smellu. Harðparketið er núna fáanleg með áföstu undirlagi eða áföstu lími. Teppaflísar Teppaflísar eru alltaf að verða vin­ sælli, sér í lagi í fyrirtækjum að sögn Elíasar: „Með teppaflísum getum við leikið okkur með liti og mynst ur,“ segir hann en bendir á að teppi séu almennt einnig að sækja í sig veðrið: „Klárlega eru það fyrst og fremst hótelin og gistihúsin sem koma þar sterkast inn en fólk er einnig að kveikja á þessu gólfefni fyrir eigin heimili. Kostir þeirra eru enda margir, bæði dempa þau vel hljóð og svo eru þau hlýleg og gott að ganga á þeim. Teppaflísarnar okkar eru með aukinni hljóðdempun eða jafnvel áföstu lími sem auðveldar lagningu til muna.“ Viðarparket „Þó gerviefnin sæki sífellt á í gólf­ efnum er alltaf kúnnahópur sem kýs heldur viðarparket. Það er ákveðinn hópur sem vill ekta við en ekki gervi. Þar hefur eikin verið allsráðandi síðustu ár enda hægt að leika sér dálítið með hana hvað varðar lita­ tóna,“ segir Elías. Veggfóðrið „Veggfóðrið er að koma aftur og það er gaman að sjá. Veggfóðrið er of­ boðslega spennandi efni enda er úrvalið nánast takmarkalaust,“ segir Elías, en skoða má hið mikla úrval af veggfóðri á heimasíðu fyrirtækisins, www.parketoggolf.is. Á vefsíðunni er líka einfalt og þægilegt að panta veggfóðrið og tekur aðeins fimm daga að fá það afhent. Traust þjónusta í næstum þrjá áratugi Parket & Gólf hefur verið starfandi í 28 ár og stefna fyrirtækisins hefur alltaf verið að bjóða upp á topp­ þjónustu, mikil vörugæði og gott verð. Sem fyrr segir er verslunin staðsett að Ármúla 32, 105 Reykja­ vík, og þar er afar gott úrval sýnis­ horna af vörum fyrirtækisins. Lager verslunarinnar er í Skeifunni 7. Verslunin er opin virka daga frá 9 til 18. Afgreiðslutími á lagernum er 11 til 16 alla virka daga. n Sími: 568-1888 www.parketoggolf.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.