Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Blaðsíða 60
52 Fólk Helgarblað 29. apríl–2. maí 2016 K örfuboltastelpan Dagný Lísa Davíðsdóttir er 19 ára Hvergerðingur sem hefur undanfarin tvö ár verið bú- sett í Bandaríkjunum þar sem hún stundar nám í mennta- skóla, býr á heimavist og spilar körfubolta. Hún segir reynsluna mjög dýrmæta og draumi líkasta. Spilaði með strákunum Þegar Dagný Lísa var sex ára göm- ul byrjaði hún að æfa körfubolta með Hamri í Hveragerði. Með ár- unum flosnaði upp úr kvenna- liðinu og þegar hún var komin í 6. bekk byrjaði hún að æfa með strák- um því stelpurnar náðu ekki lengur að mynda lið. Eftir tveggja ára leik með strákunum byrjaði Dagný Lísa að spila með meistaraflokki Ham- ars, sem miðað við aldur hennar þá var afar sjaldgæft. „Já, ég var frekar ung og það er vissulega fáheyrt að byrja að æfa með meistaraflokki á þessum aldri. Ég mæli ekkert endilega með því fyrir alla en þetta hentaði mér vel. Ég var snemma mjög hávaxin og út úr þessu fékk ég alveg frábæra reynslu. Ég spilaði svo með meist- araflokki Hamars í fjögur ár eða þar til ég flutti hingað út.“ Lífið í West Chester í Pennsyl- vaníu segir Dagný Lísa ekki vera frábrugðið sveitalífinu í Hveragerði enda er skólinn hennar staðsettur aðeins utan við bæinn sem er lítill og íbúar um 20 þúsund. „Þetta er voða mikið úti í sveit en hér er hvort tveggja stór skógur og stöðuvatn. Maður er rosalega frjáls hérna og þetta hentar mér mjög vel. Ég hef aðlagast fljótt og bjóst raunar við meiri erfiðleikum við flutningana út. Stærsta breytingin er í rauninni að ég bý ekki lengur hjá mömmu og pabba. Það er ekk- ert elsku mamma hér! Svo var líka skrítið að tala ensku við alla allan daginn. Mér fannst erfitt að geta ekki skipt yfir í íslensku í smá stund og þurfa til dæmis að margfalda og deila á ensku. En eins og ég segi þá vandist þetta mjög fljótt.“ Jafnræði milli skóla og íþrótta Í skólanum sem Dagný stund- ar nám við fylgjast íþróttirnar og skólinn algjörlega að og það er ekki í boði að standa sig vel á aðeins öðru sviðinu. „Hér er ég með stelpum í liði sem eru líka með mér í stærðfræði og efnafræði. Þjálfarinn minn vinn- ur í skólanum mínum og ég hitti hann á göngunum í frímínútum. Kennararnir mínir fylgjast grannt með gangi mála í körfunni og þjálf- arinn veit hvernig námið gengur. Krakkarnir sem standa sig ekki í skólanum fá því ekki að spila og ef þú stendur þig bara í körfunni þá er það ekki nóg. Þetta fyrirkomulag býður upp á meiri skilning á báða bóga og mikið er lagt upp úr því að finna gott jafnvægi milli íþrótt- anna og námsins. Heima eru þessir þættir alveg aðskildir og það getur gert það flóknara að standa sig vel í hvoru tveggja námi og íþróttum.“ Þá virðist Dagný Lísa hvorki vera í vandræðum með námið né íþrótt- irnar enda hafa þjálfarar úr háskól- um víðs vegar í Bandaríkjunum sett sig í samband við hana og hún var valin á svokallaðan Dean's-lista fyrir framúrskarandi námsárangur. Sjálf gerir Dagný Lísa ekki mikið úr velgengni sinni en segist vera búin að skrifa undir samning með full- um skólastyrk við Niagara University rétt fyrir utan Buffalo í New York-fylki fyrir næsta haust. „Fyrir mig var það mikið afrek að kom- ast á Dean's- listann. Mað- ur kemst á þann lista fyrir góða hegðun og samskipti við kennara og samnemend- ur en einnig þarf maður að vera með yfir 8,5 í öll- um fögum. Ég ætla ekki að segja að þetta hafi verið auðvelt og fyrir mig var þetta heil- mikið afrek. Svona kerfi er í öllum skólum í Bandaríkjunum og það er horft til þessara lista þegar fólk er valið inn í háskóla. Ég stefndi alltaf að því að fara til Bandaríkj- anna í háskóla, en að vera hér í menntaskóla líka er algjör bónus. Þetta er svo ótrúlegt því ég var búin að skoða og kynna mér alls konar háskóla áður en ég flutti hingað og svo eru allt í einu þjálfarar úr þess- um sömu háskólum farnir að hafa samband við mig, senda mér sms og kynna sig fyrir mér. “ Gleðin leynir sér ekki enda hefur Dagný Lísa svo sannar- lega komist á þann stað sem hún ætl- aði sér. Að lokum leggur hún áherslu á að jafnaldr- ar hennar noti þetta tímabil í lífinu til þess að láta drauma sína rætast. „Ég er ung og hef engu að tapa og hefði ekki trúað því hvað þessi reynsla hefur gert mikið fyrir mig. Ég hvet jafnaldra mína til þess að nýta þetta tímabil í að gera það sem þeir virkilega vilja gera.“ Það verður spennandi að sjá hvert framtíðin leiðir þessa ótrú- lega efnilegu stelpu sem horfir full eftirvæntingar fram á veginn. n „Er ung og hEf Engu að tapa“ Körfuboltastjarna úr Hveragerði á fullum skólastyrk í New York Út fyrir kassann Kristín Tómasdóttir skrifar Í leik Dagný Lísa byrjaði sex ára gömul að æfa körfubolta. Skrifað undir Lífið í West Chester í Pennsylvaníu segir Dagný Lísa ekki vera frábrugðið sveitalífinu í Hveragerði. Gengur vel í skólanum Dagný Lísa státar af framúrskarandi námsárangri. „Ég hvet jafnaldra mína til þess að nýta þetta tímabil í að gera það sem þeir virkilega vilja gera. Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera skemmtilegur, jákvæður, harðduglegur, samviskusamur, heiðarlegur, ábyrgur, úrlausnamiðaður, hafa áhuga á sölumennsku og markaðsmálum. Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði fyrir góðan og duglegan sölumann. Umsóknir sendist á Steinn@dv.is Atvinna í boði á einum skemmtilegasta vinnustað landsins Á markaðsdeild DV er í boði starf fyrir góðan og harðduglegan starfsmann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.