Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Blaðsíða 54
Helgarblað 29. apríl–2. maí 2016
ljúffengur morgunmatur
alla daga
Kaffivagninn / Grandagarði 10, 101 Rvk.
Sími: 551 5932 / www.kaffivagninn.is
Opið virka daga frá 07:30–18:00
og um helgar frá 09:30–18:00
gamla
höfnin
46 Menning
1 VélmennaárásinÆvar Þór Benediktsson
2 IrénePierre Lemaitre
3 JárnblóðLiza Marklund
4 Taktu til í lífi þínuMarie Kondo
5 Frygð og fornar hetjur
Óttar Guðmundsson
6 VonarstjarnaNora Roberts
7 Kryddjurtarækt fyrir byrjendur
Auður Rafnsdóttir
8 Hælið Sankta PsykoJohan Theorin
9 Meira blóðJo Nesbø
10 Smásögur heimsins Norður-Ameríka
Ýmsir höfundar
Metsölulisti
Eymundsson
20.–26. apríl 2016
Ævar Þór Benediktsson
V
iveca Sten hefur áunnið sér
vinsældir íslenskra lesenda
fyrir glæpasögur sínar sem
hafa verið góð afþreying. Í nýrri
bók, Í hita leiksins, hverfist atburða-
rásin um unglinga og eiturlyfjavanda.
Ungt fólk streymir til Sandham-eyju
til að halda upp á Jónsmessu með
tilheyrandi neyslu áfengis og vímu-
efna og um morguninn finnst lík ungs
manns. Líkt og fyrr er lögfræðingur-
inn Nora Linde aðalpersóna bókar-
innar og er nú komin í samband við
Jónas sem á unglingsdóttur. Vinur
Noru, rannsóknarlögreglumaðurinn
Thomas, kemur einnig mjög við sögu.
Atburðarásin er hæg, reyndar svo
mjög að það er á kostnað spennu
sem lítið fer fyrir í bókinni, fyrir utan
lokametrana. Sten er mjög upptek-
in af því böli sem fíkniefni valda í lífi
unglinga og henni liggur hér meira á
hjarta en í fyrri bókum. Hún leggur sig
fram við að skyggnast inn í sálarlíf og
hugsanir unglinga en afraksturinn er
því miður ekki nægilega áhugaverð-
ur. Hinn vel meinandi boðskapur
er þarna og lesandinn skynjar hann
en hætt er við því að hann verði ekki
mjög snortinn því klisjurnar eru of
margar og það sem þarna er sagt, til
dæmis um viðhorf pilta til stúlkna,
hefur verið sagt svo oft áður og mun
betur en þarna er gert. Þarna er ein-
faldlega flest eftir formúlunni og nær
ekkert kemur á óvart.
Í hita leiksins er fremur máttlaus
glæpasaga og verst er að spennan,
sem lesendur glæpasagna sækja í, er
ekki þarna. Sten hefur í fyrri bókum
tekist mun betur upp en hér. n
Flest eftir formúlunni
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Bækur
Í hita leiksins
Höfundur: Viveca Sten
Þýðing: Elín Guðmundsdóttir
Útgefandi: Ugla
DEilt uM uMhVErfis-
áhrif listaVErks
n Marco Evaristti litaði strokk bleikan með ávaxtalit n Málið fer fyrir dóm
á
fimmtudag fór fram í Héraðs-
dómi Suðurlands fyrirtaka
í máli síleska listamannsins
Marco Evaristti, sem er sak-
aður um að hafa brotið nátt-
úruverndarlög með því að hella fimm
lítrum af rauðum matarlit í goshver-
inn Strokk í apríl í fyrra. Verjandi lista-
mannsins lagði fram greinargerð, en
ekki hefur verið ákveðið hvenær mál-
flutningur fer fram.
Neitaði að borga sekt
Gjörningurinn, sem nefnist The
Rauður Thermal Project, var hluti
af listaverkaseríunni The Pink State
en í henni hefur Evaristti litað ýmis
náttúrufyrirbæri bleik með ávaxta-
lit. Fyrsta verkið gerði hann árið 2004
þegar hann málaði grænlenskan ís-
jaka bleikan, en síðan þá hefur hann
litað sandöldur, foss, ský og hul-
ið topp Mt. Blanc í Frakklandi með
rauðu efni. „Bleika ríkið eignar sér
svæði og um leið hverfur það frá því.
Ríkið er tímabundið – það lifir aðeins
jafn lengi og liturinn sjálfur,“ hefur
Evaristti sagt um listaverkin.
Íslendingar voru margir hverjir
ósáttir með verkið, Evaristti var út-
húðað á samfélagsmiðlum og lög-
reglan á Suðurlandi sektaði hann um
hundrað þúsund krónur fyrir gjörn-
inginn.
Listamaðurinn neitaði hins vegar
að borga sektina og í viðtölum hélt
hann því fram að sápa til hvers-
dagsnota og almenn umgengni á
Geysissvæðinu færi mun verr með
umhverfið en þessi náttúrulegu litar-
efni.
Spjöll eða skaðlaust efni
„Hann mætti ekki við þingfestingu
málsins og því gekk útivistardóm-
ur. Hann var sem sagt dæmdur til að
greiða sekt af því að hann mætti ekki.
Nú hefur hann fengið málið endur-
upptekið og ætlar að grípa til varna,“
segir Konráð Jónsson, verjandi
Evaristti, í samtali við DV.
„Í ákærunni segir að þetta hafi haft
þær afleiðingar að umhverfi hversins
hafi verið raskað, þar sem hverinn
hafi gosið rauðlituðu vatni sem sat
eftir í pollum og einhverjir litablettir
hafi orðið eftir,“ segir Konráð
„Umbjóðandi minn telur hins
vegar að þetta hafi ekki verið refsi-
vert samkvæmt lögum. Í meginat-
riðum byggir hann á því að það hafi
ekki orðið spjöll í neinum skilningi
því liturinn var farinn mjög skömmu
síðar. Það voru send sýni til greiningar
og það fannst eitthvað „minimalt“ í
þeim. Svo liggur fyrir skýrsla um að
nákvæmlega engin umhverfisáhrif
séu af völdum þessa efnis, það eyðist
mjög fljótt úr náttúrunni.“ n
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Marco Evaristti
n Fæddur í Síle árið 1963
n Búsettur í Danmörku.
n Lærði arkitektúr hjá Henning Larsen
í Det kongelige danske kunstakademi í
Kaupmannahöfn.
n Vakti fyrst athygli árið 2000 fyrir
sýningu Helena í Trapholt-listasafninu í
Kolding þar sem hann stillti upp blönd-
urum með lifandi gullfiskum í og bauð
áhorfendum að kveikja á tækjunum.
Safnstjórinn var síðar kærður fyrir
dýraníð en sýknaður.
Sérstök vernd
Eftirtaldar landslagsgerðir njóta sérstakr-
ar verndar og skal forðast röskun þeirra
eins og kostur er:
n eldvörp, gervigígar og eldhraun,
n stöðuvötn og tjarnir, 1.000 m2 að stærð
eða stærri,
n mýrar og flóar, 3 hektarar að stærð eða
stærri,
n fossar, hverir og aðrar heitar uppsprettur,
svo og hrúður og hrúðurbreiður, 100 m2 að
stærð eða stærri,
n sjávarfitjar og leirur.
Leita skal umsagnar Náttúruverndar ríkisins
og náttúruverndarnefnda áður en veitt er
framkvæmda- eða byggingarleyfi, sbr. 27.
og 43. gr. skipulags- og byggingarlaga, nr.
73/1997, til framkvæmda sem hafa í för
með sér röskun landslagsgerða skv. 1. mgr.
nema fyrir liggi aðalskipulag samþykkt eftir
gildistöku laga þessara þar sem umsögn skv.
33. gr. liggur fyrir.
37. grein náttúruverndarlaga